Vikan - 13.05.1964, Síða 55
móti hvassri norð-austanátt.
Nú víkur sögunni upp í
Straumfjörð. Við vorum þar
tveir á gangi og undruðumst sigl-
ingu þessara tveggja skipa, sem
stefndu beint inn í skerjagarð-
inn. Voru þetta snarbrjálaðir
menn? Allt í einu tókum við eft-
ir því, að annað skipið var
strandað.
Ég flýtti mér inn og sagði fóst-
urföuðr mínum tíðindin. Hvað
mátti nú til varnar verða? Eng-
inn sími fyrr en uppi á Langár-
fossi en þangað voru þrjátíu km.
yfir vegleysur að fara. Guðjón
var ekki lengi að hugsa sig um.
Hann bað okkur að ná í hesta
meðan hann byggi sig, og svo
af stað. Hann komst upp eftir
á mettíma og hringdi þaðan í
Slysavarnafélagið og sagði
hvernig ástatt væri þar efra.
Varðskipið Þór var sent á strand-
staðinn hið snraasta en þegar
þangað kom sáu varðskipsmenn
mannlausan togarann, sem þá
var tekinn að sökkva. Hvað orð-
ið hafði af mönnunum vissi eng-
inn.
Mörgum klukkutímum síðar
sáu menn í Garði bát undan
landi. Þarna voru togaramenn
komnir, hafði hrakið undan
storminum, sem þó var ekki
nema þrjú til fjögur vindstig,
þvert yfir Bugtina. Þegar suður
kom var einn dáinn úr vosbúð.
Hinir náðu heilsu eftir því sem
ég bezt veit. Vafasamt er að nokk-
ur hefði náð landi hefði verið
verra veður, rok og kuldi. Hvort
rannsókn á þessu strandi hefir
nokkurntíma farið fram er mér
ókunnugt um.
Þetta eru aðeins nokkur af
þeim ótrúlega fjölda slysa, sem
hent hefir sjófarendur við Mýr-
ar á þessari öld. Og ótalin eru
þau mannslíf, sem farizt hafa á
Hraununum vestur af Þormóðs-
skeri.
Sv. S.
ERKIHERTOGINN OG
HR. PIMM
Framhald af bls. 22.
um að óvörum, þeir myndu berja
hann niður; og síðan þegar þejr
kæmu á lögreglustöðina með
einn bófann, myndi lögreglan
ekki hafa neina ástæðu til tor-
tryggni. Jæja þá? Hvað fannst
þeim um þetta?
Julian sagði: — Ég er tilbúinn.
Eddie sagði: — Þetta lízt mér
á, Mr. Pimm, nú verður líf í
tuskunum. Það er bezt að jafna
yfir hausamótunum á þessum
þorpara.
Henri sagði: —- Eftir hverju
erum við að bíða? Af stað með
okkur.
í fjarska heyrðist klukkan slá
9, þegar Julian lagði bílnum
handan við hornið og gekk á
undan þeim inn í skuggalegu
þrjár undraverðar breytingar
hafa orðið á LUX
$ NÝJAR aðlaðandi umbúðir
^ NÝTT glæsilegt lag
NÝR heillandi ilmur
Hin fagra kvikmyndadís Antonella Lualdi
vill ekkert nema Lux-handsápu. Ástæban
er sú, að hin mjúka og milda Lux-handsápa,
veitir hinu silkimjúka hörundi kvenna þá
fullkomnu snyrtingu, sem það á skilið.
Lux-handsápan, sapan sem 9 af hverjum 10
kvikmyndastjörnum nota, fæst nú í nýjum
umbúðum, með nýrri lögun og með nýjum ilm.
Veljib ybur hina nýju eftirsóttu Lux-handsápu.
í hvitum, gulutn, bleikum, bláum eba greenum lit.
Verndið yndisþokka yðar tneð LUX-handsápu
X-lTt t«»/IC «4«"‘
TVÖ N Ý HEFTI
Þriðja heftið af Nýjum danslagatextum
var að koma út. í heftinu eru aðeins
íslenzkir textar við öll nýjustu lögin.
Beatles ' — mynda- og danslagatexta-
hcftið er fyrir nokkru komið út í því
eru 23 textar við Beatleslög og 23
myndir af þessari heimsfrægu hljóm-
sveit.
Sendið kr. 25,00 fyrir hvoru hefti og
þið fáið það sent um hæl burðargjalds-
frítt.
NÝIR DANSLAGATEXTAR
PÓSXHÓLF 1208 — RVÍK.
VIKAN 20. tbl.
55