Vikan


Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 42

Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 42
TVEGGJA MANNA SVKl\SÓF1 FRÁ PLASTM0BLER A/S.. ALLT I SENN: STÓFUSÓFI — SVEFNSÓFI — HEIMILISPRÝÐI. TRÉSMIÐJAN VÍÐIR H.F. Liðsveit myrkursins. Framhald af blsl7. Greinin endaði á þessa leið: Steinsteypa getur staðizt samþjöpp- un, en þolir illa útvíkkun. Wallis rak augun í þessa staðreynd. Hon- um varð hugsað til flóðgarðanna miklu. Ef höggbylgjurnar áttu að geta náð tilætluðum árangri, varð að senda þær gegnum fljótandi efni eða fast. Vitaskuld er ekki unnt að láta stóra sprengju grafa sig djúpt inn í þykkan vegg af járn- bentri steinsteypu. En ef takast mætti að sökkva henni djúpt niður í eitthvert laus- legt eða fljótandi efni, áður en hún væri sprengd? Þá hlytu að myndast höggbylgjur, sem einhverja þýðingu hefðu. Sömuleiðis • yrðu sjálfar sprengingarnar kraftmeiri. Hvernig er með vatn? Flóðgarðar eru byggðir úti í vatni! Höggbylgj- ur myndu ef til vill ekki berast jafn vel gegnum vatn og jarðveg, en að minnsta kosti yrðu þær þó langtum sterkari en ef þær færu gegnum loftið. Vegna viðnámsins í vatninu hlaut að nást sterkari sprenging og miklu þyngri höggbylgja. Wallis hafði að nokkru leyti fundið lausnina á viðfangsefni sínu. HANN tók að reikna út verkan- irnar frá fræðilegu sjónarmiði og komst að þeirri niðurstöðu, að tíu lesta sprengja, er sprengd væri fast við flóðgarð á miklu dýpi, hlyti að rjúfa þrjátíu metra breitt skarð í vegginn. En Wallis rak ekki upp neitt siguróp að svo komnu. Það var engin sprengjuflugvél til í víðri veröld, er flutt gæti fimm lesta sprengju til árásar á Þýzka- land, hvað þá þyngri. Hann tók fram pappír og mæli- tæki á ný. Nokkrum vikum síðar vissi Walis að hægt var að smíða sprengjuflugvél, er vó 50 lestir og gat flutt tíu lesta sprengju 6500 kílómetra vegalengd með 500 kíló- metra hraða á klukkustund. Hann hripaði einfalt uppkast að henni. En allt voru þetta hugmyndir ein- ar, enn sem komið var, og um þetta leyti hafði landher, flugher og floti engan frið fyrir óraseggjum rríeð allskyns uppástungur, er þeir töldu að valda myndu byltingu á sviði tækninnar. Nú reið á því fyrir Wallis, að fá vakið áhuga réttra aðila fyrir hans hugmynd og fá þá til að fallast á hana. Wallis sat vikum saman við að rita niður fyrirætlanir sínar og lagði þær síðan fyrir menn sem hann þekkti í flughernum og ráðu- neyti flugvélaframleiðslunnar. Þett? var vorið 1940, — þegar Dunkirk harmsagan gerðist. Aldrei hafði England haft meiri þörf fyrir nýtt og áhrifamikið vopn en nú Segja mátti að hinir háu herrar brygðust við hugmyndum Walliss með þrennu móti: Nokkrir sýndu honum sæmilegan áhuga, sumir hristu höfuðið í skilningsleysi, og aðrir fylgdu honum til dyra með vorkennandi brosi. Einn maður skildi þó tillöguna og studdi hana svo sem hann mátti. Það var Arthur Tedder herforingi, hægur maður og geðfelldur, er reykti pípu sína og var sívinnandi við skrifborð sitt í aðalstöðvum flughersins í Whitehall. En um þess- ar mundir gætti áhrifa hans ekki svo sem síðar varð, þegar hann gerðist önnur hönd Eisenhowers við innrásina og síðar hershöfðingi og yfirmaður flugráðsins. Tedder vakti athygli ýmissa háttsettra em- bættismanna á sprengju Wallisar. En sýnilegur árangur þess varð sá einn, að þeir vísuðu henni frá sér með kurteislegu kæruleysi, — sem að jafnaði er svar önnum kafinna embættismanna við uppgötvunum sem varla teljast eiga stoð í veru- leikanum. Þá gerðist það allt í einu hinn 19. júlí — jafn óvænt og elding úr heiðskíru lofti — að Wallis fékk boð um að koma sem skjótast til fundar við Beaverbrook lávarð, sem þá var ráðherra flugvélaframleiðsl- unnar. Ef „bifurinn“ hafði fengið áhuga fyrir hugmyndinni, gat allt mögulegt gerzt. En ekki var fyrsta viðtalíð við þessa eldflaug í mannsmynd sér- lega uppörvandi. „Bifurinn“ vildi senda hann til Ameríku þeirra er- inda, að kynna sér hversu langt væri komið smíði á þrýstiloftsklef- um til flugvéla, í háloftaflugi. Hann fleygði blaðúrklippu til Wallisar og bað hann koma aftur að morgni. Wallis reyndi að leiða samræðum- ar að nýju sprengjunni, en Beaver- brook þvertók fyrir það. Wallis hafði gert allmiklar til- raunir með þrýstiloftsklefa og vissi allt um verkanir þeirra og notkun. Daginn eftir skýrði hann ráðherr- anum frá því, að hann hefði í hönd- um allar nauðsynlegar upplýsingar, og engin þörf væri á að senda hann til Ameríku. „Gott og vel,“ sagði Beaverbrook og leit til hans. „Hvað var það þá, sem þér vilduð segja um nýja sprengju?“ Wallis skýrði fyrir honum hug- mynd sína í svo ljósu og stuttu máli sem hann gat, án þess að falla fyrir þeirri freistingu vísindamanns- ins, að dvelja við tæknileg smáat- riði. Beaverbrook gerðist forvitinn. „Þér vitið, að hergagnaskortur háir oss mjög,“ mælti hann. „Allt sem þér segið eru aðeins hugmynd- ir. Ef við tökum að okkur fram- kvæmd á tillögum yðar, verðum við að stöðva vinnu við aðra áríð- andi hluti. Og hver ábyrgist, að þetta verði ekki allt saman til ónýtis?" „Það verður það ekki,“ svaraði Wallis rólega. „Tekur það ekki of langan tíma?“ „Við getum farið stig af stigi, herra,“ anzaði Wallis. Ég hefi upp- drætti að tveggja lesta og sex lesta sprengjum, er starfa eftir sömu meginreglu og tíu lesta. Wellington- vélarnar geta hæglega borið tveggja lesta sprengjurnar. Nýju fjögurra hreyfla vélarnar, sem nú er verið að framleiða, geta borið sex lesta sprengjur. Þær verða tilbúnar eftir eitt ár.“ „Ég skal bera málið undir sér- fræðinga mína,“ mælti Beaverbook. „En ef það hefur í för með sér mjög miklar breytingar innan hergagna- iðnaðarins, þurfið þér ekki að gera yður miklar vonir.“ Wallis fór aftur til Weybridge og eyddi nokkrum dögum í að gera uppköst sína einfaldari. Um hríð virtist ekkert gerast markvert, en bak við tjöldin hafði þó sigurverk stjórnarinnar verið sett á hreyfingu. Eitt og annað af því sem fram fór, barst til eyrna Wallis, einkum fyrir milligöngu hins árvakra samherja hans, Arthurs Tedder, og var svo helzt að heyra sem uppástungan hefði vakið athygli. Svo var Tedder skipaður yfirmað- ur brezka flughersins í Austurlönd- um nær, og við það missti Wallis bezta stuðningsmann sinn í hinum helgu sölum stjórnarstöðvanna. Nokkrum dögum síðar gerði for- stjóri Wicker-verksmiðjanna boð eftir honum. „Wallis, ég hefi stungið upp á því, að tilraun sé gerð með hugmynd yðar,“ mælti forstjórinn. „En flug- ráðið er ekki hrifið af kenningunni um stórar sprengjur. Þeir halda sig fast við dreifivarpið." „Ætli þeir skilji annars útreikn- inga mína, herra?“ Æðsti yfirmaður Walliss hliðraði sér hjá að ræða um hvað hið háa flugráð skildi eða ekki skildi. Svar- aði kænlega að hann efaðist um að flugráðsforingjarnir hefðu gefið sér tíma til að kynna sér alla útreikn- ingana. Wallis gramdist, en fylltist enn meiri þráa. Morguninn eftir settist hann við að skrifa grein um sprengjuhugmynd sína. Nefndist hún „Nokkur drög til nýrrar að- ferðar við árásir á Möndulveldin". Ein þessara óljósu fyrirsagna, sem vísindamönnum eru tíðum svo tamar. Hóf hann mál sitt með því að lýsa þeirri skoðun, að hægt væri að lama andstæðinginn með því að eyðileggja orkulindir hans. Síðan ræddi hann um stöðvar þær, er helzt kæmu til greina og hélt síðan áfram að segja nánar frá höggbylgj- um, sprengiverkunum, eyðingar- orku, miðunartækni og fleiru. Grein- inni fylgdu margar blaðsíður af bog- línum, formúlum og líkingum. Gerði Wallis sér far um að lýsa hugmynd sinni lið fyrir lið, á svo glöggan og einfaldan hátt, að jafnvel al- menningur gæti fylgzt með henni í einu og öllu, ef venjuleg stærð- 42 - VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.