Vikan - 28.03.1963, Síða 32
STAFRÖF HEIMILISSTJÓRNAR VERÐUR AÐ LÆRASI
DÆMIÐ ER AUÐREIKNAÐ
UTKOMAN ER BETRI ARANGUR
MEÐ PERLU ÞVOTTADUFII
Þegar pér hafið einu sinni Jrvegíð meö PERLU komizt pér að raun um, hve þ.votturinn getur orðiö
hvitur og hreinn. PERLA hefur sérstakan eiginleika, sem gerir þvottinn mjallhvítan og gefur honum
nýjao, skýnandi blæ sem hvergi á sinn lika. PERLA er mjög notadrjúg. PERLA fer sérstaklega vel
með þvottinn og PERLA léttir yöur störfin. Kaupiö PERLU í dag og gleymið ekki, að með PERLU
fáið þér hvítari þvott, með minna erfiði.
II
T
i
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Ilrútsmerkið (21. marz—21. apríl):
Þú munt vera mikið heima þessa viku, sennilega
verður þeim tíma mikið varið til bóklestra. Þú
færð einhverja nýja hugmynd sem þig langar að
hrinda í framkvæmd, sé hún í sambandi við heim-
ili þitt mun hún verða þér til mikillar ánægju. Blátt er heillalitur.
©Nautsmcrkið (22. april—21. maí):
Þú ættir ekki að ráðast í nýjar framkvæmdir án
þess að ráðfæra þig við ættingja þinn eða kunningja
sem getur orðið þér að taisverðu Jiði en bíður aðeins
eftir bendingu frá þér til að leiðbeina þér. Föstu-
dagskvöld mun verða skemmtilegt.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní);
Nú er gott tækifæri til að taka ákvarðanir sem
varða framtíðina. Þú skalt gæta þess, að vilji þinn
truflist ekki af öfundarmanni þínum, sem reynir
að villa um fyrir þér. Athugaðu málið frá grunni,
heppnin er mikið undir sjálfstæði þínu komin.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Það verður mikið um heimsóknir í vikunni á báða
bóga. Gildi tveggja heimsókna kemur þú ekki auga
á fyrr en seinna, hafðu eyrun opin fyrir öllu sem
lýtur að fjármálunum. Á vinnustað verður óvenju
lífvænlegt og muntu fá talsverð tækifæri til að láta ljós þitt
skína.
Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst):
Vertu varkár í hjartans málum, sérstaklega á föstu-
dag, því þá mun þriðji aðili standa á milli ykkar.
Gættu þess að vera ekki of trúgjarn, og athugaðu
málin gaumgæfilega. Þú munt endumýja kunnings-
skapinn við persónu sem þú hefur ekki umgengizt mikið síð-
ustu vikur.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. septcmber):
Ekki er þér ráðlegt að ráðast í neinar framkvæmdir
þessa vikuna. Taktu lífinu rólega og sóaðu ekki
kröftum þínum til einskis. íhugaðu málin vandlega
og taktu smáatriðin líka í reikninginn. Þriðjudagur
verður skemmtilegasti og tilbreytingaríkasti dagur vikunnar.
Vogarmcrkið (24. september—23. október):
Kunningi sem þú hefur ekki séð langtímum saman
kemur nú allt í einu fram á sjónarsviðið og verða
það miklir fagnaðarfundir. Laugardagurinn verður
einhver sá skemmtilegasti og eftirminnilegasti sem
þú hefur lengi átt. Fjólublátt er heillalitur.
ffl
fc
Drekamcrkið (24. október—22. nóvember):
Gættu tungu þinnar og segðu ekki allt sem þér
býr í brjósti, það gæti orðið til þess að þú fældir
lukkuna frá þér. Vinur þinn mun leita aðstoðar
þinnar á einhverju sviði áhugamála þinna. Vertu
vel við bón hans því þið munuð báðir hafa gagn og gaman af.
Bogmannsmerkið (23. nóvember—21. dcsember):
Þú ættir að umgangast fjölskylduna meira en þú
gerir, nákomið skyldmenni bíður þín með skemmti-
legar fréttir. Þú færð tækifæri til að launa kunn-
ingja þínum greiða sem þú hefur hugsað mikið um.
Skiptu þér ekki aí fjármálum og taktu ekki stórar ákvarðanir
á því sviði.
Geitarmerkið (22. desember—20. janúar):
Vertu ekki uppstökkur og geðillur þó þér sé það eðli-
legast þessa vikuna, því þú ert undir smásjá persónu
sem hefur þig í huga i sambandi við framkvæmdir
í verzlun. Eyddu kvöldunum sem mest heima og
hafðu hægt um þig. Þér mun berast óvænt gjöf.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar):
Þú getur nú tekið þér hvíld eftir erfitt viðfangs-
mjPÆ efni, árangur vinnu þinnar kemur ekki fyllilega i
Ijós fyrr en að nokkrum vikum liðnum og muntu
þá sjá árangur verka þinna. Maður með iðnmenntun
gerir þér tilboð sem þú ættir að hugsa vel um.
©Fiskamcrkið (20. fcbrúar—20. marz):
Þú ert í einhverju fjármálabraski og einmitt þessa
viku færð þú svar við fyrirspurnum þínum í þessu
máli. Maður sem þú ætlar að vera í féiagi með er
hálfgerður ævintýramaður og kannski ekki sem
heiðarlegastur, því veltur mest á sjálfum þér að þú hagnist á
viðskiptunum. •