Vikan


Vikan - 07.05.1964, Side 41

Vikan - 07.05.1964, Side 41
ið henni að í'jörtjóni, ef ekki hefði verið komið að henni nógu snemma. Sem betur fór þá komst hún nógu snemma undir læknis- hendur, og svo rættist úr erfið- leikum hennar ótrúlega vel. Ég gleymi þessu tilfelli aldrei, og hugsa alltaf svo, að um eitt- hvað svipað gæti verið að ræða, þegar hringt er“. —- Þú hefur þá mjög lítinn tíma afgangs, til þinna eigin áhugamála? „Já, það er ekki mikill tími, en þó er það ekki svo slæmt, að slíkt beri aldrei við. Þá tek ég oft í píanóið og spila eitthvað um stund, því mér þykir mjög gaman að hljómlist". — Þú spilar á píanó . . . ? „Nóg til þess að gera mér gagn, og oft hefur það komið sér vel við ýmsar smáathafnir, þegar hljóðfæraleikara hefur alveg vantað. Ég var t.d. að skíra barn núna rétt áðan, og lék þá sjálf- ur undir sönginn. Ég hefi alltaf haft gaman að hljóðfæraleik, og lærði snemma nóturnar“. — Hverskonar músik hefur þú mest gaman af . . . ég á við hvers- konar músik það sé, sem þú leik- ur helzt fyrir sjálfan þig, sálma- lög, sígild verk . . . ? „Nei, sálmalög vil ég helzt hlusta á aðeins þar sem þau eiga heima, eins og í kirkju og við kirkjulegar athafnir. Sígild verk hlusta ég gjarnan á í góðu tómi, ef þau eru leikin af góðum hljóm- sveitum eða einleikurum. Nei, ég leik mér oftast að því að spila létt lög •—• jafnvel dansmúsik. Það hvílir hugann frá alvarleg- um málefnum dagsins. Ég spilaði á harmoniku í gamla daga, og bar það oft við að spila undir dansi á skemmtunum". — Og svo lestu náttúrlega bækur, þegar tími gefst? „Já, það geri ég sannarlega". — Og hverskonar bókmenntir eru það aðallega? „Ég les ýmiskonar góðbók- menntir en mest yndi hef ég af að lesa kvæði. Þegar maður hef- ur lítinn tíma, t.d. er maður lítur aðeins í bók rétt áður en maður sofnar, þá er mjög gott, finnst mér, að lesa eitt ljóð eða svo. Það er svo mikið í einu einasta ljóði, að það er stundum eins og heil bók út af fyrir sig. Stund- um er eitt ljóð mér feikinóg efni í heila ræðu, og það er mjög oft að ég gríp til þeirra, þegar ég er að skrifa ræður. Minn uppáhalds- höfundur, af erlendum höfund- um, er Kahlil Gibran. Hann hefur skrifað yndisfögur Ijóð. Hann var frá Lebanon. Þangað langar mig alltaf til að komast og vera þar jafnvel í heilt ár“. — Er hann látinn, þessi höf- undur? „Já, já. En það hefur verið alveg sérstakur maður, ef dæma má eftir ljóðum hans, og ég hefi orðið fyrir miklum áhrifum af honum. Það er annars skrýtið, að löngu áður en ég kynntist bók- um hans, kom það fyrir að mig dreymdi einhvern mann eða veru, sem ég kannaðist ekkert við. Ég sá hana að vísu aldrei greinilega, en svo þegar ég sá myndirnar af Gibran, þá fannst mér ég strax kannast við draumamann- inn minn þar. Fólk, sem getur séð meira en gengur og gerist, hefur stundum sagt að það sjái einhverja veru nálægt mér, sem það lýsir þannig, að þar þykist ég þekkja þetta uppáhaldsljóð- skáld mitt“. — Hvað segir þú um slíka hluti, Árelíus? Andatrú, drauga, skyggnt fólk og svoleiðis? „Ég hefi ekki miklar hugmynd- ir um þau mál, en læt mér nægja upplýsingar, sem byggjast á staðreyndum og heilbrigðri skyn- semi. Ég er ekki trúaður á drauga sem slíka, en gæti gjarn- an hugsað mér að ýmislegt sé til, sem ekki hefur ennþá tekizt að útskýra á vísindalegan hátt. Ég kynntist skrifum Einars Kvaran og Haraldar Nielssonar, og met þá mjög mikils, og síðan finnst mér eiginlega allt þetta kukl vera ósköp barnalegt. Ég hefi farið þrisvar eða fjórum sinnum á miðilsfundi, en ekkert séð þar eða heyrt, sem ég taldi markvert. Og yfirleitt finnst mér lítið til þessara funda og fyrirbæra koma. Að „fara í glas“ og svoleiðis finnst mér ósköp lítilfjörlegt. í sjálfu sér er margt fallegt í hugsjón spiritismans og ekki sízt hugmyndir, sem koma fram meira að segja í Ijóðum Jónasar Hallgrímssonar, sem var líka guðfræðingur að mennt, saman- ber ljóðið „Sízt vil ég tala um svefn við þig“ o. s. frv. Annars veit maður ekkert um þessa hluti, en verður bara að trúa því, sem manni finnst líklegast og feg- urst“. — Þú trúir semsagt ekki á drauga? „Nei, ekki eins og fólk túlkar þá hugmynd yfirleitt. Ég gæti vel hugsað mér að sálir framlið- inna gætu haft einhver áhrif á okkur, sem erum í þessum heimi, ef maður gæti verið móttæki- legur fyrir þeim, hvort sem er til góðs eða ills. Mér finnst ég stundum verða fyrir einhverjum slíkum áhrifum, og get jafnvel sett mig í þannig ástand. Ef ég hefi algert næði og loka augun- um, reyni að hugsa ekki um neitt ákveðið, þá fer oft svo, að mér finnst eins og einhverjir straum- ar eða ákveðnar hugsanir læðist til mín, og það er ekki sjaldan að ég notfæri mér af því þegar ég er að semja ræður. Svipað og með ljóðin, sem oft hafa sömu áhrif“. — Hvað er það af þínum störf- um, sem þér finnst leiðinlegast, Árelíus? „Leiðinlegust allra starfa finn- ast mér skýrslugerðir og allskon- ar færslur, sem alltaf er kallað etfir af ýmsum stofnunum. En nú er dóttir mín, sem er bæði kenn- ari og verzlunarstúlka að mennt, farin að hjálpa mér við það, og það er ómetanlegur léttir fyrir mig. Sama er að segja um ýmis önnur störf, — og raunar öll mín störf, að þau væri mér ómögu- legt að vinna án stuðnings fjöl- skyldunnar, sem er mjög sam- hent“. — Þú skrifar ræðurnar helzt á morgnana? „Já, það er bezti tíminn til þess, og ég geri það yfirleitt allt- af“. - - Ertu ekki orðinn þreyttur þegar þú kemst loks í rúmið að kvöldi eftir að hafa verið á eilíf- um þönum í 18 klukkutíma eða jafnvel meira? „Jú, stundum er ég það, og ef ég kynni ekki óbrigðult ráð við því, þá væri ég búinn að vera fyrir löngu síðan. Áður en ég lærði þessa list, var ég orðinn svo illa farinn, og slæmur á taug- um að ég var alveg að gefast upp. Það kom fyrir að ég var svo yfir- spenntur allan daginn, lá jafn- vel við grátköstum, og gat alls ekki „slappað af“ hvað þá heldur að mér tækist að sofna. Þá var það að einhver ókunnur Sólskin allt árið OSRAM VIKAN 19. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.