Vikan


Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 21

Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 21
Þennan baðpúðurhanzka er hægt að búa sér til á ódýran og fljótlegan hátt. Efni: Dálítið af ljósleitu flóneli;rósóttu efni; plasti; ská. böndum og baðpúðri. Búið til snið eftir hendinni, með hliðsjón að meðfylgjandi mynd. Sníðið öll þrjú efnin eftir sniðinu og leggið saman. Látið rósótta efnið vera efst, þá plastið og síðan flónelið. Þræðið nú brúnirnar mjög nákvæmlega saman og brydd- ið með skábandinu. Látið dálítið af baðpúðri renna niður með plastinu, flónelsmegin. Bryddið síðan hanzkann að ofan að ofan á sama hátt og í kring. BAÐPÚÐURHANZKI Efni: Dálítið stykki af poplinefni, sem ekki þarf að strauja og stk. af plasti, frekar þunnu. 6 smellur og 6 hnappar. Byrjið á að búa til sniðið þannig: Strikið ferhyrninga á pappír, 5x5 cm hvern ferning. Teiknið sniðið eftir skýringa.rmyndinni og klippið út. Leggið sniðið á efnið og sníðið með 1 cm saumfari, einnig plastið. Leggið nú plastið á réttu efnisins og saumið 1 cm frá brún allt í kring, að fráskildu dálitlu opi á annarri hliðinni, sem bux- unum er snúið við um. Framhald á bls. 3C BUXUR Á UNGBARN FÖBRADAR MEB PLASTI HESTUR SAUM- ABUR ÚR FILTI Efni: Rautt fílt, dálítið af gulu, svörtu og hvítu fílti, 30 sm af hvítu skinni, 40 sm af gylltu leggingarbandi. SníSið hestinn úr rauða fíltinu, 2 stlí. af A og B í einu lagi. 2 sllí. af B (sem fóður innan á fæturna). 1 stk. af C, liöfuðstykkið. Sníðið öll þessi stk. úr rauða fíltinu og sniðið með 1 sm. saumafari. Sníðið nú 2 stk. af D (eyrun) án saumfars, 1 stk. af E tvöföldu (hnakkur) úr gula fíltinu, einnig án saumfars. Saumið heslinn nú saman með þéttum þræði- sporum og þynntu brodergarninu frá röngu eða réttu eftir smekk. Saumið fyrst við annað hliðarstykkið, fóðrið innan á fæt- urna og síðan höfuðstykkið frá x til x, þá seinna hliðarstykkið og skiljið eftir dálítið op ósaumað, til að snúa dýrinu við um, sé það saumað frá röngu, og lil að stoppa um. Saumið að því loknu opið saman. Yefjið upp lengju af rauða fíltinu 8x4 sm., saumið saman og festið á hestinn. Saumið eyrun föst og einnig skinnið, fyrir fax og tagl. Saumið leggingabandið utan um hnakkinn og festið liann á hestinn. Sníðið renning af gula fíltinu, 1%X8 sm. og festið sem þver- band undir hnakkinn. Klippið nú út aug- un úr hvíta filtinu, 2y22 sm. í þvermál, og þvi svarta, 1,7 X 1,3 sm. í þvermál, khppið einnig út nasir og munn og festið síðan öll ]>essi styklci á 'hausinn eins og sést á jnyndinni. VIKAN 10. tbl. 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.