Vikan - 01.08.1963, Blaðsíða 37
Hann gleðst meðan námið
endist.
Framhald af hls. 20.
átta kemur sér vel við margs
konar störf í þjóðfélaginu. Ég
hef hugsað mér að stunda lög-
fræðistörf í 1—2 ár, en halda
síðan utan til framhaldsnáms í
refsirétti og tryggingarétti, vænt-
anlega í Bandaríkjunum og Nor-
egi.
— Þú hefur farið víða um,
hvernig er það?
— Ég hef ferðazt nokkuð um
Evrópu, en lengst dvalizt á ítalíu,
þar sem ég kann einna bezt við
mig. Veturinn 1958—59 var ég
við málanám í háskólanum í
Genút, eins og áður segir, og um
vorið og sumarið 1962 við út-
lendingaháskólann í Perugia og
lauk þaðan prófi í ítölsku, ítölsk-
um bókmenntum og sögu.
— Hefurðu gaman af bók-
menntum?
— Ég hef alltaf haft áhuga á
bókmenntum og bókmenntasögu,
en vegna námsins hefur mér ekki
gefizt eins góður timi til slíkra
hluta og ég hefði kosið.
— En hvað kom þér til að
læra ítölsku, er hagkvæmt að
kunna hana?
— Ég veit eiginlega ekki
neina sérstaka ástæðu til þess,
ég fékk bara skyndilega áhuga
á málinu. Það kemur sjálfsagt
ekki að miklu gagni í lífinu, en
þó hef ég verið leiðsögumaður
ítalskra ferðamanna og nokkuð
fengizt við þýðingar.
— Þú segir að ítalía sé gott
land og fólkið vingjarnlegt?
— Já, mér fellur vel við ítali.
Sú skoðun, sem Norðurlandabú-
ar hafa almennt myndað sér um
ítali, á að mínum dómi bezt við
Sikileyinga og aðra þá er syðst
búa. Þeir eru blóðheitir og bráð-
ir og kannski ekki alltaf sem ráð-
vandastir.
— Ertu nú ekki orðinn leiður
á öllu þessu námi, grámygluleg-
um kennurum og gatslitnum
bókum?
- Nei, langt í frá. Ég gleðst,
á meðan námið endist. Ég lít
fremur á það sem skemmtun en
vinnu eða strit eins og sumir
kalla það. ★
HYERSDAGSMATUR.
Framhald af bls. 15.
kjötsoði í og kryddið með
salti og pipar og lauksalti. 1
matsk. af þeyttum rjóma, sem
piparrót hefur verið rifin út í,
er sett á hvern disk.
Hrátt hvítkálssalat.
200 gr hvítkál, 1 stórt súrt
epli, V2 dl rjómi, sítróna, hun-
ang eða sykur.
Rífið bæði kálið og eplið á rif-
járni, en frekar gróft. Blandið
sítrónusafanum í rjómann með
hunangi eða sykri eftir smekk.
Látið rifið grænmetið ekki í
fyrr en um leið og það er borið
fram.
Fiskur í málmpappír.
1% kg þorskur eða ýsa, per-
silja og annað grænt blandað
með smjörlíki, IV2 matsk. hveiti,
IV2 dl rjómabland, salt, pipar og
málmpappír.
Hreinsið fiskinn og takið
hrygginn úr honum. Þurrkið
hann vel og saltið bæði að inn-
an og utan. Fyllið hann með
smjörblönduðu grænmetinu og
leggið í málmpappírinn. Hristið
saman hveiti og mjólk og hellið
í málmpappírsskálina og lokið
henni svo vel. Sett í heitan ofn
og bakað í u. þ. b. 20—25 mín.
Opnið ekki pappírinn fyrr en
inni á borði, svo að allir finni
ilminn af fiskinum þegar skálin
er opnuð. Soðnar kartöflur og
salat borið með.
Hvítkálsfat.
4 kg beinlaust nautakjöt, feiti,
salt, pipar, 1 lítið hvítkálshöfuð,
2 gulrætur, múskat.
Skerið kjötið í ræmur og steik-
ið það vel brúnt í feitinni.
Kryddið með salti og pipar. Hell-
ið svolitlu vatni á og látið það
malla. Skerið hvítkálið í ræmur
og leggið í eldfast fat og hellið
kjötinu yfir með soðinu og bætið
gulrótarbitunum í. Kryddað með
múskat og svolitlu kjötsoði bætt
í og vökvinn látinn ná upp að
% af innihaldinu. Látið sjóða við
lítinn hita þar til allt er meyrt.
Sósa með makkarónum.
4 hg hakkað kjöt, feiti, V\ kg
tómatar, lauksalt, salt, pipar,
svolítill rjómi eða mjólk.
Brúnið mulið hakkað kjötið í
nægri feiti á pönnu þar til það
er brúnt og kornótt. Bætið flysj-
uðum tómötunum í og kryddið.
Ef óskað er eftir meiri vökva, má
bæta rjóma eða mjólk í, eða svo-
lítilli tómatsósu. Sjóðið makka-
rónurnar í saltvatni og látið
renna vel af þeim. Kjötsósan sett
ofan á og rifnum osti stráð á allt
saman.
Fiskfat.
1 stór pakki hraðfrystur fisk-
ur, 1 lítið blómkálshöfuð, 3 gul-
rætur, 2—4 púrrur, V2 kg lcart-
öflur, salt, pipar, tómatsósa, fín-
saxað dill og persilja.
Blómkálið brotið í smástykki,
púrran skorin í 1 em þykkar
sneiðar, gulræturnar í sneiðar og
kartöflurnar í litla bita. Fyrst
eru kartöflurnar og gulræturnar
settar í saltvatn og suðan látin
koma upp, þá er blómkálinu og
púrrunni bætt í eftir litla stund
og soðið í 7—8 mín. Fiskurinn
skorinn í bita og settur í og soðið
áfram í 5 mín. Þá er kryddað
með salti og pipar og látið sjóða
áfram í upp undir 10 mín. Tómat-
sósu bætt í eftir smekk rétt áður
en fatið er borið fram og persilju
eða öðru grænu stráð yfir. ★
Nýtt frá NESTLE
Curl’n Set
8 DAY HAIR SET
Sterllng h.f- Sími 13649.
VIKAN 31. tbl. — gy