Vikan


Vikan - 13.05.1964, Síða 2

Vikan - 13.05.1964, Síða 2
fullri alvöru: r» Lögvernduð ósanngirni Sextíu menningarvitar ákváðu það á dögunum, að íslenzk menning liefði ekki styrk til að komast óspjölluð frá vallarsjón- varpinu. Sama þótt allur almenn- ingur skilji ekki nema lítið eitt af þvi, sem þar fer fram; þessi viðkvæmi lilutur, íslenzk menn- ing, mundi riða til falls og ger- ast amerísk i náinni framtið ineð sama áframhaldi. Nú liefur verið státað af því, að íslendingar lesi meira en | aðrar þjóðir, gefi út tiltölulega meira ai' bókum en nokkur önn- ur þjóð. Við viljum láta útlend- inga hafa þær hugmyndir, að við lesum alll milli himins og jarðar I og séum þar af leiðandi mennt- aðir fram úr hófi. Aftur á móti er það fróðlegt til athugunar, liverja aðstöðu valdamenn þjóðarinnar búa út- gáfustarfseminni. Um það er ekki talað i ræðum. Ef menning- arvitarnir sextíu athuguðu það mál niður í kjölinn, er hætt við að þeir gæfu alveg frá sér alla von um áframhaldandi islenzka menningu. Bókaþjóðin cr af valdhöfum sínum neydd til að lita á sæmi- legan pappir sem lúxusvarning og islenzk útgáfufyrirtæki eru af eðlilegum ástæðum ekki svo öflug, að þau liafi efni á lúxus. i Kjarni málsins er sá, að það er hægt að fá dagblaðapappír tollfrjálsan. Stjórnmálaflokkarn- I ir hafa séð um það til verndar málgögnum sínum; um annað varðar þá ekki. Allur annar ' pappír er hátollavara. Af þessum ástæðum á íslenzk bóka og blaðaútgáfa erfill upp- dráttar og geta leikir sem lærð- ir séð þann mismun, sem er á a erlendum bókum og tímaritum. I Sá innflutningur er hinsvegar tollfrjáls svo segja má, að út- lend útgáfustarfsemi hverskonar j sé vernduð hér á Islandi. Hvað segið þið um þetta hinir áhyggju- fullu menn, sem berið menning- una fyrir brjósti? Er það menn- ingaratriði eða ekki að gehi út fallegar bækur og snyrtileg tíma- rit? Hvernig væri, að þið semd- , uð svo sem eitt iirvæntingar- j fullt ávarp til valdhafa þjóðar- Framhald á bls. 42

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.