Vikan


Vikan - 31.01.1963, Side 44

Vikan - 31.01.1963, Side 44
Gef mér líka! Svona, svona ungfrú góð. Ekki svona mikið í einu! Sjáðu bara hvernig mamma fer að: Lítið í einu en oftar. En þú hefur rétt fyrir þér — maður byrjar aldrei of snemma á réttri húð- snyrtingu. Mamma þín hefir líka frá sesku haft þessa reglu: Nivea daglega. Gott er að til er NIV E A ! Nivea inniheldur Euce- rit — efni skylt húðfit- unni — frá því stafa hin góðu áhrif þess. „Það er mér alveg sama uin, hr. kafbátsforingi, ef þér hara lileyp- ið ekki af þeim.“ „Því get ég því miður ekki lof- að,‘ sagði hinn, „en þvi get ég lofað, að ef það yrði, þá munuð þér ekki hafa hugmynd um það.“ „Það er mjög hugulsamt af yður, og ég er yður ákaflega þakklátur. En liver er ástæðan fyrir þessum óvænta heiðri?“ „Öryggi Þriðja Ríkisins, hr. Thomsen. Við vitum því miður ekki hvað kann að leynast á þess- um hrjóstugu og fjandsamlegu ströndum lands yðar. Kannske liggja þar fjendur vorir í leyni- og bíða eftir að hremma yður í klær sínar. Þeir munu kvelja yður og pina til sagna, þar til þér verð- ið orðinn viljalaus vesalingur og segið þeim allt það, er þér vitið um okkar hagi. Það má ekki ske. Ef við verðum varir við nokkur merki þess að móttökunefnd biði yðar, munum við senda yður skemmtu leið til útibús Þriðja Rikisins, hérna beint fyrir ofan. Móttökunefndin verður send til sinna eigin aðalstöðva, — hérna beint fyrir neðan. Hafið þér skil- ið þetta, hr. Thomsen?“ „Já, fullkomlega. Það er sem- sagt öruggt, að ég sé yður ekki framar.“ „Hvað eigið þér við?“ „Jú, annað hvort verð ég hér eftir, — eða fer upp.“ Borðalagði maðurinn liorfði augnablik á lóðsinn eins og Iiann ætlaði að segja eitthvað meira, en hætti við, skellti saman hælum, setti nefið upp í loftið og teygði hægri höndina skáhalt uppávið til Suð-suð-vest: „Heil IIitler!“ 44 VIKAN sagði hann i hálfum liljóðum og horfði fast á manninn, sem hann var að kveðja. Hinn setti sig í réttstöðu, skellti saman hælunum, gretti sig ógurlega í framan og blimskakk- aði augunum ofanvið svört liorn- spangargleraugun: „Sæll sjálfur;“ urraði í honum, og á næsta augna- bliki hafði hann skutlað sér út- fyrir borðstokkinn og lét sig renna á rassinum niður kúptar hliðar gúmmíbátsins, sem beið hans a sjónum. Síðan tók hann til að róa hægt og hljóðlega til lands. PÉTUR EÐA ST. PÉTUR. Hann vissi að það var satt, sem borðalagði maðurinn hafði sagt, að hann mundi aldrei sjálfur verða var við það hvort þeir skytu á hann. Eina breytingin yrði sú — vonaði hann — að hann mundi skyndilega standa andspænis nafna sínum St. Pétri, sem inundi hringla framan í hann lyklunum. „Hvað ert þú að villazt, nafni minn?“ mundi hann segja. „Þú veizt að þú átt ekki að koma hing- að.“ „O-víst, Pési minn. Skipun frá sjálfum foringjanum. Og fáðu mér lyklana lagsi minn, áður en þeir afgreiða þig með loftvarna- byssunum. Ég á að taka við af þér. Þú átt að fara niður aftur í staðinn fyrir mig. 0-flýttérnúl“ Sumir segja að svona hafi þetta raunverulega skeð, og það hafi verið St. Pétur sem hoppaði létti- lega upp á íslandsströnd úr gúmmí- bátnum. Víst er að síðan hefur Pétur ekki gert flugu inein — svo vitað sé. Að visu fer hann á gæsa- skytterí hvenær sem færi gefst, en það er einungis i þágu lands og þjóðar. 'Brennivínstár hefur Pét- ur lika löngum getað þegið í hófi, en hver er kominn til með að segja að St. Pétur sé stúkumaður? Hvað sem því líður, þá komst Pétur á land. Það fyrsta, sem hann gerði var að skera gúmmíbátinn i tætlur og lienda honum í sjóinn. Siðan tók hann senditækin og annað sitt haf- urtask, labbaði með það nokkurn spöl, og gróf það í jörðu niður. Síðan tók liann strikið beint heim á næsta bæ, vakti mannskapinn upp og heimtaði að fá þegar í stað að síma til sýslumannsins, Júlíusar Havsteens. „Ha...? Ilvugn ,ansgodann egt a seija stágug?“ sagði Júlíus. „Hvagan kemugðu eiginlega?“ „Ég kem beint frá Noregi.“ „Ja, hvegt í heidasta. Biddu kjug. Vegtu kjug þagna, stágur, þangag til þú vegðug sóttug!“ sagði liann, og afgreiddi málið þar með;. KURTEISISBOÐ. Og þannig komst Pétur alla leið til Reykjavíkur, án þess að borga fyrir það krónu sjálfur. Þcgar jiangað kom - fékk liann ókeypis húsnæði hjá bandaríska hernum í mánaðartíma, og var spurður nokkurra luirteisisspurn- inga, sem hann svaraði eftir beztu getu og samvizku. Að þessum tíma liðnum var honum tjáð að hann væri laus allra mála og þar að auki beðinn að gera U.S. þá ánægju að snæða kvöldverð á Hótel Borg þá um kvöldið ásamt nokkrum fyrir- mönnum jiaðan. Þekktist Pétur boðið og fór að þvo sér i framan. En það er alltaf svo í spennandi sögum, að þegar bezt gengur fyrir söguhetjunni, þá opnast skyndi- lega hlemmur á gólfinu, og hann sturtast niður í dýpstu myrkur. Nokkrum mínútum eftir að lion- um var tilkynnt um þetta rausnar- lega átboð U.S., kom sendimaður frá Bretum og gerði lionum enn glæsilegra boð. Mundi hann kannske vilja gera þeim þá ánægju að skreppa snöggvast til London og skoða þá frægu borg? „Nei, takk. Þakka samt kærlega gott boð,“ sagði Pétur. En það átti ekki svo að verða. Velviljaður og vitur maður sagði honum að það væri eins gott fyrir hann að taka þessu boði með þökkum, jivi ann- ars mundi hann bara fluttur út í spennitreyju með 30 kílóa lóð um ökklann. Við nánari athugun sá Pétur að þetta var alveg rétt, — og þakkaði fyrir gott boð. Hann fór því af stað héðan kl. sex um kvöldið inn í Hvalfjörð, og klukkan 10 var hann lagður af stað með brezkum tundurspilli áleiðis til Scapa Flow. og þangað kom liann eftir 36 klukkutíma sjó- ferð. Það var ekki annað að sjá en að brezka stjórnin ætlaði að standa við orð sín, og meðhöndla hann eins og fáséðan heiðursgest. Þeg- ar til London kom, var honum vis- að til stofu í þokkalegu gistihúsl, og fengnir nægir vasapeningar til að gösla með whiskíglös niðri á barnum ef hann langaði til, sem stundum kom fyrir. / IIANDJÁRNUM. Og hann var eininilt niðursokk- inn í þessa vandasöinu iðju, þeg- ar sex alvopnaðir herlögreglumenn snöruðust inn úr bakdyrunum einn góðan veðurdag, umkringdu Pétur með miklum vaskleik og til- kynntu lionum að liann væri liér með tekinn höndum. Honum sýndist það ekkert vafa- mál, en spurði kureislega hvort hann mætti ekki tæma glasið sitt áður en alvaran tæki við. En það var af og frá. Honum var þegar í stað troðið inn i lokaðan herlög- reglubíl, — og svona til vonar og vara smelltu þeir á hann handjárn- um og stóðu svo sex í kring um liann alla leiðina. Hann liafði ekki hugmynd um livert farið var, en ferðinni lauk samt að lokum í þeirri svörtustu dýflissu, sem hann hafði — og hef- ur enn — séð. Nú hófust miklar yfirheyrslur Hann var dag eftir dag leiddur fyr- ir rannsóknardómara og spurður spjörunum úr. Við skulum ekki tefja við það að skýra nákvæm- lega frá því. Nóg er að vita að báðir voru stífir, báðir rifu kjaft og skömmuðust. Hvorugur vildi láta undan. Og að lokum kom þar að Pétur var leiddur út i húsagarð áarla morguns, klukkan nákvæm- lega eitt kvartér fyrir fimm, svo öll nákvæmni sé viðliöfð. Hann hafði komizt að því að á þessum tíma dagsins var það regla að inenn voru hegndir upp í gálga — ef meiningin var ,að liengja þá á annað borð. IIÓTAÐ. HENGINGU. Jú —- þetta stóð heima. Þegar hann kom út í garðinn, i fylgd með tveim soldátum með alvæpni, blasti við lionuin reisu- legur gálgi. „Jæja,“ hugsaði Pétur, „skitt með það. Ég er livort sem er orðinn leiður á þessu reksi.“ En hann var ekki næstur í röð- inni. Stuttu síöar var mannvesaliny- ur leiddur út í garðinn og að gálg- anum. Pétri var tjáð með þeirri kurteisi, sem brezkum hermönn- um er i blóð borin, að þetta væri aðeins sýnishorn af þvi, sem hann sjálfur ætti í vændum, ef hann makkaði elcki rétt. Svona væri það þegar menn væru hengdir, og svona hálsband fengi hann sjálfur daginn eftir, ef . . . „Nú, það var ekki meira með það. Þetta var allt í lagi. Mannræf- illinn var hengdur. Búið spil.“ Síðan var Pétur settur i annan klefa, þar sem ekkert var inni — ekki einu sinni stólgarmur til að sitja á. Veggir og loft voru hvít- kalkaðir og aðeins glufa uppi við loft. Þetta hlaut að vera dauða- klefinn. Jæja, alltaf sér maður eitt-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.