Vikan


Vikan - 07.05.1964, Page 44

Vikan - 07.05.1964, Page 44
KÍNVERSKIR, HANDSAUMAÐIR PÚÐAR, MYNDOFNIR OG VÍROFNIR. ENDURNÝJUM SÆNGUR OG KODDA - FUÓT AFGREIÐSLLA. HÖFUM EINNIG EINKASÖLU 'ó REST-BEST KODDUM. DÚN- 0 G FIÐURHREINSUNIN VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi) Sími 18740 hafði ekki greitt eyri til heimilis- ins í 3 mánuði, jafnvel þótt vitað væri að hann hefði um 5 þúsund krónur í kaup á hverri viku. Nú ætlaði Árelíus að reyna að tala um fyrir manninum, svo að fjöl- skylda hans þyrfti ekki lengur að lifa á bónbjörgum kunningja og vina, á meðan hann nyti um- hyggju einhverrar annarrar konu og lifði í vellystingum praktug- lega einhverstaðar úti á landi. Sálmasöngur fermingarbarn- anna hljómaði okkur í eyrum þegar við gengum út úr kirkj- unni klukkan rúmlega sex. Nú áttum við frí það sem eftir var dagsins, og höfðum engar áhyggj- ur af burtflognum eiginmönnum, týndum sonum eða örvita stúlk- um. Kannske það væri rangt hjá okkur. Kannske við ættum að gera eitthvað meira fyrir náung- ann. Kannske við séum vondir menn að vera svona eigingjarnir að vilja hafa okkar frítíma óskertan. Vafalaust væri heimur- inn betri, ef fleiri menn væru á ferli eins og séra Árelíus, menn sem reikna ekki ævina í krónum og vinnutímum, heldur frelsuð- um sálum og náungakærleika. En þegar við erum búin að eyða okkar jarðnesku launum, og skiljum eftir okkar áþreifan- leug sjóði hérna megin, þá eiga þeir vafalaust gilda sjóði af að taka . . . Við skulum hugga okkur með því, að kannske getum við sleg- ið þá um einn eða tvo sálarvíxla á meðan við erum að koma undir okkur fótunum í hreinsunareld- inum. G. K. MARTRÖÐ Framhald af bls. 13. oft lengi á leiðinni, en þá hafði Cal látið koma upp leyniloft- skeytastöð, sem annaðist send- ingu þeirra frá Peking til Form- ósu. Mai Sin-ling hafði nokkra menn í þjónustu sinni, sem öfl- uðu upplýsinga, og auk þess traustan bakhjarl, þar sem var stórkaupmaður einn, sem hafði með höndum mikla útflutnings- verzlun, og var kommúnistastjórn landsins nauðsynjamaður vegna gjaldeyrisins, sem hún fékk, bæði í dölum og sterlingspund- um, fyrir milligöngu hans. En loftskeytasendingar voru að sjálfsögðu alltaf hættulegar, og færi svo að allt kæmist upp, átti að vera það tryggilega um hnút- ana búið, að Mai Sin-ling þyrfti ekkert að óttast, nema þá að ein- hverjir af þeim, sem voru í þjón- ustu hennar, eða þá stórkaupmað- urinn, létu eitthvað uppskátt. Hjá því varð þó ekki komizt að hætta á það — þegar eldflaug getur þotið heimsálfanna á milli á tuttugu og fjórum mínútum, verða mikilvægar, hernaðarlegar upplýsingar, að geta borizt með hraða ljóssins. Cal spurði sjálfan sig oft hvað henni gæti í rauninni gengið til. Hatur á því stjórnmálakerfi, sem hrakið hafði móður hennar í út- legð og svipt hana öllum eign- um? Hatur á föðurnum, sem gengið hafði á mála hjá þeim, sem fóru með völdin hverju sinni? Ást og virðing á banda- rískum foringja, sem þá var löngu látinn? Peningar? Nei, peningar komu þar áreiðanlega ekki til greina. Kannski var hún haldin sjúklegri hneigð fyrir áhættu og tvísýnu. Hann hafði kynnzt bæði mönnum og konum, sem þannig var ástatt um. Kannski stefndi hún að völdum, annaðhvort til handa sjálfri sér, eða einhverjum, sem hún unni nú hugástum. Eða kannski var hún eingöngu skarpgáfuð kona, sem sá í gegnum allan blekking- arvefinn,. vissi mun góðs og ills og gerði sér .grein fyrir þeim ör- lögum, sem þjóð hennar voru búin, væri ekki að gert — og hag- aði sér samkvæmt því. Sú tilgáta var alls ekki ósennileg. Cal vissi það, að margir af þeim, sem unnu honum bezt, gerðu það alls ekki vegna launanna, heldur fyrst og fremst af því, að þeir voru sann- færðir um að þeir væru með því að berjast fyrir góðum málstað. Beztu og traustustu njósnararn- ir voru einlægir föðurlandsvinir. Cal var ekki í neinum vafa um áreiðanleik hennar, eða óvefengj- anlegt mat hennar á sannleiks- gildi þeirra upplýsinga, sem hún aflaði sér, og þó sízt um hug- rekki hennar og ráðsnilli. Mai Sin-ling gegndi mikilvægu hlut- verki innan Pekingstjórnarinnar sem ástkona voldugs embættis- manns, er áður hafði verið einn af traustustu stoðum og trúnað- armönnum Maos og var enn áhrifamikill í miðstjórn kín- verska kommúnistaflokksins. Klukkan var um sjö að morgni, þegar hann ók af stað að heim- an til skrifstofu sinnar í því mikla húsbákni úr steinsteypu og gleri, þar sem aðalstöðvar upplýsingaþjónustunnar voru til húsa. Þegar hann var setztur þar inni við skrifborð sitt, kom inn varðmaður, einkennisklæddur, með marghleypu dinglandi við mjöðm, og færði honum læst stálhylki, þar í voru skeyti þau og tilkynningar, sem borizt höfðu um nóttina og vörðuðu sérdeild hans, Kínaskrifstofuna. Fyrsta dulmálsskeytið var und- irritað ,,Melanía“, og var það svar við áríðandi fyrirspurn hans. Það var fullar fimm arkir. Melania tefldi á tæpasta leikinn, þegar hún sendi svo langt skeyti á öldum ljósvakans, þar sem ótal hljóðnæm eyru lágu á hleri öll- um stundum. Það var áreiðan- legt, að þess yrði ekki langt að bíða að gagnnjósnadeildin kín- versku komúnistanna tækist að miða leynisendistöðina, ef sú áhætta yrði oftar tekin. Hann fór að lesa skeytið, og var fljót- ur að komast að raun um að slíkur glannaskapur var réttlæt- anlegur; hún hafði teflt þannig á tvær hættur eingöngu fyrir það hve mikið var í húfi. Hann las allt skeytið einú sinni og síðan aftur af meiri gaumgæfni. Lagði sér mikilvægustu setningarnar vandlega á minni, því að sjálf- sögðu mátti ekki taka svo mikil- UNGFRU YNDISFRIÐ býður yður hið landsþekkta konfekt frá N Ó A. HVAR E R ÓRKIN HA^S NOA? ÞaS er alltaf saml lelkurlnn I hénnl Yntt- lsfrtS okkar. Hún hefur faliS örkina hans Nóa elnhvers staSar i blaSinu og heltir góSum verSIaunum handa þeim, sem getur fimdlS firkina. VerSlaunln eru stór kon- fektkassi, fullur af bezta konfektl, og framlciSandinn er auSvltaS SælgætisgerS- in Nói. Nafn HelmlU örkln er & bla. . SfSast er dregiS var hiaut verSlaunln: BARÐI FRIÐRIKSSON, Kjartansgötu 8, Rvík. Vinninganna má vitja á skrifstofu Vikunnar. 19. tbl. ££ — VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.