Vikan


Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 45

Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 45
3. Sumarið hélt áfram að ríkja, jörð- in að anga. Pilturinn og stúlkan, sem fundu hvort annað nótt eina í mai undir bláum vorhimni í hvítu sólskini, mæla sé mót öðru hvoru. Þau verða oft að skipta um staði, því augu þorpsins eru vökul og grafreitshlið- ið slæst ekki lengur opið í kyljunni. En ástin lætur ekki að sér hæða. Þau eiga sér hreiður í hlöðu yfir- gefins býlis úti í sveitinni. Og kvöld eitt er þau voru þar, óf hann strái um fingur henni. — Hvað ertu að gera, drengur? spurði hún. Ekki annað en það hann vildi þau færu að opinbera. Þetta var málið. — 0, ekkert liggur á, sagði hún. — Ég er bara krakki ennþá. —• Þú ert ekki meiri krak'ki til að opinbera, en vera svona með mér, sagði hann. Henni hitnuðu vangar. — Svona hvernig? Ertu að glósa? — Nei. — Víst var hann að glósa? — Jæja, nefndu það þá hvaða nafni, sem þér lizt, sagði hann og hitnuðu einnig vangar. — Ég geri það. Hún ætlaði ekki að láta einn né neinn múlbinda sig. Þetta var þeirra fyrsti árekstur og liann fann að eitthvað var að bresta milli þeirra, sem áður hafði tengt þau saman. Kannske var það haustkoman. Þau sátu lengi afundin, andspænis hvort öðru í fölnuðu grasinu. Hún hafði breytzt. — Breytzt! Nei. Ef nokkuð hafði hreytzt var það hann. Það var ekki fallegt af honum að segja þetta um hana. Hún hafði ekki trúað honum til þess. En nú hafði hann sagt það og það var Ijótt. Hann mátti skamm- ast sín. Hún reitti gras og sáldraði kring- um sig, hann fló grassvörðinn með fætinum, þögull og undirleitur. Svo varð hún þögul líka og stuttu siðar hjá honum. Var hann reiður? — Reiður! Sosum útaf hverju? Rausinu í henni. Hún fór með votar hendur úr döggvuðu grasinu inná hann og það varð aftur gott á milli þeirra. 4. Svo kom haustið. Jörðin varð bleik og munaðarlaus, kaldur andblær frá hafi. Þau héldu áfram að hittast, pilt- urinn og stúlkan, en það var sjaldn- ar og stóð styttra yfir. Hún var alltaf eins og fló á skinni. Það virtist svo sem fleira sölnaði en jörðin með haustinu. Hann kenndi geigs í brjósti, geigs sem kom með fyrstu frostnóttinni og vildi ekki víkja, hvernig sem hann taldi sér trú um að allt væri eins og það ætti að vera. En svo var það kvöld eitt, liðið fast að veturnóttum, er þau höfðu hreiðrað um sig í hlöðu eyðibýlis- ins, að geigurinn varð ekki lengur umflúinn. Hún sagði: hœ — Nú fer þetta að styttast hjá okkur. Ég er á förum. Hún ætlaði á skóla. Það var að- eins vika þangað til. Það sem eftir eimdi af ilmi sum- arsins dvínaði og næðingurinn inn- um gisna veggina hrímaði. Eftir viku. Það kom sem stuna frá brjósti hans. •Tá, liað var ekki hægt að húka svona heima. Fólk varð bara skritið á því. Hún hafði tekið eftir þvi, að fólk, sem hleypti aldrei heim- Jú, mikil ósköp. Ekki ætlaði hún að sleikja úr honum. — Ætli þú hafir ekki nóg að sleikja? —• Ekki með fýlu. Þau urðu þögul eftir þessi orða- skipti, hann með hendur undir hnakka í heyinu, lnin út við vegg og beið hann tæki af skarið. En þegar hann sýndi þess engin merki, spurði hún: — Verðurðu samferða heim? — Ætli þú smitist þá ekki af fýl- unni. Hagstæðir afborgunarskilmálar 5 ára ábyrgð SNORRABRAUT 44 - SIMI 16242 draganuin, var öðru visi en annað fólk. Það var eins og það drægi hlass á eftir sér. Sagði hann annars ekkert. Hvað var sosum hægt að segja? Eitthvað skemmtilegt. Hann kunni ekki frá neinu skemmtilegu að segja. Ósköp var hann fýldur. Fýldur! Hann var ekkert fúlari en vanalega. Jú, víst var hann fúll. Hann var uppfullur af fýlu. Jæja, mátti hann þá ekki vera það. — Nei, það var engin hætta. Hann skyldi ekki liafa áhyggjur útaf þvi. Þegar þau komu út, mætti þeim strákastóðið. Viktor var þar fremstur i flokki. — Var gaman? Þau reyndu að koma sér undan, en voru umki-ingd, æpandi stóðinu. — Var það gott? Hann reynþi að brjótast gegnum þvöguna, barði frá sér, en enginn iná við margnum. Hann var ofur- liði borinn, örmagnaðist og baðst vægðar. Andlit þeirra voru grimm og ómennsk i blátæru kvöldinu. Hann lá lengi eftir að þeir voru farnir í héluðu grasinu og hirti ekki um að gyrða sig. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi. Ég er alæta. Framhald af bls. 8. lagi, og segir ekkert af þvi, fyrr en ég kem til Hollands nokkru siðar. Ég var þá á ferð um litið og af- skekkt þorp inni i miðju landi, þegar ég sé fornbókaverzlun i göt- unni, og það er sjaldan að ég geng framhjá sliku — og fór því inn. Nei, þeir voru hárvissir um það að þeir áttu engar íslenzkar bækur, né um islenzk efni. En þrátt fyrir það fór ég nú samt að grúska í hillunum. Eftir augnablik sá ég þar bók, — Háttatal Snorra Sturlusonar, með eiginhandar áletrun Möbiusar til dr. Wimmer, annað bindi, og i sams konar bandi og ásigkomulagi og fyrra bindið, sem ég fékk í Kaupmannahöfn. Þessar tvær bæk- urur áttu greinilega saman — og hafa verið saman áður — en ein- hvern veginn hafa leiðir þeirra skilizt þar til að tilviljunin réð þvi að ég rakst á þær sitt í hvorum stað þúsund kílómetra hvora frá annarri.“ — Þú segist leggja þig eftir árit- uðum bókum. Attu mikið af sliku? „Já, það er töluvert. Ég á ýmsar áletranir merkra höfunda, eins og t. d. Jóns Sigurðssonar, Benedikts Gröndal, eitthvað af Fjölnismönn- um og margra nútima höfunda, sem hafa sumir hverjir þá stilað áletr- unina beint til min. Það þykir mér vænzt um. Hér á ég t. d. þýðingu Karls ísfeld af Kalevala kvæðun- um finnsku, sem gefin voru út sérstaklega i tilefni af komu Kekkonen Finnlandsforseta hingað til lands. Þeir hafa báðir skrifað nafnið sitt hérna á saurblaðið og dagsetningu.“ — Mér er sagt að þú eigir eitt stærsta safn tölusettra bóka, sem til sé hér á landi. Er það rétt? „Mér þykir það liklegt. Ég hef sérstaklega haft áhuga á tölusett- um bókum, og þvi lægri sem talan er, þvi betra. Ég á t. d. nær 50 bækur tölusettar nr. l.“ — Hvaða bók álitur þú verð- mesta í safninu þínu? „Ef miðað er við alheimsmark- að, þá er það sennilega þetta litla kver hérna, sem ég keypti í Noregi fyrir nokkrum árum fyrir 850 norskar krónur. Það er ferðabók Zeni-bræðra norður í höf árið 1558, i góðu ástandi, og i henni er þetta landakort eða uppdráttur af Norðurlöndunum, íslandi, Græn- landi og ýmsum furðulöndum, sem þeir þykjast hafa fundið.“ — Þetta er ekkert stærra en þokkaleg vasabók. Og af hverju álítur þú hana svona verðmæta? „Meðal anars vegna þess að bók- salinn, sem seldi mér hana, skrif- aði mér svo bréf þrem árum seinna og sá þá eftir sölunni. Spurði hvort ég vildi selja hana aftur. Þá hafði nefnilega alveg sams konar bók ver- VXKAN 10. tbL - 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.