Vikan - 07.05.1964, Síða 5
hálfur diskur af súrmjólk. Finnst
þér þetta hægt, Vika? Get ég lát-
ið fara svona með mig? Hvað á
ég að gera?
Með fyrirfram þökk.
Pétur.
--------Mér finnst þú bara
mesti aumingi, að geta ekki hugs-
að betur um konuna þína. Það
ætti sízt að vera ofverkið þitt
að mata afkomandann, svo kon-
an geti borðað matinn, meðan
hann er heitur. Því livar værir
þú staddur, ef þú hefðir ekki kon-
una? Þú fengir ckki einu sinni
kaldan mat. Og þar að auki, ef
þú léttir svolítið undir með
henni, hefur hún betri tíma til
þess að gera góðan mat (brauð-
súpu með rjóma) og þarf ekki
að sækja allt til mömmu. Þú
hleyptir þér sjálfur út í þetta,
lams, og nú er bara að standa
í stykkinu. En þú mátt ekki jayía
þér að vera með ólund yfir því;
þá heldurðu bara áfram að létt-
ast.
Meira um drauginn ...
Kæra Vika!
Jæja, þar hafðist það. Nú held
ég, að ykkur hafi tekizt að ganga
alveg fram af allri draugadýrk-
un á íslandi. Kæra þökk.
Lóa.
Kæra Vika!
Ég skal gjarna játa, að ég var-
aði mig ekki á ykkur, sérstaklega
vegna þessarar greinar um aftur-
gengna skipstjórann, sem kom í
blaðinu á undan. En þið megið
nú vara ykkur á þessu. Fólk
hættir alveg að taka ykkur trúan-
lega.
Húsmóðir í Vesturbænum.
--------Það er ekki apríl nema
einu sinni á ári, kæra „húsmóð-
ir“. Við klifum Eldey í fyrra og
tókum myndir af draugum í ár.
Oftar gerum við nú ekki svona
kúnstir svo það getur varla tal-
izt varasamt fyrir heiður blaðs-
ins.
Kæra Vika!
. . . þetta með drauginn var svo
yfirmáta ósmekklegt, að ég hreint
og beint lagði blaðið frá mér eða
öllu heldur henti því, þegar kunn-
ingi minn sagði mér hið sanna.
Ég hef verið meðlimur í Sálar-
rannsóknafélagi fslands og tek
svona hluti alvarlega og kann
því mjög illa að þessi mál séu
höfð í flimtingum . . .
Nonni
Kæra Vika!
Ég hafði mjög gaman af mynd-
unum ykkar af draugnum og var
í vafa, hvort þið væruð að plata.
Menn töluðu um, að þið hefðuð
gengið af atómkveðskapnum
dauðum í fyrra með „Þokum“ og
Jóni Kára, en nú hafið þið líklega
stórskaðað draugatrú þjóðarinn-
ar.
H. T. S.
Pósturinn, Vikunni!
Gátuð þið nú ekki fundið upp
neitt frumlegra en þennan draug.
Var ekki Mogginn búinn að koma
með eitthvað álíka aprílgabb.
Maður veit varla hverju skal trúa
hjá ykkur, en myndirnar voru
vel teknar.
Gamall draugur.
--------Það var að vísu rétt,
að Morgunblaðið kom með „apríl-
frétt ‘ þar sem draugur kom við
sögu. En þess ber að geta, að
það b!að sem kemur út í vikunni
um miðjan apríl er unnið fyrst
í marz G vikum áður, eða um
það bil mánuði áður en Morgun-
blaðið bjó til sína ágætu drauga-
frétt.
Ást í sjoppu ...
Kæri Póstur!
Ég er nú í stórkostlegum vand-
ræðum og vona að þú getir hjálp-
að mér. Svo er mál með vexti að
ég er hrifinn af stelpu, sem ég
þekki alls ekki neitt. Hún af-
greiðir stundum í sjoppu á kvöld-
in, og þar er ég tíður gestur.
Hvernig á ég að fara að því að
kynnast henni?
Gefðu mér gott ráð ef þú kannt
nokkurt.
Vonast eftir svari fljótlega.
G.
--------Það getur orðið dálítið
kaldsamt að standa lengi fram-
an við söluop á sjoppu og hætt
við, að það næði gegnum biðils-
buxurnar. Samt get ég ekki gefið
þér annað ráð en að þú gefir þig
á tal við stúlkuna gegnum gatið
og reynir að vekja áhuga hennar
á þér með gáfulegu tali — eða
því tali, sem ykkur báðum felhir
bezt.
DÖMUR! MUNIÐ DIVINIA
divsniö
DEOCOlOGNE
DIVINIA
DEOCOLOGNE
SMART
FÆST í SNYRTIVÖRUVERZLUNUM OG VÍÐAR.