Vikan - 07.03.1963, Síða 40
Nivea inniheldur
Eucerit — efni
skylt húSlitunni
— frá því stafa
hin góðu áhrif
þess.
ÉG NOTA NIVEA EN ÞÉR?
Núið Nivea á andlitið að kveldi: Þá
verður morgunraksturinn þægilegri
og auðveldari. Og eftir raksturinn
hefur Nivea dásamieg áhrif.
GOTT ER AÐ TIL ER NIVEA!
Látið NIVEA fullkomna raksturinn.
Ljónin leika sér.
Framhaid af bls. 11.
Hér er eitt „skeyti“:
Herrakvöld Njarðar, —
heill sé því.
Hvílíkur munur, að eiga frí.
Hér er frjálsmannlegt allt,
hér er andi og vit
og ekki neitt helvítis eftirlit.
Enginn er hér, sem yglir brá,
ef maður fær sér meir en þrjá.
Að vera nú loksins laus við frú,
með „látt' ekki svona“ og hvað
er nú?“.
Og hrollköldu orðin, með
hrokahreim:
„Ég held það sé bezt, að við
förum heim.“
Að þurf' ekk‘ að þjarka og frið'ana.
Og þurf‘ ekk‘ að dansa við ‘ana.
Nei, hér er nú betur herrakvöld,
því hér hefur Mortens og stjórn
hans völd,
íylli nú hver að frjálsum sið
sinn fullstóra-, litla- og meðalkvið,
dátt skal hér vera, og drukkið í ró
Dungal og Reinhart! Étið nóg!
Mörg verður skemmtan við
glasaglaum,
gefið nú andanum lausan taum,
hversdagsins drungi hverfi brott,
það hiklaust er þjóðfélagslega gott,
Bakkusar veigar streymi strítt,
(stjórnandinn á að drekka frítt!)
Svo mælir og ákveður ykkar boss,
Umdæmisstjórinn,
Hilmar Foss.
Af öðrum skeytum má nefna:
— VIKAN 10. tbl.
Borgið ekki of mikið fyrir sjúss-
ana. Scotland Yard.
Jólaskeytið til Alfreðs Elíassonar,
sem kom of seint vegna mikilla
anna sendanda:
Gleðileg jól. Vagga frelsarans
var IATA. SAS.
Síðar um kvöldið kom kvenfólk-
ið, eins og áður er sagt frá, en það
voru nokkrar ungar stúlkur frá
Tízkuskólanum, sem sýndu herrun-
um Carabella náttkjóla, og síðan
hófst mikið uppboð — á kjólunum
—• en andvirðið rennur til líknar-
starfa, því að kjörorð Líonsmanna
er þetta, segir Emanúel Morthens
formaður klúbbsins: „Að verða að
liði“, og í reglum þeirra stendur
m. a. að sannur Líons-maður eigi:
,,að telja vinfengi takmark, en ekki
leið að marki. Að telja að sönn vin-
átta byggist ekki á greiða annars
aðila við hinn, heldur að sönn vin-
átta geri engar kröfur, — og að
þiggja greiða í sama anda og hann
er í té látinn".
Hákarlinn ilmar.
Framhald af bls. 20.
sannfæra sjálfan sig um gæði há-
karlsins, sem þar hefur verið verk-
aður. Áður var hákarlinn verkaður
vestur á fjörðum, en nú hafa þeir
byrjað á því sjálfir og þykir vel
hafa tekizt.
Margir hafa velt því fyrir sér,
hvernig það megi vera, að harðfisk-
ur sé álíka dýr og konfekt, þegar
fiskur er annars ódýrasti matur sem
völ er á. Það tekur að vísu sinn tíma
að verka harðfisk, en kostnaðurinn
við það sýnist varla í neinu sam-
bandi við það okurverð, sem er á
þessum ágæta og holla mat.
Boðið að borða.
Framhald af bls. 20.
SHERRYKREM:
2 eggjarauður, 2 matsk. flórsykur,
Vt 1 þeyttur rjómi, % dl sherry.
Eggjarauðurnar hrærðar vel með
flórsykrinum og sherrýinu bætt í
og þeytt áfram. Síðast er stífþeytt-
ur rjóminn settur saman við.
Þá er það matseðillinn fyrir þær
sem eldri eru:
FERSKJUR MEÐ RÆKJUM.
BUDAPEST-RÉTTUR.
FRANSKAR PÖNNUKÖKUR.
FERSKJUR MEÐ RÆKJUM.
1 dós niðursoðnar hvítar ferskj-
ur, 350 gr rækjur, 75 gr majones,
salatblöð.
Borið fram á diski fyrir hvern
gest. Neðst eru salatblöð lögð, ofan
á þau ein ferskja og í dældina á
ferskjunni eru lagðar rækjur og svo
majones efst.
BÚDAPESTRÉTTUR.
1 kg stórar kartöflur, salt, 50 gr
smjör, l egg, 1 eggjarauða, hvítur
pipar.
Kartöflurnar flysjaðar, soðnar og
marðar og hrærðar með smjöri.
Eggið og eggjarauðan þeytt með
kryddinu. Stórt eldfast fat, helzt
ílangt, er þakið að innan með kart-
öflumaukinu og síðan eftir endi-
löngu og svo þvert yfir, þannig að
það myndist fjögur hólf. í þau er
sett:
400 gr kálfslifur, 1 kálfsnýra, 2
matsk. hveiti, salt, pipar, 1 tsk. rauð
paprika, 100 gr smjör, 1 dl sherry,
2 dl rjómi, 1 dós litlar, grænar baun-
ir (alls ekki stórar og allra sízt þær
sem eru niðursoðnar hér á iandi),
350 gr sveppir.
Kálfslifurin er skorin í þykkar
lengjur og nýrað, sem hefur legið
í bleyti, í þunnar sneiðar. Krydd-
inu blandað 1 hveitið og lifur og nýra
velt upp úr því. Kjötið síðan steikt
á pönnu. Lifurin er svo sett í eitt
hólfið í eldfasta fatinu, nýrun í ann-
að og sherry og rjómi soðinn and-
artak á pönnunni áður en því er
hellt yfir kjötið. Baunirnar hitaðar
upp og settar í þriðja hólfið og
sveppirnir, sem hafa verið skornir
í tvennt og soðnir stutta stund í
smjöri í það fjórða. Fatið sett inn
í ofn í 10 mín. við 200 gr. hita og
málmpappír lagður yfir sem lok.
FRANSKAR PÖNNUKÖKUR
(16—18 stk.):
100 gr hveiti, 2 matsk. sykur, 1
dl rjómi, 4 egg, ca. % 1 mjólk, 50
gr bráðið smjör, 75 gr fínsaxaðar
möndlur, 2 matsk. smátt saxaður
sykraður appelsínubörkur, !4 1
þeyttur rjómi.
Hveiti og sykri blandað saman
og hrært með rjómanum. Eggin
þeytt og sett saman við, því næst
mjólkin og brædda smjörið, möndl-
urnar og sykraði appelsínubörkur-
inn. Deigið látið standa í klukku-
tíma. Bakaðar meðalstórar pönnu-
kökur, sem eru bornar fram volgar
(haldið heitum í ofni) með ísköld-
um þeyttum rjóma.
Með kaffinu má hafa þessa góðu
valhnetuköku:
V ALIINETUK AK A:
250 gr hveiti, 1 tsk. lyftiduft, 100
gr saxaðar valhnetur, 150 gr smjör,
125 gr. sykur, 2 egg, 2 matsk. rjómi.
Hveiti, lyftidufti og hnetum bland-
að saman. Smjörið hrært hvítt með
sykrinum, eggin þeytt saman við og
mjölblöndunni bætt í. Allt hrært og
bleytt með rjómanum. Bökuð í
klukkutíma í vel smurðu formi við
lítinn hita (175 gr). Þegar kakan er
köld er hún þakin með glassúr: 1
bolli sykur, % bolli vatn, 1 eggja-
hvíta. Sykur og vatn soðið saman
þar til það er ljósbrúnt og myndar
þráð neðan úr trésleif. Eggjahvítan
er stífþeytt og sykurleginum hellt
í hana, en þeytt stöðugt í á meðan
og í 10 mín. á eftir. Glassúrinn verð-
ur snjóhvítur og fallegur með þessu
móti. Kakan er skreytt með val-
hnetum og rauðum kokkteilberjum.
bökuð við mikinn hita í 15 mín. Kælt
aðeins áður en það er tekið úr
forminu.
FYLLINGIN:
4 ananashringir, 100 gr græn vín-
ber, 14—16 sveskjur, 1 lítil dós
mandarínur (fæst hér í búðum), 2
matsk. rauð kokkteilber, 2% dl saft
af ávöxtunum, 3 blöð matarlím.
Ananashringirnir skornir í litla
jafnstóra bita, vínberin skorin í
tvennt og kjarnarnir teknir úr.
Ávöxtunum raðað skrautlega á
botninn. Matarlímið brætt og sett
í saftina, og þegar það er að byrja
að stífna, er henni hellt smám sam-
an með skeið yfir ávextina. Látið
standa á köldum stað þar til hún
er borin fram með:
SÁTTAHÖND.
Framhald af bls. 9.
reis hún upp við dogg og starði á
lampann, sem sýndi hvort það var
straumur á sænginni eða ekki, og
hve mikinn hita hún átti að gefa.
Það var ekkert Ijós á lampanum.
Hún skarkaði í slökkvaranum. Ljós-
ið kviknaði. En aðeins eitt andar-
tak. Svo dá það aftur.
Hún reyndi aftur. Ljós — myrk-
ur. Klikk. Ljós — myrkur. Klikk.
— Ef þú heldur þessum gaura-
gangi áfram, fer ég og lialla mér
i gestaherberginu, sagði Tom og
reyndi að vera ekki mjög önugur.
— Síðasta vika var mjög þreyt-
andi, og ég vil fá að sofa.
Já, þetta var þreytandi vika,
hugsaði Jenny reið. Uppliátt sagði
hún: — Larry sefur í gestalierberg-
inu. Ég lét þau sofa sitt í hvoru
herbergi, svo þau væru ekki alltaf
að kasta bangsanum á milli sín.
Og ég er ekki með neinn gaura-