Vikan


Vikan - 09.04.1964, Side 32

Vikan - 09.04.1964, Side 32
 húsmceðut um '°nd hlyggrtat að taun 0m, o«t hata k° sig oð nota oð Þoð b°'9ð hvottaetni en cÍoZONe"' Þvottové'^ ~ CIOZONE et Þ^’Voð Þv° staklega et r PoS hefut út Þvi i Þv^'uóÞvoUO- hvotki skoðv®N.g að(0 Wuto vinduna ne n®,n__ þoð s.m þvottavélatmno rinn vetð- mes. et um £„,«,„.«,1 en ur hteinm °g nokktu sinm FÆST ALLSTAÐAR Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Persónu, sem farið hefur í taugarnar á þér, hefurðu nú losnað við í bili, en þér er ráðlegast að vera vel á verði. Áform, sem þú ert lengi búin að hafa í huga, leysist upp af sjálfu sér, án nokkurrar eftirsjár af þinni hálfu. ©Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú átt talsvert annríkt, en hefurðu gert þér grein fyrir því, að þú getur auðveldað þér ýmiss störf heimavið með tiltölulega litlum tilkostnaði? Þú sækir einhverja opinbera skemmtun í vikunni, og skemmtir þér mætavel, ef til vill hefurðu smáhagnað af þessu. Tvíburamerkið (22. inaí — 21. júní): Þú færð skemmtilega heimsókn eitthvert kvöldið. K ▼ J Talsvert er áríðandi að þú takir vel á móti gesti þínum. Vinur þinn hefur orðið fyrir sorg, sinntu honum meira en áður og sýndu áhugamálum hans meiri áhuga. Þín bíður eitthvað óvænt í sambandi við ferðalag. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú eignast hlut, sem þú hefur lengi haft ágirnd á, eitthvað annað en peningaleysi hefur valdið því að þú hefur ekki getað höndlað hann. Þú færð að reyna nokkuð nýtt og færð lof og hrós fyrir góða frammistöðu. Vendu þig á meiri stundvísi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú ert mikið í sambandi við fólk, sem stendur í miklum framkvæmdum, ef þú ert hjálpfús og lið- legur og dregur ekkert af þér, munu launin ekki láta á sér standa. Samband við nýja persónu ruglar þig dálítið í ríminu og þér hættir við fljótfærni. Mcyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): ©Gerðu boð eftir nokkrum félögum þínum, sem langt er síðan þú hefur haft samband við, þeir munu gefa þér mikilvægar upplýsingar. Þú átt frídag 1 vændum, skipuleggðu nú vel tímann þangað til svo þú missir nú ekki af neinu fyrir klaufaskap. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þolinmæðin þrautir vinnur allar, þú verður að sætta þig við, að hlutirnir taki sinn tíma. Þú ert búinn að bíða lengi og getur það svolítið lengur. Þú hefur heilmikið fyrir stafni, hikaðu samt ekki við að bæta nýjum verkefnum við, því önnum kafinn ertu ánægðastur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð erfitt verk að vinna, þú skalt gera það upp við þig, alveg á eigin spýtur, hvernig þú gerir það. Kunningi þinn gerir þér góðan greiða, sem þú skalt láta hann njóta. Þú verður mikið að heiman og stundar sennilega íþróttir. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Heimilislíf þitt er mjög ánægjulegt, og átt þú mik- inn þátt í því góða samkomulagi, sem ríkir. Tilboð, % I y sem er nokkuð ginnandi berst þér um miðja vik- una, en þú verður að ráðfæra þig við einhvern áður en þú tekur nokkra ákvörðun. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Athafnasemi þín er óvenjumikil og kemur þér sjálf- um á óvart, hve miklu er hægt að afkasta á skömmum tíma. Vertu ekki mikið að heiman og skiptu þér ekki af félagsmálum í bili. Þú skalt, ef þér gefst kostur á, greiða gamla skuld. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú færð óstaðfestar fregnir um eitthvað, sem kitlar hégómagirnd þína, en þú mátt alls ekki láta þær berast, áður en þú hefur fengið frekari skýringar. Vikan verður ósköp bragðlaus, en þér er alveg í sjálfsvald sett, hvort þú lætur þér leiðast eða ekki. OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Þú nýtur þekkingar þinnar á vissu sviði. Sökum þess hve þú ert stundum orðheppinn, gerirðu mikla lukku. Þú iðkar eitthvert gaman, sem er í sam- bandi við bókmenntir. Þú færð áminningu um að nota tímann betur en hingað til. m Heildsölubirgðir: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. 32 VIKAN 15. ti>L

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.