Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 41
gang. Rafmagnssængin min er bil-
uð, og ég er bara að reyna að fá
liita á hana aftur.
Tom reis upp við dogg.
—■ Það logar, sagði bann.
-— Já, rétt sem stendur, svaraði
hún.
Tom lagðist aftur út af og sneri
í hana baki. Er liann að líta á
klukkuna? hugsaði Jenny. Hún var
örg út í þessa klukku. Hún var
sjálflýsandi, svo maður gat alltaf
séð, hvað það var stutt þangað til
maður þurfti að fara á fætur. Þetta
var miskunnarlaus klukka. Hún
gat ekki einu sinni tikkað eins og
aðrur klukkur.
Nú var henni iieldur hlýrra, en
engu glaðari en áður. Tom bauð
henni ekki einu sinni góða nótt.
Það var ljótt af honum að segja
ekki góða nótt. Þótt vikan hefði
verið þreytandi fyrir hann. Það
snjóaði, og bann festi sig i skafli,
svo hann varð að skilja bilinn eft-
ir og vaða fimm sex kilómetra i
klofsnjó, eða meira. Þessi sami
snjór hélt börnunum inni. Reynd-
ar hefðu þau hvort sem er orðið að
vera inni, vegna þess að þau voru
lumpin. En hann hélt, að það væri
létt verk að vera innilokuð ineð
tvö börn i heila viku — börn, sem
höfðu einhvern dularfullan tuttug-
ustu aldar sjúkdóm, sem liélt þeim
innanhúss, en ekki i rúminu. í
gamla daga liefðu þau verið látin
liggja i rúminu. Náttúrlega er ég
þakklát fyirr pensilínið, hugsaði
hún. Ég vil ekki, að börnin min
séu mikið lasin. En heila viku
innandyra! Og þrjú börn, sem öll
böguðu sér eins og ótamdir ó-
knyttaálfar!
Tom kyssti liana ekki, áður en
hann fór að sofa. Auðvitað ekki.
Óttalegur, vanþakklátur fýlupoki
gaf hún vcrið. Veslings Tom var
þreyttur, og hafði nóg á sinni
könnu. Af hverju sýndi hún hon-
um ekki meðaumkun? Hann kom
heim um belgina, þrátt fyrir snjó
og ófærð, og fengi svo áreiðnnlega
fimmtíu dollara sekt fyrir að skilja
bílinn eftir á þjóðveginum. Svona
var tuttugasta öldin. Menn verða
að vinna. Til þess að komast að og
frá vinnu verða menn að aka fail.
Svo kemur bylur. Svo koma skafl-
ar. Komast litlir bilar gegnum
skafla? Varla. Er nokkur nágrann-
anna með traktor eða jafnvel hesta-
eyki, sem gæti dregið þilinn í
gang? Varla. Jæja, þá er það bara
sekt.
Jenny skalf. Það var slokknað á
hitalampanum einu sinni enn. Ætli
það gæti verið slæmt samband?
Kannske klónni liefði ekki verið
stungið almennilega í innstunguna.
Hún fann leiðsluna á gólfinu og
strauk eftir henni að klónni. Jú,
hún var vel föst. Hún dró hana út
og stakk henni í aftur. Ekkert lag-
aðist.
— Hvern fjandann ertu að gera?
— Hitarinn virkar ekki, svaraði
Jenny. — Ég er bara að reyna að
finna, hvað en að. Ilún dró klóna út
aftur og rak hana á kaf í innstung-
una.
— Hann hlýtur að vera i lagi,
sagði Tom. — Ljósið logar. Af
hverju hættirðu ekki þessum gaura-
gangi og ferð að sofa?
-— Það er alltaf að slokkna.
Tom sagði ekkert.
Ég fer i taugarnar á honum, bugs-
aði Jenny. Svo lierti hún upp hug-
ann:
— Góða nótt.
— Góða nótt.
Aftur varð þögn. Svo djúp og
þvingandi þögn, að Jenny fannst
hún vera að kafna.
Hún hreyfði sig aðeins til þess
að vefja snæginni betur um sig.
Hún var hráköld, nema þar sem
hún hafði hlýnað út frá Jenny.
Hún andvarpaði. Kannske var
ekki nógu gott samband, þar sem
leiðslan var sett í samband við
sængina. En nú skal ég ekki vekja
Tom aftur, hugsaði hún. Ég þoli
ekki tóninn í honum, svona óper-
sónulegan —■ önugan — svona
skilnaðarlegan.
Hún renndi sér fram úr og lagð-
ist á fjóra fætur. Svo skreið lhin,
lúshægt og hljóðlega, i áttina að
fótagaflinuin.
—Nei, hættu nú alveg! Hvað i
ósköpunum ertu nú að gera? Tom
kveikti á náttborðslampanum sin-
um.
—■ Reyna leiðsluna, sagði hún, en
þorði svo ekki að treysta röddinni.
Hún ætlaði ekki að fara að gráta
núna. Nei, alls ekki!
Tom settist fram á og varpaði
öndinni óeðlilega lengi og mæðu-
Iega. — Komdu þér aftur þangað
sem þú átt að vera, áður en þú
verður innkulsa.
Jenny skreiddist aftur upp í
rúmið. — Þetta cr allt í lagi, nú
logar, sagði bún mjóróma.
Tom slökkti á lampanum sínum
og stjakaði við Jenny. — Færðu
þig, skipaði hann. ■— Ég er búinn
að fá nóg af þessu.
Jenny hlýddi þögul. Tom lagðist
upp í til hennar og lá grafkyrr án
þess að segja nokkuð. Hvað var
bann að vilja upp i til hennar, úr
því hann ætlaði ekki einu sinni að
rétta henni sáttaliönd?
Gleðin, sem fyllti liana stundar-
korn, þegar Tom kom til hennar,
þvarr óðum. Hún starði á sængur-
ljósið. Það logaði nokkra stund.
Svo hvarf það. Svo kom það aftur.
Þetta var eins og auga, scm er
deplað. Ég hef aldrei séð stríðnis-
legra auga, hugsaði hún.
Svo hvarf ljósið, og kom ekki
aftur.
Hún mjakaði sér nær Tom.
— Mér er kalt, sagði hún. — Sraum-
urinn er farinn aftur. Svo bætti
hún við með sjálfri sér: Auk þess
hef ég fullan rétt til jiess að hlýja
mér á þér, hvort sem það er
straumur á sænginni eða ekki.
Tom sneri sér að henni og tók
utan um hana. — Mig varðar ekkert
um þcnnan bölvaða straum, sagði
hann, og kyssti hana frekjulega.
— Þú talar of mikið!
í gamla daga gat fólk ekki sofn-
að, fyrr en það liafði samið frið.
Ekki í sama rúmi. Það er heldur
ekki hægt nú til dags.
★
NILFISK
NILFISK
bónvélar
eins og
NILFISK
ryksugur:
Afburða
verkfæri
í sérflokki.
verndar gólfteppin —
því að hún heíur nægilegt sogafl
og afburða teppasogstykki, sem
rennur mjúklega yfir teppin, kemst
undir lægstu húsgögn og DJÚP-
IIREINSAR jafnvel þykkustu gólf-
teppi fullkomlega, þ. e. nær upp
sandi, smásteinum, glersalla og
öðrum grófum óhreinindum, sem
berast inn, setjast djúpt í teppin,
renna til, þegar gengið er á þeim,
sarga undirvefnaðinn og slíta
þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki tepp-
unum, þar sem hún hvorki bankar
né burstar, en hreinsar aðeins
með rétt gerðu sogstykki og
nægilegu sogafli.
Aðrir NILFISK kostir
meðal annars:
* Stillanlegt sogafl * Hljóður
gangur * Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki, áhaldahilla og
hjólagrind með gúmmíhjólum
fylgja, auk venjulegra fylgihluta
* Bónkústur, hárþurrka, málning-
arsprauta, fatabursti o. m. fl.
fæst aukalega.
* 100% hreinleg og auðveld tæm-
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum tvo hreinlegustu ryk-
geynia, sem þekkjast í ryksugum,
málmfötu eða pappírspoka.
* Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa verið notaðar hér-
Iendis jafn lengi og rafmagnið, og
eru flestar í notltun cnn, þótt
ótrúlegt sc.
* Fullkomna varahluta- og við-
gerðaþjónustu önnumst við.
Hagstætt verð
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum um alit land.
ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA:
ATLAS kæliskápar og frystikistur — FERM þvottavélar, þeytivindur og
strauvélar — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eldhúsviftur — GRILLFIX
grillofnar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggshnífar
— FLAMINGO straujárn, úðarar og snúruhaldarar — Hraðsuðukatlar,
vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, straubretti o. fl.
FÖIVIX
O. KORNERUP-HANSEN
Sími 1-26-06 — Reykjavík — Suðurgötu 10.
---------------—-------------KIippiS hér -——------------------------— •
Undirrit..... óskar nánari upplýsinga (mynd, verð, greiðsluskil-
málar) um:
Nafn og heimilisfang:
VIKAN 10. tbl. —