Vikan


Vikan - 31.01.1963, Qupperneq 34

Vikan - 31.01.1963, Qupperneq 34
SÁLKREPPUR OG SÁLGREINING EFTIR DR. MATTHÍAS JÓNASSON jarðlífsins. Einstaklingseðlið, upp- haflega sjálfhverft og heimtufrekt, skal sveigjast til hlýðni við siðaboð samfélagsins, en þó í mildu ástríki, sem ekki leiði til varanlegrar trufl- unar á geðrænu jafnvægi. Þrá ungbarnsins finnur fullnægingu við brjóst móður sinnar. í faðmi hennar vaknar því samúðarkennd, sem glæðir því skilning á hinu marg- brotna og kröfuharða siðgæði sam- félagsins. Á þennan hátt fellur hegð- un flestra manna áreynslulítið að samfélagskröfunum; ósjaldan býr barn samt við þær tilfinningaað- stæður, að þrár þess og hvatir spyrna af öllu afli gegn þeirri siða- vitund, sem það játast undir og finnur sig skuldbundið. Þá er hafin togstreita í sálarlífi einstaklingsins, sem getur magnazt svo, að varanleg geðveila spretti af. Að vara við og vernda fyrir slíkri hættu, það er sjálfvalið hlutverk sálgreiningar- innar. ARFSVON HINS SNAUÐA. Sælir eru þeir, sem þjáningu bera, því að þeir munu huggaðir verða“ (Matth. 5. k. 4. v.). Andspænis þessu fyrirheiti um eilífa sælu hefir jarðlífið aðeins andartaksgildi, sæla þess og þjáning virðast eins og sveipir í árflaumi, sem birtast og hverfa í sömu svipan. Frá jarðnesku sjónarmiði er þjáningin þó ekki svona svipleifturskennd. Jafnvel þótt hún vari aðeins skamma stund samkvæmt klukkunni, get- ur einstaklingurinn lifað hana sem endalausa kvöl. Og það á ekki við líkamsþjáningu fyrst og fremst. Hún kann að vera sár, en er þó bærileg, meðan sálrænt þrek endist. Það er hin sálræna kvöl, sem breytir örskotsstund í langdregna eilífð, tekur sér ból- festu í geði einstaklingsins og lamar viðnámsþrótt hans, svo að hann örvæntir um persónulegt gildi sitt og tilgang lífs síns. Af þessum sökum er arfsvon hins vansæla til huggunar í öðru lífi ekki einhlít. Einnig tíman- leg velferð mannsins krefst geð- verndar og sálgæzlu. Einstakl- ingurinn er oft svo vanmegna og umkomulaus gagnvart geð- rænum vandamálum sínum, að hann þarfnast skilningsríkrar hjálpar, svo að hann geti á eðli- legan hátt verið þiggjandi og veitandi í samfélaginu. Sú þörf er honum sjálfum þó ekki alltaf ljós. f því birtist reginmunur geðrænna og líkamlegra þján- inga. Ef ég vinzt í ökklalið, þá er ég í engum vafa um hjálpar- þörf mína; ég leita handlæknis umsvifalaust. En geðrænn sárs- auki minn er oft búinn dular- gervi, sem öðrum veitist jafnvel auðveldara að sjá í gegnum en mér. Hann raskar geðrænu jafn- vægi mínu, án þess ég sjálfur verði þess var. Slík röskun jafn- vægis veldur oft miklu böli, vek- ur tortryggni og ótta, spillir ást og vináttu, sáir andúð og hatri. Hún ræður því, að menn reynast 34 VIKAN oft verst þeim, sem þeir unnu mest. Margt ólánsverk var unnið í góðri meiningu. Raunveruleg orsök sjúklegra geð- brigða er ósjaldan svo vandlega dulin, að jafnvel slyngustu geð- fræðingar fá sig fullreynda við að greina hana. En gríman getur líka fallið skyndilega. Hinn þjáði reynir kannske að lýsa vanda sínum með skarplegri hugsun og skýrum orð- um, en grípur aðeins á yfirborðs- fyrirbærum og styrkir þannig óaf- vitandi þann varnarmúr, sem geym- ir leyndarmálið djúpt í dulvitund hans. Svo lýtur hann allt í einu höfði og grætur! Þetta ósjálfráða tilfinningaviðbragð opnar glöggum athuganda dýpri sýn inn í geðræna röskun en margorð frásögn megnar. Barni er grátur eiginleg tilfinninga- tjáning; hjá því er hann ekki neinn kjarkleysisvottur. En grátur full- orðins manns þýðir uppgjöf hins dulda í persónuleikanum, hann sýn- ir vorn innra mann í allri nekt sinni og umkomuleysi. Grátur er alltaf uppgjöf, þótt ekki sé nema um stundarbil. Því blygðast menn sín fyrir að tárfella í návist ann- arra. En við grát slaknar oft á stríðs- þaninni tilfinningaspennu, svo að duldin á greiðari leið fram í blikflöt vitundarinnar. VERALDLEG SÁLGÆZLA. Fyrirheitið um huggun eftir dauð- ann fyrir þá sálarkvöl, sem ein- staklingurinn kann að verða að þola, nægir nútímamanninum ekki lengur. Hann skoðar geðræna van- líðan miklu fremur sem sjúkdóm, sem hann eigi heimtingu á að fá læknaðan. Það er ekki sízt af þess- um sökum, að kenning Freuds um áhrif hins dulvitaða á hegðun og geðheilsu manna hefir náð svo al- mennri viðurkenningu, sem raun er á. Hylli sína á hún fyrst og fremst að þakka notagildi þeirrar geð- lækningaaðferðar, sem af henni er leidd. Túlkun hennar á eðli manns- ins hefir sætt ákafri, jafnvel of- stækisfullri gagnrýni, ekki sízt af trúarlegum ástæðum, enda hefir mörgum virzt sem dulvitundin væri leikvangur djöfullegra hvata, sem réðu mestu um hegðun manna, sam- vizkunni aftur á móti væri fengið hið tvíbenta hlutverk að þrúga nið- ur og bæla eðlislægar hvatir og til- finningar. Því ber heldur ekki að leyna, að kenning Freuds er víða tilgátukennd; í mörgum atriðum fyllir frjótt ímyndunarafl hans upp í eyður rökfærzlu og sannana. Styrkur sálgreiningarinnar er fram- ar öllu fólginn í geðvemdar- og lækningagildi hennar. Hún leitast við að fullnægja þörf nútímamanns- ins fyrir veraldlega sálgæzlu. Frá sjónarmiði nútímaþekkingar leikur enginn vafi á því lengur, að „hin dimma þrá“, þ. e. hemjulausar hvatir og viðkvæmar tilfinningar, er upprunalegt og skýrt eðlisauð- kenni mannsins. Viðfangsefni þeirr- ar sálgæzlu, sem hefir geðrænt heilbrigði og veraldlegan farnað að markmiði, er m. a. fólgið í því að skilja þennan eðlisþátt og stöðu hans gagnvart siðmenningu samfé- lagsins. Með trúarlegum skriftum sínum rækti kaþólska kirkjan mik- ilvæga sálgæzlu, sem náði þó aldrei að fullu geðverndartilgangi sínum einmitt vegna þess, að kirkjan skoð- aði hina duldu afkima vitundarinnar sem vígi satans og hlaut með þeirri afstöðu að auka á þá hvatabælingu, sem raskaði geðrænu jafnvægi skriftabarnsins. Hin veraldlega sálgæzla aftur á móti viðurkennir hvern þátt mann- eðlisins og hlutdeild hans í hegðun og atferli. Hlutverk hennar er að losa um bælinguna, upphefja hana og greiða úr geðflækjunni í vökulli vitund. Við það missir duldin sitt sundrandi magn, og sálarlífið kemst aftur í jafnvægi. Þetta má auðvitað ekki skilja svo, sem hver tilhneiging mannsins ætti þá jafnan rétt til framrásar í verki. Sálgreiningarsinnar eru ekki neinir nihilistar í siðgæði og trúmálum. Fyrirheitið um huggun í öðru lífi getur verið æðsta og sælasta von þeirra, engu síður en annarra manna. En hún upphefur ekki gildi Lítil ástarsaga. Framhald af bls. 21. Það var ekki langt liðið á dans- leikinn, þegar Grollmann stóðst ekki mátið lengur. Hann byrjaði: — Ungfrú Angelíka. Hve við dönsum þennan vals létt og svíf- andi, hamingjusöm og áhyggjulaus! Gætum við ekki dansað þannig gegn um lífið, ástkæra ungfrú Angelíka? Angelíka roðnaði. — Mér líkar mjög vel við yður, sagði hún, — en það getur ekki orðið. Ég treysti mér ekki til að gefast manni, sem ekki er músíkalskur. — En ég er mjög músíkalskur, greip hann fram í. — Vitið þér, í hvaða tóntegund Haydn samdi sinfóníur sínar? — Það skiptir ekki máli, kæri Grollmann. — En vitið þér þá, hve margar blekbyttur Scarlatti notaði, þegar hann skrifaði sernbalósónötuna? — Það kemur tónlistinni ekkert við. — Jæja, sagði Grollmann þá. — En giftist mér þá í nafni þessa vals, sem við nú dönsum saman. Takið bara eftir þessum valsi! Svo léttum, svo svífandi! Við eigum svo vel saman, sjáið bara, hvernig hitt fólkið hefur staðnæmzt og starir bergnumið á okkur ... Angelíka leit vonleysislega á dansherra sinn. Svo sagði hún: — Einmitt þess vegna vil ég ekki gift- ast yður. — Hvers vegna ekki, í drottins nafni? — Vegna þess, að þetta er ekki vals, heldur tangó! Þetta er nú kannski lygasaga, en hún er skemmtileg samt. Kannski hefði Grollmann greyið heldur átt að fara þá leiðina að taka þátt í fimleikum, því það er hið eina, sem Angelíka leggur stund á auk tón- listarinnar — og þó — leikfimi með

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.