Vikan


Vikan - 13.05.1964, Page 9

Vikan - 13.05.1964, Page 9
gert sér far um að hótelið líkist sem mest einkaklúbbum og forðast auglýs- ingar eins ókaft og önnur hótel sæk|ast eftir þeim. Það var ekki fyrr en eftir ítrekaðar tilraunir og ókveðnar athugasemdir um að ég hefði unnið sem þjónn á Claridge's um stuttan tíma fyrir fiórtán árum síð- an, að kallaður var saman st|órnarfund- ur til þess að ræða þá beiðni mína, að fá að skrifa um hótelið. Þremur dögum síðar var mér tilkynnt, að Hugh Wonter, formaður stiórnar Savoy hótelanna, en Claridge's er fremsta hótelið í þeirri sam- steypu, hefði samþykkt að ég talaði við yfirmenn hinna ýmsu deilda. þeim ákveðna degi vísaði Willi- am Upson, dyravörður á Clar- idge's í tuttugu ár, í glæsileg- um einkennisbúningi með gyllt- um hnöppum og háan hatt, mér með miklum virðuleik inn í hótelið. Ég fylgdi honum i gegnum eyðileg- an marmaraforsalinn inn i setustofuna, þar sem þögn og hátíðleiki ríkti, eins og þarna væri helgur staður. Það var eins og manni yrði erfitt um andardrátt í þessu þunna lofti með örlitlum fín- legum myglukeim. Við afgreiðsluborðið stóðu menn í röndóttum buxum og síð- um iökkum, sem höfðu nánar gætur á öllu, meðan þiónar í stuttbuxum og glit- ofnum jökkum gengu hljóðlaust um, eins og froskaþiónarnir úr „Lísu í Undra- landi". „Maður hefur á tilfinningunni", sagði Greer Garson við mig, ,,að vera allt í einu kominn í skrautlega búna D Oyly Carte upptöku á óperettu eftir Gilbert og Sullivan — það ætti reyndar engum að koma á óvart, þegar það er haft í huga, að D Oyly Carte fjölskyldan eru aðalhluthafarnir í hótelinu". í lítilli og fátæklega búinni skrifstofu bak við afgreiðsluborðið var Mr. H. Van Thuyne, grannur maður og unglegur í útliti, svo, að það er erfitt að trúa því, að hann hafi verið framkvæmdastjóri Claridge's síðan 1939. Hann fullvissaði mig um, að þetta sérstaka andrúmsloft i hótelinu væri árangur af mjög vandlegri áætlun. Meðan hann talaði við mig, hafði hann gætur á tveimur Ijósum, öðru grænu og hinu rauðu, á veggnum við skrifborð- ið sitt. „Þegar dyravörðurinn kveikir á græna Ijósinu einu sinni, þýðir það að gestur sé að koma og að þjónustufólkið og að- stoðarframkvæmdastjórinn séu tilbúin að taka á móti honum á viðeigandi hátt. Grænt Ijós þrisvar í röð þýðir að gestur óski eftir að hitta mig sjálfan. Þrjú rauð Ijós gefa til kynna, að gestur sé á förum, sem þurfi að kveðja. „Við leggjum mikla áherzlu á, að hlífa gestum okkar við óþægilegum trufl- unum af öllu tagi", sagði Van Thuyne. Þar á hann sjálfsagt við, að þeir losi þá við blaðamenn, kvikmyndaaðdáendur og annað verra. Til dæmis hefur verið sagt frá' því, að Barbara Hutton byggi i hótelíbúð nr. 112 — en hún er alls ekki til. Það getur verið erfitt að hafa upþ á gesti, sem vill fara huldu höfði. Van Thuyne vildi ekki segja okkur frá neinu frásagnarverðu, sem komið hefði fyrir á hótelinu. „Við getum ekki fleytt okkur á frægð gesta okkar", sagði hann. í þrjá daga var mér þjónað í setustof- unni af þjóni að nafni Carter (hafi ein- hver af þjónustuliðinu skirnarnafn, er það a.m.k. aldrei nefnt). Ég þekkti hann aftur frá þvi að hann var yfirmaður minn, þegar ég var þar lærlingur. Hann gaf ekki andartak til kynna, að hann þekkti mig. Loks sagði ég: „Heyrið nú Carter, þér hljótið að þekkja mig aftur?" Svipur hans breyttist. „Já, herra minn, auðvitað. En það var ekki mitt, að minnast á það að fyrra bragði". Slík hlédrægni og hæverska er ein- kenni þjónustufólksins á Claridge's. Sé hæverskan ekki meðfædd og eiginleg, þegar það byrjar starf sitt á hótelinu, kemst það ekki hjá því að öðlast hana i ^ in nákvæma leikni og kunnátta, sem hefur svo mikil áhrif á viðskiptavinina, er árangur mikils aga og erfiðrar vinnu af þjónustufólksins hálfu. Ég man t.d. eftir því, að áður en lærlingarnir hjálpuðu þjónunum við að bera fram hádegisverðinn, þurftu þeir að sýna neglur sínar. Allar pantanir sem farið var með í eldhúsið þurftu að vera sagðar á frönsku. Silfurplettfötin eru mjög þung og eldhúsið liggur langt frá borð- salnum. Að kvöldi voru pappírsvestin, sem þjónarnir bera undir kjólbúningnum, oftast blaut af svita. En hamingjan hjálpi þeim þjóni, sem er seinn. Einu sinni, þegar ég kom seint inn i búningsherbergið eftir að hafa hjálp- að við að bera hádegisverðinn á borð, fann ég hóp af eldri þjónum þar, sem hölluðu sér upp að veggnum. Þeir tóku duglega í mig — og skýringin var sú, að þyrfti viðskiptavinurinn að bíða eftir þjón- ustu, yrði hann óánægður og það þýddi aftur enga drykkjupeninga. En þar sem drykkjupeningarnir voru látnir f sérstakt Framhald á bls. 39. Lúxusbíll stanzar fyrir utan Claridge's. Meira aö segja hrein- gcrningakonan kcmur í slíkum bíl. ÍSLENZKU FORSETAHJÖNIN BJUGGU A CLARIDGES MEÐAN A LUNDÚNAHEIMSÓKN ÞEIRRA STÓÐ SL. ÁR. ÞAR BÚA FLEST ALLIR ÞJÖÐHÖFÐINGJAR, SEM GISTA LONDON; ÞAR ER FULLKOMNARI ÞJÖNUSTA EN í NOKKRU ÖÐRU I HÓTELI OG EINSKONAR „VERND“ | FYRIR ÞA ÚTVÖLDU, SEM ÞAR FA INNI. VIKAN 20. tbl. 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.