Vikan


Vikan - 07.03.1963, Síða 4

Vikan - 07.03.1963, Síða 4
ÞEIR VEL KLÆDDU ERU í FÖTUM FRÁ OKKUR :'¥p- ÞAÐ NÝJASTA ÞAÐ BEZTA Loðinn liebbi . . . Vonast eftir birtingu bréf mins. Með kærri kveðju. Kæri Póstur! j^n L. Ég hef svo mikið hár í nefinu og er vanur að klippa það burt, sem út úr því stendur. Ég veit ekki hvort það er rétt, því kannski er það þarna til þess að safna ryki. Ég veit, að sumir plokka það úr með rótum, en ég þori ekki að gera það. Hvað á maður að gera? Láta það spretta eða klippa það burt eða slíta það upp. Nasi. — Hefur þér aldrei dottið í hug að skera nefið af? „Athuguli“, vínur okkar á Ak- ureyri ætlar ekki að gera það endasleppt. Nú sendi hann mér persónulega eitt lítið bréf, og þakka ég honum fvrir, en ef þessi vinur okkar skyldi nú vera verð- andi Nóbelskáld, eins og ég er dauðhræddur um, finnst mér vissara að koma þessum orðum hans á prent — hver veit nema þau séú ódauðleg? Gjörið þið svo vel: Forundarleg feimni ... Póstur sæll. Það hefur löngum verið erfitt og umdeilt vandamál, livernig eigi að uppfræða börnin í kynfcrðismálum. Foreldrar eiga oft í miklum erfið- leikum út af þessu, og veigra sér margir við að uppfræða saklaus börnin í þessum málum, svo að þau verða að lcomast að ýmsu sannleiks- Morninu á götunni. ' fig ætla ekki að þessu sinni að ræða þetta vandamál frá sjónarhóli foreldranna. Það eru skólarnir, sem ég vil minnast á. Þeir hafa einnig veigamikið hlutverk með höndum hvað fræðslu í kynferðismálum snertir. Og það er líka í skólunum, scm börnin eiga að fá skynsamlega og haldgóða fræðslu í þessum mál- um. En því miður hefur raunin ver- ið sú, að blessaðir kennararnir hafa reýnt að forðast slíka fræðslu í lengstu lög. .Tafnvel í menntaskóla veigra kennararnir sér við að minn- ast á kynferðismál. En ég fæ ekki skilið jmssa forundarlegu feimni. Erlendis þykir auðvitað ekki nema sjálfsagt að stúdera slíkt, enda má sjá slíkt í erlendum kennslubókum í líffræði og öðrum fögum. Til dæm- is er greinargóður og vel ritaður kafli um kynferði og æxlunarfæri í danskri kennslubók, sem notuð er við náttúrufræðikennslu í mennta- skólum hér. Nemendum er bent á. að hollt gæti verið að lesa þennan kafla, en síðan ekki söguna meir. Þessi kjánalega feimni við slik mál verð- ur til þess að gera kynferðislífið óeðlilegt og tabú í augum ungling- anna. Ef fræðsluyfirvöldin gætu ein- faldlega horfzt í augu við 'þá stað- reynd, að kynferði og æxlun eru ekki hlutir, sem þarf að skammast sín vegna, vil ég fullyrða, að margur unglingurinn fengi heilbrigðari við- horf til kynferðislífsns en raun er á. Kennsla í kynferðismálum er bráðnauðsynleg, því að án hennar geta skapazt alls kyns kreddur og komplexar — og slíkt er langt frá ])ví að vera æskilegt. Þessi annar- legi viktorianski hugsunarháttur skólayfirvaldanna á alls ekki heima í nútímaþjóðféla'gi. Nýjustu handaskil ... Hefur sólin nokkurn tíma skinið á naflann á þér, þannig að þér hafi getað dottið í hug, að liann væri nafli heimsins? Slíka spurningu virðist mér eigi fjarri að leggja fyr- ir póststjóra Vikunnar, eftir að hann hefur gloprað upp úr sér þeirri vé- frétt, að sennilega sé ég verðandi NóbelSkáld. Ekki veit ég ])ó, hvort hann er kunnugur þeirri staðreynd, að það er sitthvað að vera Nóbel- skáld og Nóbelsverðlaunahafi. Hitt þarf enginn að vera feiminn við að segja, allra sízt á prenti, að einhver, sem er nákvæmlega eins og hann sjálfur, hafi munnr ... á pappírnum. í heiminum okkar, sem oft hefur verið kynntur i fögrum myndabók- um, ve-rður hver og einn í mann- Icgu félagi að vara sig alvarlega á því að þykjast vera of lítill eða of vitlaus. Annars er svo hætt við, að hann rati aldrei á réttar áttir í þok- unni og myrkrinu, nái aldrei réttum tónum ])egar hann er að kalla á hjálp, auminginn. Það sem hann segir, nær engum tilgangi eða áhrif- um, árangur verður enginn. Undir- málstilfinningin verður þá hreint og beint að helvítis....Hins veg- ar er gott að geyma sér hóflegt lítil- ]æti — innst í hjartanu. En um það skal enginn fá að vita, nema Sankti | Pétur. Að öllu samanlögðu virðist póststjóri Vikunnar alls ekki vera svo vitlaus. Svo margt satt og rétt segir hann, bæði um mig og aðra, í sambandi við andlcgheitin. En við- bæturnar, sem alltaf hanga aftan í sannleikanum hjá honum, koma fram sem vitleysa og ............ af því að maðurinn treystir ekki nóg á sjálfan sig. Svo er hann e. t. v. hræddur við dobbeltheimskuna á Akureyri, fyrir að birta það sem ég sendi honum um hana, ritað með handaskilum í björtu, og vill milda hazarinn, bæta ofurlítið úr ímynd- uðum syndum okkar. Vorkunn er greyi. Eigi að ósönnu hefur spekings- nafnið á mér runnið upp úr póst- stjóra. Hefir mér semsé, með þeirri andagift, sem mér er gefin, tekizt að uppgötva gegnum öldur Ijósvak-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.