Vikan


Vikan - 28.03.1963, Page 7

Vikan - 28.03.1963, Page 7
Það þarf meira hugrekki til þess að sækja kirkju en láta það vera, vegna þess að það er tízka, venja, að trúa ekki opinberlega og fara ekki í kirkju. Hvers vegna eru þá þessir sömu menn að láta skíra börn sín og ferma þau? Börnin taka sjálf þátt í söngnum og syngja af hjartans lyst. Ljósmynd; KBISTJÁN MAGNÚSSON. Séra Emil meö bömin sin. Það var kyrrt og hlýtt rigningar- kvöld i febrúar. Ég stóð í dyrum Hilmis h. f. og beið eftir séra Emil Björnssyni. Hann ætlaði að koma og spjalla við mig um ýmis mál kirkjunnar — þessi mál, sem tizkan og tíðarandinn vilja helzt ekki vita af, nema til að niðra og tala lítillækkandi um. Ég hafði valið séra Emil til að ræða við um þessi mál, — kannski af þvi að ég kannaðist svolítið við hann gegnum okkar sameiginlega starf, en auk prestskaparins stundar hann fréttamennsku hjá Ríkisútvarpinu, eins og margir vita. Svo kom hann, virðulegur og al- þýðlegur i senn, og við komum okkur fyrir í beztu stólunum á skrifstofunum. Séra Emil fékk sér í nefið, en ég fékk mér sígarettu. Svo hófst samtalið: — Segðu mér fyrst, séra Emil, er kirkjusókn hér á landi í rauninni jafn slæm og talað er um? — Ég myndi segja, að það væri al- mennt talað orðum aukið. Hún er ekki eins léleg, og menn hafa hverjir eftir öðrum. Ýmsar samkomur kirkjunnar eru vel sóttar hér á landi, svo sem hátíðamessur, fermingar, barna- samkomur og þess háttar, þá eru kirkjurnar jafnvel of litlar. Ég get til dæmis borið þetta saman við kirkjusókn í Bretlandi, af því ég var þar I fyrra. Ég myndi vilja segja, að kirkjusókn hér væri al- mennari en þar. Þar skiftist fólk meira í kirkjufólk og ekki kirkju- fólk. Kirkjufólkið sækir kirkjurnar að staðaldri, en ekki Ikirkjufólk kemur ekki i þær. Hér eru flestir kirkjumenn og ckki kirkjumenn i senn, þvi þótt menn komi almennt ekki til kirkju á sunnudögum, koma flestir einhvern tíma til kirkju eða njóta kirkjulegrar þjónustu. Ég: álít, að hér komi hlutfallslega fleiri til kirkju einhvern tima en víðast erlendis. Og miðað við öll þau ósköp, sem eru af samkomum i okkar litla þjóðfélagi, finnst mérf að kirkjan megi vel við una, þótt ekki séu allar kirkjur fullar á hverjum sunnudegi. Á hljómleika kemur oftast nær sama fólkið. Fyrirlestra i háskólanum sækir tiltölulega þröngur hópur, en það er almenningur, sem sækir kirkjurn- ar, þótt ekki sé á hverjum sunnu- degi. — Þegar talað er um lélega kirkju- sókn, er þá ekki einkum miðað við hina gömlu góðu daga, þegar ekki var um aðrar samkomur að ræða en messur? ■— Jú, ég er hræddur um það. Það Framhald á næstu síðu. VIKAN 13. tbl. — rj

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.