Vikan


Vikan - 07.03.1963, Side 6

Vikan - 07.03.1963, Side 6
Þorsteinn Jósepsson blaðamaður á geysistórt og verðmætt safn íslenzkra bóka, og erlendra, sem fjalla um ísland. G. K. segir hér frá viðræðum þeirra Þorsteins eina kvöldstund um safnið. Þa?S er annars dálítið undarlegt, þetta með söfnunarástríðuna hjá mönnum. í raun- inni eru það allfjestir menn, sem safna einhverju og hafa af því misjafnlega mikla ánægju. Það fer að sjálfsögðu mest eftir skapgerðareinkennum hvers manns hvað það er, sem liann safnar, og auðvitað eitt- hvað lika eftir pyngjunni. Það væri t. d. aldeilis lirein fávizka fyrir íslenzkan verka- mann að ætla sér að safna Kádiljákum, hversu mikið sem hann langar til þess. Hann verður að láta arabísku olíukóngana um það, en þess i stað getur hann hæglega safnað servíettum, — eða jafnvel bara skuld- um, eins og raunar margir gera. ÉG ER Lítill hluti af bðkasafni Þorsteins Jósepssonar. Þessi mynd er tekin úr handriti, sem Þ. J. komst yfir og lýsir íslandsferð enskra laxveiðimanna seint á 19. öld. Þelr voru mest í Laxá í Þingeyjarsýslu og færðu dagbók, sem fyllir tvö ailstór bindl. f þessum handritabindum er fjöldi hagan- lega gerðra teikninga jafnt af landslagi sem úr þjóðlífi og margar þeirra listilega gerðar. Sýnir efri myndin reiðmann, sem iendir á reiðskjóta sínum milli tveggja þúfna, en hin neðri dauðadrukkin lax- veiðimann, sem ekki er lengur fær til að sitja á klárnum. g - VIKAN 10. tbL IpllplÍlpp: Já, það er margt, sem mannskepnan safnar. Sumir safna frimerkjum, aðrir eld- spýtustokkum, flöskumiðum, hljómplötum, málverkum, steinum, þurrkuðum blómum, skeljum og kuðungum, merkjum, bréfhaus- um, Vikunni — eða bara pcningum. Og það cr nú eiginlega ekkert „bara“ við það, því mörgum hefíir reynzt það síðasttalda ærið erfitt. Þorsteinn Jósepsson blaðamaður og ljós- myndari safnar bókum, — og það cr heldur ekkert „bara“ við það, þvi að bókum Þor- steins hefur verið töluvert erfiðara að safna heldur en beinhörðum peningum. Hann hefur fyrst þurft að safna peningum, sem raunar eru alls staðar til ef maður getur Framhald á bls. 8.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.