Vikan - 14.02.1963, Qupperneq 2
I fullri alvöru:
MERKIÐ ER
Hekla
HEKLU merkið hefur íiá upphafi
iryggt betra efni og betra snið. Amer-
ísku Twill efnin hafa reynzt bezt og
eru því eingöngu notuð hjá HEKLU.
STÓRAUKIN SALA SANNAR VINSÆLDIR VÖRUNNAR
OLL AKLÆDIN MOLVARIN • NYJUNG: OLL AKLÆDIN
MOLVARIN
Gefjunaráklæðin breytast sífellt í lifurrj
og munztrum, því ræður tízkan hverju
sinni
Eitf breytisf þó ekki, vöruvöndun verk'
smiðjunnar og gæði íslenzku ullarinnar.
Allt þetta hefur hjálpað til að gera Gefj-
unaráklæðið vinsælasta húsgagnaáklæð*
ið í landinu.
NÝJUNG
2 — VIKAN 7. tbl.
TEMPLARAHRÆÐSLA
Rétt fyrir jólin birtu dagblöðin
þá frétt, að týnst hefði gæs frá hinu
kunna viskífirma George Ballatine
& Son í Skotlandi. Þessi gæs var
liðhlaupi úr gæsahersveit fyrirtæk-
isins, sem hefur það hlutverk að
garga á dóna, sem hafa áhuga fyrir
að ná sér í viskí úr vörugeymslum
Georgs og sonar hans án þess að
borga fyrir það. Þeir feðgar óttuð-
ust, að gæsin hefði leitað athvarfs
á íslandi, og lögðu 50 sterlingspund
til höfuðs henni, ef hún fyndist.
Aftan í þessa frétt var svo hnýtt
þeirri athugasemd, að svona aligæs
gæti ekki flogið svo langa leið, sem
er milli viskíbruggs þeirra feðganna
í Skotlandi og aðdáenda þeirra hér
heima. Hún hefði sem sagt orðið
að taka sér far með einhverju vél-
knúnu mannanna farartæki, til þess
að komast til þess að garga á viskí-
þyrsta íslendinga.
Það setti hressilegan hlátur að
mörgum, þegar þeir lásu þessa
ágætu auglýsingu þeirra feðganna,
sem barst blöðunum fyrir milli-
göngu G. Helgasonar & Melsted h.f.,
og birt var á góðum stöðum á
(út)síðum blaðanna. Margir bjugg-
ust við, að fleiri myndu renna í
þessa smugu, og næstu daga myndi
t. d. birtast frétt frá Cinzano fyrir
milligöngu Alberts Guðmundssonar,
þar sem frá því yrði skýrt, að vín-
flutningaskip Cinzano hefði misst
tvær stórar vínámur útbyrðis við
Spánarstrendur, og þær hefði rekið
af stað með miklum hraða í áttina
til íslands. Skilvís finnandi væri
vinsamlega beðinn að snúa sér til
fyrirtækisins eða umboðsmanns þess
á íslandi gegn fundarlaunum.
En hvers vegna er líka verið að
banna það, að auglýsa vín á heiðar-
legan hátt — það er að segja með
launuðum auglýsingum. Líklega
stjórnast það af templarahræðsl-
unni. En ef það væri leyft, myndi
það verða til mikilla hagsbóta fyr-
ir þjóðarbúið og ekki sízt hin póli-
tízku dagblöð. Fyrir þær yrði greitt
í beinhörðum gjaldeyri, og ekki
þarf að draga í efa, að mikið yrði
auglýst. Það má telja víst, að ef
aðstandendur blaðanna sameinuðust
á þingi um tillögu þess efnis að af-
nema þetta bann, myndi það bæta
stórlega hag blaða þeirra og þá um
leið gjaldeyrisstöðu ríkisins. Ekki
þarf að óttast það, að drykkjuskap-
Framliald á bls. 47.