Vikan


Vikan - 18.04.1963, Page 40

Vikan - 18.04.1963, Page 40
VIKU klúbburinn Klúbbblað fyrir börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson. VEGGSKREYTING Verkinu er lokið. Myndirnar blasa við og hljóta lof Vinnupallar voru reistir — og það var málað Þetta er ein myndanna, í hinni stóru eða last, — eins og gengur og gerist í heimi listanna. og teiknað, svo hvergi varð eftir auður blettur. veggskreytingu. t»að þætti vafalaust saga til næsta bæjar, ef gagnfræðaskólanemendum hér, yrði falið að annast veggskreytingu i anddyri skólans. Þetla er ekkert „Fyrstaaprílgabb“. Fréttin stóð i austurriskum blöðum -— og er sönn. Austurrískur skólastjóri i gagnfræðaskóla stúlkna boðaði nemendur á sinn fund og gaf þeim leyfi til að skreyta, að eigin vild, stærsta vegginn í anddyri skólans — og hvar í heiminum yrði ekki sliku tilboði tekið með fögnuði? — Hver nemandi, sem ein- bverja hæfileika bafði lil að bera, fékk sinn útmælda reit — og var þá strax hafizt handa, teiknað og málað upp um alla veggi. Já, þvi sumar stúlkurnar urðu að standa uppi á háum vinnupöllum -— og þó smáfiðringur færi um magann, öðru hverju, — svona hátt uppi — var unnið af mesta kappi. Og eftir viku slóð veggurinn þakinn listaverkum. Gagnrýnendur nefndu hann strax „Litaauðuga draumavegginn“, en þeir voru ekki eins sammála um flokkun myndanna eftir stefnum eða „ismum“. Það var líka algert aukaatriði, því meðal stúlknanna var enginn ágreiningur, — þegar lalið barst að þessu óvenjulega viðfangsefni: „Þetta var yndisleg vika, óslitinn draumur.“ ERTU FISKINN ? Ef svo er, þá reyndu hæfni þína. Útgerðin er ekki dýr: Fisk- arnir eru litlir korktappar með misháum númerum. Neðan í töppunum er nagli, svo þeir verði stöðugri í vatninu. í end- anum sem upp snýr er kengur, Framhald á bls. 39. SNOTUR KARL. Þeir hafa ekki þurft að spara snjóinn í vetur, krakkarnir í Englandi, enda voru snjókarl- arnir vöxtulegir, eins og myndin ber með sér. Hér er María að leggja síðustu hönd á verkið. Hvað hún hafði í augu á karl- angann? Auðvitað kolamola, — því Bretar hafa nóg af kolum, eins og þið vitið. HNYTTU HNÚT. Það er enginn vandi að hnýta hnút á band, — ef maður kann það. Og nú ætlum við að kenna þér einn í viðbót. Myndirnar hérna, sýna þér aðferðina í fimm á- föngum. Þegar þú hefur æft þig nokkrum sinnum geturðu sagt með sanni: Þetta er enginn vandi. En ætli félagar þínir segi það sama, — að óreyndu?

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.