Vikan


Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 18

Vikan - 07.03.1963, Blaðsíða 18
fO. Framhaldssaga eftir VICKI BAUM „Nei.“ „Alls ekki?“ „Helzt ekki.“ Hann hikaði við eitt andartak. Á stundum gat maður eyðilagt allt með vanhugsaðri ágengni. Hann reis á fætur, vafði hana örmum og kyssti hana. Augu hennar voru blárri og skærari en nokkru sinni fyrr, en ótti í tilliti hennar. „Flýttu þér þá elskan," sagði hann. Hún greip allt í einu um hönd honum, kyssti hann í lófann og lok- aði honum síðan, eins og hún hefði gefið honum einhvern dýrgrip. Hann fann varir hennar enn brenna þar á hörundi sínu, þegar hann stóð við símann frammi í setustofunni og hringdi til Marion. Fyrst Evelyn var komin, varð hann að aflýsa stefnumóti sínu við hana í kvöld. „Allohallo," svaraði rödd hennar í símann. „Joujou? Ég hef ekki séð þig í heila eilífð. Þú mátt trúa því, að ég bíð kvöldsins og næturinnar með óþreyju . . .“ ,,Elskan,“ sagði hann lágt. „Það kom dálítið fyrir .. „Mon dieu,“ sagði hún óttaslegin. „Vonandi ekki neitt alvarlegt ...“ „Alvarlegt og alvarlegt ekki. Kon- an mín er komin. Það verður því ekekrt af að ég komi til þín í kvöld. Við leggjum af stað heimleiðis snemma í fyrramálið, svo að ég get ekki einu sinni kvatt þig ...“ Marion dró svarið andartak. En hún tók þessu hressilega. „Það er ánægjulegt fyrir þig, að konan þín skuli vera komin,“ sagði hún glaðlega. „Hvenær fer skipið? Með hvaða lest farið þið? Hvenær kemurðu aftur til Evrópu? Sendu mér skeyti þegar þú kemur?“ Frank hvíslaði nokkur ástúðleg orð í talnemann. Hann var óþolin- móður. Dyrnar að baðherberginu opnuðust, Evelyn stóð á þröskuld- inum og leit spyrjandi á hann. Hann þagnaði og lét Marion um að tala. „Vertu sæll, mon petit; það var yndislegt að eiga þessar stundir með þér. Skemmtu þér vel og góða ferð!“ Hann heyrði verla síðustu orðin. Hugur hans var allur hjá Evelyn. Hún hafði breyzt í baðinu. Það var meiri Ijómi yfir henni. Þegar hann kyssti hana, fann hann bragð af varalit. Einmitt það, hugsaði hann. Þetta var nýtt. Og allt í einu varð hon- um hugsað til eiginmanns hennar, einmitt þegar sízt skyldi, og hann sleppti henni. „Nú er kominn tími til að fá sér eitthvað að borða,“ sagði hann og leiddi hana út úr íbúðinni. Forstöðukonan stöðvaði þau niðri í anddyrinu og rétti Frank sím- skeyti. Frá Lundúnum — frá Pearl „Corsar vill fá að kynnast þér sem fyrst ..Frank starði á skeytið og skildi fyrst í stað ekki meininguna. Svo rann Ijós upp fyrir honum; Corsar — það var hundurinn, sem hún var að kaupa, hugsaði hann og gat ekki varizt brosi. Evelyn stóð við hlið honum og virti hann fyrir sér með alvörusvip. „Viðskipti,“ varð honum að orði. „Allar konur dekra við þig,“ sagði hún allt í einu. Hann starði undr- andi á hana. Hún hafði verið blíð- ari og viðkvæmari í Berlín. Það var eins og það væri ekki einungis svipur hennar heldur og allur henn- ar persónuleiki, sem varaliturinn hafði breytt. „Afbrýðisöm?" spurði hann glettn- islega. Hún svaraði ekki. Hann kastaði símskeytinu í næstu pappírskörfu. Eins og allir Bandaríkjamenn, sem dveljast í París lengri eða skemmri tíma, var Frank stoltur af því að vera kunnugur á matsölu- stað, sem ekki var sóttur af Banda- ríkjamönnum. Hann leiddi Evelyn til sætis á löngum sófa í „Ches Sousesett“ og athugaði matseðilinn af gaumgæfni. Talaði alltof mikið og alltof hratt; fann það sjálfur. Það var ekki laust við að hann væri í dálitlu uppnámi, auðvitað var það hlægilegt, en honum fannst þetta allt alls ekki eins auðvelt viðfangs, og hann hafði gert ráð fyrir. Vitanlega talaði það sínu máli, að Evelyn skildi tafarlaust hafa bruðgið við og komið til Parísar, eftir að hann talaði við hana í sím- anum. En um leið var hún svo sak- laus og viðkvæm, að það vakti hjá honum feimni. Honum gat alls ekki fundist sem um venjulegt ástar- ævintýri væri að ræða — öllu frem- ur, sem þau væru að hefja sína brúðkaupsferð. Evelyn dreypti á víninu. Brosti. Hún virtist ekki hið minnsta utan við sig. Ég er heimskingi, hugsaði hann. Sennilega skreppa þessar heiðvirðu Berlínarfrúr til Parísar, svona við og við. Hann leitaði handar hennar undir borðinu og þrýsti hana. Hún bar giftingarhringinn, hendi henn- ar var köld enn og titraði lítið eitt. Evelyn var farin að tala frönsku við hann og hann kunni því vel. Allt í einu kom karlmaður nokk- ur, auðsjáanlega þýzkur, fram úr einu skotinu og heilsaði Evelyn. Frank virti hann fyrir sér ósjálf- rátt. Hann var ljósskolhærður, hárið þunnt, bar nefklemmugleraugu og andlitið var óprýtt þrem, viður- styggilegum örum. Hann talaði hátt og brá fyrir sig ótal kokhljóðum, Evelyn svaraði orðum hans, en svip- ur hennar lýsti ótta og kvíða. Þegar sá þýzki lét þau loks ein, virtist hana þrjóta allan mátt. Frank greiddi matinn og leiddi hana út á gangstéttina. „Hvað nú?“ spurði hann óákveð- inn. „Já, hvað nú?“ endurtók hún. „Þú veizt vel hvað allir elskend- ur í París hafa fyrir stafni um þetta leyti dagsins," spurði hann umbúða- laust. Hún roðnaði lítið eitt. Kannski hefur hún alltaf verið að bíða eftir þessu, hugsaði hann. „Já, ég veit það. Tjöld dregin fyrir glugga, og allt þessháttar,“ sagði hún. „Kannt þú vel slíkum ástaleik um miðjan dag?“ Kanntu vel .. . það leit út fyrir að hún væri ekki eins óreynd og hún leit út fyr- ir. Hún talaði um ástaleik um miðj- an dag eins og reyndur smekkmað- ur á vín talar um vínárganga. Frank þrýsti höndinni undir arm henni og dró hana að sér. „Ég er ekki af þeirri gerðinni," sagði hún. Hann vissi ekki hvað hann átti að halda. „Af hvaða gerð ertu ... eða öllu frekar, af hvaða gerð ertu ekki?“ spurði hann. Nú fór hann að verða óþolinmóður. Við förum til Bois, hugsaði hann; það er venjulega til að auka ástina. Það var farið að rigna. Evelyn horfði þegjandi út um bílrúðurnar, droparnir buldu á þekjunni og Frank var allt í einu aftur farinn að hugsa um appelsínusamninginn. Það yrði tap á þessari ferð hjá honum, þegar ferðákostnaður og allt það var tekið með í reikninginn, en nú hafði hann náð föstum samningum og hann hét því, að hann skyldi vinna upp tapið þegar til kæmi. Bíllinn nam staðar og Frank átt- aði sig. Það var stytt upp að vísu, en droparnir drupu af laufinu. Frank smeygði höndinni undir arm Evelyn og fingur þeirra gripu sam- an, þegar þau leiddust eftir blautri mölinni upp að Pré Catelan. Þetta kom allt af sjálfu sér — það var að vísu dálítið þreytandi, að sömu hlutirnir skyldu ævinlega endurtaka sig hérna, þegar ástin var annars vegar, en hins vegar var það líka nokkur kostur að geta alltaf treyst fyrirfram ákveðinni áætlun — það gerði manni að vissu leyti auðveld- ara fyrir. En Frank var óþolinmóð- ur og fannst það hlægilegt að vera eyða tímanum í þessum regndrjúp- andi skógarlundi. Þau tóku sér sæti á blautum járnstólum og hann bað um heitt súkkulaði handa Evelyn. Á morgun mundi þessu óafturkall- anlega lokið. Því fór verr, hugsaði hann enn. Ef hann hefði átt lengri tíma fyrir höndum með Evelyn, þá var ekki að vita nema eitthvað fag- urt og eftirminnilegt hefði gerzt þeirra á milli. Það var furðulegt hve hvarmhár hennar voru ljósgullin, hugsaði hann. „Þú ert einkennilega framandleg- ur maður,“ greip hún skyndilega fram í hugsanir hans. Hún virti hann fyrir sér með náinni athygli og hallaði sér nær honum. Andlit hennar var nálægt andliti hans, og hörund hennar minnti á skyggðan málm, þegar hann horfði á það svona nærri sér. „Segðu mér eitthvað um sjálfan þig,“ mælti hún. „Hvaðan þú kem- ur og hvert þú ferð. Og um hvað þú ert að hugsa; ég veit ekki hið minnsta um þig.“ - VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.