Vikan


Vikan - 04.06.1964, Side 15

Vikan - 04.06.1964, Side 15
Hver veit hvað lifir og hvað deyr Texti Sigurður Hreiðar A vera staddur í stórborg um nótt setur mann í eins konar reyf- arastemmningu. Fólkið, sem lifir og hrærist á staðnum og maður sér skjótast framhjá, undir regnhlífum og inni í bílum, er ekki lengur ein- staklingar með einkalíf, heldur sögu- persónur í bók, sem maður á eftir að lesa. En kápan er lokkandi og höfundurinn sagður spennandi, svo bráðum segir einhver í hópnum: — Eigum við ekki að reyna að kom- ast inn á næturklúbb? Eða: — Eig- um við að fara að sofa strax? Eig- um við ekki að reyna að sjá svo- lítið meira af borginni? Það þarf ekki meira til. Allir vita þó undir niðri, að dansandi fólk hér á Bretlandi, er ekkert frábrugð- ið dansandi fólki á íslandi, a.m.k. ekki í aðalatriðum. Það kannski bærir fæturna eitthvað öðruvísi og hefur aðrar aðferðir við að hjóða upp, en þar með er líka sagan sögð. Og þó: Næturklúbbur hlýtur að vera eitthvað meira en t.d. Borgin, að minnsta kosti er ímyndunaraflið svo vakandi, að mýflugan verður auðveldlega að úlfalda. Við erum í boði Flugfélags ís- lands, hópur íslenzkra blaðamanna í London. Kvöldverðurinn í Hilton- hótelinu er að baki með öllum sín- um ágætu bröndurum og við stönd- Framhald á bls. 34.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.