Vikan


Vikan - 07.05.1964, Síða 14

Vikan - 07.05.1964, Síða 14
'EG TRUI EKKI A PRAUGA Vikan heimsækir sr. Árelíus Níelsson Spurnartíminn með fermingarbörnun- um hófst með því að farið var með trúar- játninguna. Síra Árelíus fer á fætur klukkan sex á hverjum morgni og kemst sjaldan aftur í rúmið fyrr en um miðnætti. Þessa 18 tíma notar hann eftir beztu getu til að hjálpa náunganum á ýmsan máta - og náunginn endurgeldur honum með því að hringja hann upp á nóttunni og heimta meiri þjónustu. Textis G. K. Ljósm.s Kristján Magnússon Frú Ingibjörg Þórð- ardóttir og síra Árelíus Nielsson í dagstofunni heima hjá sér. Bretar hafa orðtæki um þá menn, sem eru svo hjálp- samir að þeir vilja öllum gott gera. Þeir segja að þeir „beygi sig afturábak" til að gera öðrum til hæfis. Mér datt þetta strax í hug, þegar ég var að tala við síra Árelíus. Ekki svo að skilja að þetta væri á nokkurn hátt óeðlilegt, því þetta er honum sýnilega ósjálfrátt, hvort sem það er áskapað eða áunnið. Maðurinn er þannig gerður, að hann vill öllum gott gera, og leggur sig allan fram til þess. Þeir sem tekið hafa í höndina á honum, vita kannske hvað ég á við, því að handtakið ber einmitt glöggan vott um þennan eiginleika. Hann sperrir liöndina, spennir úr lófanum svo að handarbakið myndar innhverfan hálfhring, og býður manni galopinn lófann, sem stundum er talinn sýna betur en nokkuð annað, hvernig viðhorf mannsins er gagnvart náunganum. Annað einkenni þessa eðlis síra Árelíusar, er kannske það, hve fljótt hann vill komast að efninu, og eyðir eng- um tíma til ónýtis í vífilengjur. Og kannske einmitt til þess að komast sem fyrst að innri hugsunum þess, sem hann talar við og um lteið kjarna málsins — þá notar hann sér þetta óbrigðula og gullvæga bragð, sem íslenzk- an gefur okkur, að fyrirlíta allar þéringar, en taka strax til við að þúa. Það brýtur ísinn eins og kjarnasprengja, og um leið og þú heyrir að hann segir „þú“ í fyrsta sinn sem þið sjáizt, hverfur þér öll feimni og yfirborðsskap- ur, og þú ferð að rabba við hann eins og gamlan skóla- félaga. Satt bezt að segja, þá veit ég ekki hvort þetta er kostur eða löstur, fyrir hann sjálfan. Það er vafalaust kostur fyrir alla þá, sem þurfa að ræða við hann, hvað sem viðræðu- efnið kann að vera. En árangurinn verður líka sá, að allir vilja við hann tala, og vegna þess hefur hann svo mikið að gera, að ef hann fengi einhverja greiðslu fyrir brot af þeirri vinnu, væri hann orðinn milljóner fyrir löngu síðan. En hann virðist ekki meta tímann í peningum. Það er ekki að sjá á lionum sjálfum, eiginkonunni hans né heimil- inu. Nú má enginn misskilja mig þannig, að þau séu klædd — VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.