Vikan


Vikan - 07.05.1964, Page 19

Vikan - 07.05.1964, Page 19
Þrátt fyrir alla okkar skóla, námskeið og kennslutíma virðist alveg vanta raun- góðar leiðbeiningar um það, hvernig menn eigi yfirleitt að haga sér á vinnustað, ef þeir vilja koma sér vel við yfirmanninn, og koma sér áfram í lífinu. Hér erum við á eftir öðrum þjóðum í menntamálum, og þarf að bæta úr. Ekki ætla ég mér samt þetta vandasama hlutverk, en leyfi mér aðeins að birta lítinn kafla úr leið- beiningum um það, hvernig menn eiga að haga sér á skrifstofum, ef þeir vilja komast áfram — og halda heilsu. Meðfylgjandi myndir skýra málið nokkuð. UNDIR FJÖGUR AUGU HVERNIG Á AÐ GANGA: Flestir hafa þannig atvinnu, að þeir mega ekki sitja kyrrir allan daginn. Þeir verða að fara á klósettið nokkrum sinnum, og það kostar töluvert erfiði að komast þangað. Þá er bezt að ganga svona. Axlir slappar. Hraðaaukning Mestur hraði Ef húsaskipan er þannig háttað, að maður þarf að fara framhjá skrif stofustjóranum á leiðinni, þá er nauðsynlegt að viðhafa þessa aðferð. AÐ SITJA RÉTT: Ástæðan fyrir því að menn sitja lengstum á skrifstofunni, er sú að á mjög fáum stöðum er þægilegur legubekkur, sem hægt er að leggja sig á. Ef maður hallar sér afturábak í stólnum, slappa vöðvarnir af, sérstaklega heilavöðvarnir. Deildarstjóri Skrifstofustjóri Framkvæmdastjóri Forstjóri VIKAN 19. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.