Vikan


Vikan - 09.04.1964, Síða 13

Vikan - 09.04.1964, Síða 13
Ég keypti eitthvað smávegis af honum. Hann talaði ensku mun betur en ég hafði vænzt. Þeg- ar viðskiptunum var lokið baðst ég leyfis að mega skoða þarna nokkra skrýtna smáhluti. Það kynni að vera að mig langaði til að kaupa einhvern þeirra síðar. Þetta voru skrautmunir úr grafinni skel með einkennilega snotru hand- bragði. Gerið þér svo vel, anzaði kaupmaðurinn. — En er yður það á móti skapi, að ég geri bæn mína? — Að sjálfsögðu ekki. — Hann tók fram bænaábreiðu sína, breiddi úr henni á gólfinu og sneri sér í átt til Mekka, féll á kné og laut til jarðar, unz enni hans nam við gólfið. Næstu 5—8 mínúturnar vissi hann auðsýnilega ekki af nærveru minni. Hann var gersamlega niðursokkinn í bænagjörð sína. Svo stóð hann upp og vafði ábreiðunni sam- an. Þá hneigði hann sig í átt til mín og sagði: — Ég óska yður friðar Guðs. Ég svaraði kveðjunni og hvarf út úr búð- inni. IV. Um kvöldið kom hann og settist í hornið sitt á veitingasvölunum í Meiron hóteli. Og nú var hann klæddur eins og sæma myndi ættar- höfðingja eða fyrirmanni. Og nú var ég orðinn alráðinn í að kynnast þessum manni betur. Ég bað þjón að bera á borð mitt brauð, salt og kryddaða grænmetisídýfu, sem ég vissi að Aröbmu þykir mesta lostæti. Ennfremur flösku af góðu víni. Þegar ég hafði látið þjóninn koma þessu snyrtilega fyrir á borði mínu, bað ég hann að fara til Mitri Shofar með nafn- spjald mitt og mælast til þess, frá mér, að hann vildi gera mér þá ánægju að sitja við borð mitt. Mitri Shofar tók við skilaboðunum, en fór sér að engu óðslega. Hann lauk úr glasi sínu, greiddi reikning sinn. Svo kom hann, hægum, virðulegum skrefum. Ég stóð upp og hneigði mig fyrir honum eins og tignarmanni. — Ég er hér einn á ferð, en hef haft þá ánægju að eiga við yður viðskipti, sagði ég. — Viljið þér gera mér þann heiður að sitja við borð mitt og eta brauð mitt og salt? — Ég þakka, herra. Ég heiti Mitri Shofar. — Kaupmaður hér í borginni? — Smákaupmaður aðeins. — Á einhverju verður maður að lifa, úr því að maður hefur ekki haft lag á að deyja. Ég skenkti í glas hans, braut brauðköku og rétti honum. Við tókum til snæðings. Mitri Shofar var fremur fár, enda tæplega annars að vænta. En ég gat ekki varizt því að mér geðjaðist ákaflega vel að honum. Allir hættir hans voru prúðmannlegir og þokkalegir. — Ég ákvað að komast nokkru nær honum með því að sýna honum fullkominn trúnað. Einmitt það, sem ég hafði verið varaður við að gera, er Arab- ar ættu í hlut. Ég lyfti glasi mínu: Herra Mitri Shofar! Þér gerið mér gleði með því að vera gestur minn í kvöld. Ég er hér á ferð til þess að fræðast um líf fólks og háttu. En mér er talsvert erfitt um Frli. á bls. 37. Hann gægðist fyrir liorn og sá, að Gyðingastrákurinn var að búa uppá asnann. ar um Araba, teinréttur og stoltur og bar sig með náttúrlegum virðuleik. Hann var holdgrannur, koldökkur á brá og skör, en farinn nokkuð að grána. Augun stillileg en hvöss, svipurinn markaður varyggð. Hann hlaut að hafa verið mjög glæsilegur mað- ur á yngri árum og mátti kallast það enn. Þegar hann var farinn, gat ég ekki á mér setið og spurði þjón, hvort þessi mað- ur væri gestur hótelsins. — Nei, hann er það ekki. Hann á heima hér í Tiberias. Hann kemur hér á hverju kvöldi. Ég held hann sé einhverskonar kaupmaður. Hann heitir Mitri Shofar. Það var af hreinni tilviljun að ég rakst á Mitri Shofar daginn eftir. Ég var á rangli um gamla bæinn og rakst þá inn í eina af þessum skemmtilegu, skugga- legu allsnægtabúðum, þar sem þú getur keypt þér gullofið sjal eða kaldan drykk, eða perluhálsband eða sultaðar froskalapp- ir. Það var enginn að verzla í búðinni. Á lágum stóli sat Mitri Shofar innan um varning sinn. Hann hafði steypt yfir sig hvítum sloppi, sem mér til talsverðar undr- unar mátti kallast tandurhreinn. Encflurminningar ffrá ísrael eftir séra Sigurð Einarsson í Holti VIKAN 15. tbl. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.