Vikan - 23.05.1963, Blaðsíða 27
gardínur fyrir. Þar gegnt slitinn, rauður sófi
Borð gegnt dyrum. Þar á er Camelpakki, eld-
spýtur, þrjú óbrjótanleg vatnsglös og púrtvíns-
flaskan. Undir glugganum eru tveir djúpir
stólar í stíl við sófann, og frammi við dyr tveir
stakstólar. Þar setjumst við. Eiginkonan verð-
andi situr í sófanum. Flóki fær sér aftur í glas
og fleygir sér svo á hliðina í sófann, með fæt-
urna að henni. Ástkonan kemur og sezt á gólf-
ið við höfðalag meistarans.
— Hvaða áhrif hefur púrtvín á listina?
— Áfengi hefur ekki áhrif á listina. Ég nota
áfengi sem taugameðal. Til þess að styrkja
taugarnar. Ég er mikill vinur Bakkusar, enda
get ég leyft mér að drekka stíft, meðan ég vinn.
Það getur enginn annar og hefur ekki getað,
nema Arnold Böchlin.
— Eru styrkar taugar nauðsynlegar fyrir
listiná?
— Nei. Slappar taugar eru skilyrði fyrir list.
Ég á því láni að fagna að vera mjög tauga-
veiklaður.
— Hvernig fer það saman, að drekka áfengi
til þess að styrkja taugarnar við vinnu og mega
svo ekki hafa sterkar taugar?
— Ég er ekkert nema andstæður. Ég vil ekki
konsekvens.
— Er sýning á döfinni hjá þér?
— Ég hef undarfarið sýnt á samsýningum í
Bandaríkjunum. New Yersey og víðar. Það get-
ur svo verið, að ég sýni í haust í Reykjavík og
MINN
FYRIRRENNARI
VAR KROSSFESTUR
VIKAN HEIMSÆKIR ALFREÐ FLÓKA, GENIUS