Vikan - 28.03.1963, Síða 46
gegnum. En Martin hélt stefnu
sinni óbreyttri.
„Þeir eru búnir að varpa sprengj-
unni!“ æpti sprengjuvarpari Gibsons
með öndina í hálsinum, og í sama
bili hristist flugvélin af tveim skot-
um, er hæfðu bæði í hægri vænginn.
„Sprengjunni varpað, foringi,"
kallaði Martin í útvarpið.
„Gott, P Pétur. Segðu til, þegar
þið eruð úr skotfæri."
„Halló, D Dogg. Ertu viðbúinn?"
„Allt í lagi, foringi."
„Leggið til atlögu! Ég hjálpa þér
með loftvarnahríðina."
Nú heyrðist rödd Martins á ný:
„P Pétur úr skotfæri, foringi."
„Gott. Fenguð þið skot?“
„Já, í hægra væng, en ekki hættu-
legt. Við höfum það af.“
Aftur var vatnið við stíflugarðinn
eins og sjóðandi nornaketill. Enn
dundu holskeflurnar á stíflunni, en
hún stóð þarna enn.
Svo kom Young í útvarpið:
„D Dogg leggur nú til atlögu."
Ennþá einu sinni stefndi Gibson
inn yfir vatnið þvert, og nú fylgdi
Martin honum. Þegar Young steypti
sér niður yfir vatnið, þvert á stífl-
una, f'ugu þfir Gibson og Martin
inn yfir garðinn endilangann, sinn
frá hvorri hlið. Flugu þeir nokkru
hærra en Young og vissu Þjóðverjar
ekki á hvern þeir ættu helzt að
skióta. Young straukst yfir stíflu-
garðinn, og tilkynnti að flugvél sín
væ-i óskemmd. Hafði sprengingin
einnig að þessu sinni orðið nákvæm-
lega þar sem vera bar, en stíflu-
garðurinn hreyfðist ekki.
Gibson beið, þar til öiduganginn
lægði, og gaf síðan Maltby árásar-
skipun. Flugu þeir Martin og hann
inn yfir vatnið samtímis Maltby,
með glampandi stefnuljós og allar
vélbyssur í gangi, til að reyna að
beina loftvarnaskothríð Þjóðverja í
rangar áttir. Eftir nokkrar sekúnd-
ur skaut rauðu ljósi upp frá flug-
vél Maltbys. Árásin hafði gengið
að óskum.
Loftið yfir gervöllum dalnum var
nú þrungið þéttum vatnsúða, og það
var erfitt að greina hvað gerzt hafði
niðri við stíflugarðinn. Gibson kall-
aði til Shannons og bað hann að
hefja næstu atlögu. Hann hafði
naumast lokið setningunni, er ein-
hver hrópaði í heyrnartól hans, æst-
um rómi:
„Hann er farinn! Hann er farinn!
Líttu niður!“
Þetta var Martin. Hann var að
beygja inn yfir vatnið er hann sá
járnbentan steingarðinn springa
sundur og hrynja niður fyrir ofur-
þunga vatnsins. Gibson flaug þegar
beint yfir stífluna og lá við sjálft
að hann fengi taugaáfall, er hann
sá hvað gerzt hafði. Vatnsflaumur-
inn þeyttist út um tröllaukið skarð
í stíflugarðinum, 100 metra breitt og
30 metra á dýpt. 134 milljónir lesta
af vatni fossuðu niður dalinn í 60
metra langri bunu, sem var slétt
og gljáandi að ofan, en sveipuð
sjóðandi löðri til beggja hliða, þar
sem brotsárin í skarðinu skárust
inní hana. Flóðið þeysti yfir gíginn
er myndazt hafði þar sem orku-
stöðin hafði verið, og ruddist niður
héraðið líkt og ólgandi, bullandi
gos.
Shannon fékk skipun um að bíða
með sprengjuna.
Hinir flugu inn yfir athafnasvæð-
ið og komu ekki upp orði af undrun.
í skini tunglsins sáu þeir tíu metra
háan vegg af vatni ryðjast niður
eftir héraðinu, með sex til sjö metra
hraða á sekúndu. Loks gátu þeir ekki
orða bundizt, og allir töluðu hver
uppí annan, trylltir af æsingu.
Loftskeytamaður Gibsons var sá
eini er réð nógu lengi við sig til að
geta sent dularorðið um, að stíflan
hefði verið sprengd: „Sambó.“
Innan stundar sást hvergi til jarð-
ar í dalnum, fyrir fossaföllum og
straumköstum hinnar ægilegu flóð-
bylgju. Gibson skipaði þeim Martin
og Maltby að snúa við heimleiðis,
en kvaddi þá Young, Shannon,
Maudslay og Knight til að fylgja sér
austur til Eder. Skyldi Young taka
við stjórn, ef Gibson yrði skotinn
niður. Framhald í næsta blaði
Tízka að trúa ekki.
Framhald at bls. 8.
í flestum tilfellum finnst mér það
áhrifameira, og presturinn getur þá
hagnýtt sér víxláhrifin milli hans
og safnaðarins. Ef maður flytur
ræður af skrifuðu hlaði, verður eins
og múr milli prestsins og safnaðar-
ins, og maður gengur meðfram
þessum múr, eins og barn, sem ekki
þorir að sleppa sér. Ég er Jónasi frá
Ilriflu þakklátur fyrir þessa ábend-
ingu. En þó verð ég að geta þess,
að útvarpsræður mínar skrifa ég
alltaf að mestu leyti. Þar kemur
m. a. til, að víxláhrifa milli prests-
ins og útvarpshlustenda gætir ekki,
og loks það, að svo vanur hljóð-
nemum sem ég ætti að vera orðinn,
þvingast ég alltaf af þeim og get
ekki verið eins eðlilegur og ella,
ef ég veit, að orð mín fara gegnum
hljóðnema. Einmitt af þeirri ástæðu
baðst ég undan því að þú tækir
þetta spjall okkar upp á segulband.
Ég á miklu verra með að einbeita
mér þegar hljóðnemi er annars
vegar.
Úr því að við erum að minnast á
útvarp, langar mig til þess að minn-
ast á jarðarfarir. Ég ei- persónulega
mótfallinn þvi að útvarpa þeim. Mér
finnst það næstum að segja helgi-
spjöll. Jarðarfarir eru eðli sínu sam-
kvæmt einkaathafnir. Við höfum
báðir komið inn á verkstæði, skrif-
stofur, smiðjur, fiskbúðir og svo
framvegis, þar sem jarðarför glym-
ur í útvarpinu, en þeir sem til heyra
eru að gaspra sin i milli, eins og
gengur, og þetta hljómar oft í hæsta
máta hjáróma og óviðkunnanlega.
Ef ég ætti sjálfur hlut að máli myndi
ég lcveinka mér við að útvarpa slík-
um athöfnum.
— En hvernig finnst þér þá, þegar
alls konar fólk, sem kannske þekkti
hinn látna alls ekkert eða sama og
ekkert, flylckist í kirkjur við jarðar-
farir?
— Ég get ekki talað um það. Ég
þekki ekki úr, hverjir þekktu hinn
látna og hverjir ekki.
— En livað um útvarpsmessnr?
— Um messurnar gildir allt öðru
máli. Þær eru ætlaðar almenningi.
— En snúum okkur nú aftur að
hinni ahnennu guðsþjónustu. Nú
munu nær allar kirkjur vera komn-
ar með 'kirkjukóra. Mér þykir gam-
an að syngja og vil syngja með, þeg-
ar ég fer í kirkju. En ég hef orðið
fyrir því, að allir hafa rekið upp
stór augu og orðið hneykslaðir á
svipinn, þegar ég fer að kyrja mína
sálma niðri i kirkjunni. Sumir fara
jáfnvel í kirkjur til þess að hlusta
á falk-gan kórsöng, og vilja þá ekki
að neinir utan kórs séu að raula
með. Er þetta rétt þróun?
— Þetta er hreinasta vandamál
og örlagaríkur misskilningur. Það
er gott og nauðsynlegt, að hafa góð-
an kirkjukór, sem getur haft for-
göngu um sönginn, eins og forsöngv-
ari. En liér er skortur á því, að
almenningur taki þátt í því sem
fram fer, öllu, song, trúarjátningu,
bænum — þetta allt og öll guðs-
þjónustan er ætluð til þess að allir
taki virkan þátt í því. Ég hef marg
beðið minn söfnuð um að taka með
sér sálmabækur og syngja með og
biðja með, upphátt, og ég þarf svo
sem ekki að kvarta undan því, að
minn söfnúðnr taki ekki virkan þátt
í guðsþjónustunni. Ég tel, að hin
nýja messusöngsbók séra Sigurðar
Pálssonar sé mjög athyglisverð
vegna þess, að hún veitir svo mikla
möguleika til meiri þátttöku almenn-
ings 1 messugjörðinni. Þar eru bæði
lesmessur og söngmessur og hvort
tveggja saman, guðsþjónusta fólks-
ins sjálfs, virkari þáttaka fjöldans,
en það er hið upprunalega eðli
messunnar.
Þá komum við að því, sem ég tel
mesta misskilninginn hjá sumu fólki,
sem sækir kirkju. Það er þegar það
kennir aðallega til þess að hlusta á
það, hvernig prestinum segist. Það
er eins og ræðan sé allt, í stað
þess að fólkið á að koma í kirkjurn-
ar til þess að taka sjálft þátt í allri
guðsþjónustunni. Það getur verið á-
hrifaríkt að koma til kirkju, þótt
GENERAL wm ELECTRIC
HEIMILISTÆKI
KÆLISKÁPAR — ÞVOTTAVÉLAR
UPPÞV OTT AVÉL AR — STEIKAROFNAR
PÖNNUR — BRAUÐRISTAR
ELDAVÉLAR — HRÆRIVÉLAR
Electric h.f.
Túngötu 6 — Sími 15355
46
VIKAN 13. tbl.