Vikan


Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 36

Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 36
Viðlegu- og ferðaútbúnaður er góð tækifærisgjöf Munið að úrvalið til tækifærisgjafa er í Kjörgarði - Laugavegí 59 PÓSTSENDUM TJÖLD HVÍT OG MISLIT MARGAR GERÐIR. SÖLSKÝLI TÖSKUR M/MATARÍLÁTUM (PICNIC). SVEFNPOKAR VINDSÆNGUR BAKPOKAR SÓLSTÓLAR MARGAR GERÐIR. GASSUÐUTÆKI MARGSKONAR. FERÐAFATNAÐUR ALLSKONAR. GEYSIR H/Fv TEPPA OG DREGLADEILDIN Svo hélt hann áfram: — Hverrar þjóðar ert þú? — Ég? Auðvitað íslenzkur. — En þú ert ekki Eskimói? — Nei. Það er enginn Eskimói á íslandi. Við erum alveg eins og Bretar. Það voru Norðmenn og írar, sem fundu ísland og byggðu það. — En þú býrð þó í snjóhúsi? —■ Nei. Á íslandi búa menn í betri húsum en hér í Bretlandi. — Auðvitað, já. Það er svo kalt þar. -— í morgun var miklu hlýrra þar en hér, og hefur verið svo í vetur. — Einmitt? Hann vildi ekki lýsa mig lygara, en svipurinn sagði: Blaðamenn á íslandi eru sem sagt engu minni lygalaupar en hér á Bretlandi. Hann vætti neðri vörina og tók sér drjúgan tíma til þess. Svo spurði hann: — Hvenær urðum við frægir á íslandi? Ég renndi huganum aftur á bak til þess að rifja upp, hvenær ég hefði fyrst heyrt um þá. Svo mundi ég það: Það var síðast í nóvember, sama daginn og Sig- urður Benediktsson hélt uppboð- ið á Kjarvalsmyndunum. —■ Það hefur verið svona í nóvember eða desember. — Þá vorum við búnir að vera frægir lengi. — Hvenær urðuð þið frægir hér heima? — f janúar í fyrra. Hvernig atvikaðist það? — Hvernig? — Já, ég meina — byrjuðuð þið þá að spila og syngja eins og þið hafið gert síðan, eða kom- uð þið þá fram í sjónvarpi eða hvað? — Nei. Það varð bara svona. Við spiluðum á plötu, og þá urð- um við frægir. — Voruð þið þá að byrja? — Nei. Við vorum búnir að spila saman um tíma. — Hvar? — Hér og þar. Bara á litlum stöðum. — Hafið þið alltaf spilað og sungið í þessum sama stíl? Hann glennti upp skjáina og glápti á mig, eins og það væri ég, en ekki hann, sem var furðuverk- ið. Svo kinkaði hann ákaflega kolli, svo við lá, að ég fengi hnerra. — Já, auðvitað, sagði hann svo. — Hefur ykkur aldrei dottið í hug að breyta til? — Hvers vegna? Hvað er vin- sælla? — Hafið þið alltaf verið sam- an, þessir sömu menn? — Nei. Fyrst voru Paul og John og tveir aðrir strákar, en svo hættu þeir, og við Georg komum í staðinn. -— Þeir sem hættu, sjá þeir ekki eftir því núna? — Svo sannarlega, sagði Ringó „vinur minn“ af þunga. — Græðið þið ekki mikið á þessu? — Ekki neita ég því. — Hvað mikið? ■—■ Það er misjafnt. — Eru peningarnir eina drif- fjöður ykkar? —■ Peningar eru góðir. Við gef- um mikið til mannúðarmála. — Af hverju? — Af því að það er ekki rétt að hjálpa ekki öðrum, þegar mað- ur getur það. — Er þetta ekki kommúnismi? —■ Ég þekki ekki pólitík. — Ertu ekki með mynd af ykkur, sem ég gæti fengið? — Nei, ég á frí í kvöld. En þú getur keypt hana hvar sem 'er. Þetta samtal hafði gengið trufl- unarlítið. Að vísu höfðu fleiri blaðamenn áhuga fyrir að tala við Ringó, en þjónalið hússins gætti þess vel, að hann væri ekki ónáðaður. Og líklega hefði ég átt að greiða aðstöðugjald fyrir að geta talað við hann um öxl, en þar að auki hafði ég fengið leyfi. Og nú virtist það koma aftur upp í huga hans, því hann spurði: - Biðja blaðamenn á íslandi um leyfi, áður en þeir ráðast að einhverjum með spurningar? —- Alltaf. — Það er gott. Það gera blaða- menn hérna ekki. Og ekki heldur í Ameríku. -—■ Hvernig var ykkur tekið í Ameríku. — Vel. Vel. — Hvað hafið þið ferðast meira? — Til Svíþjóðar, Frakklands og Þýzkalands. — Og viðtökurnar? — Alls staðar mjög góðar. — Líka í Þýzkalandi? — Já. — Samt er þeirra dægurmúsík allt öðru vísi en ykkar. ■— Já, allt öðru vísi. En þeir tóku okkur vel samt. Og mér er sagt, að þeir séu að byrja í okkar stíl. Það var orðið töluverð ókyrrð við borð bítilsins. Sjálfsagt var það ekki vel liðið, að ég héldi honum svona uppi á snakki. Það var komið fararsnið á mannskap- inn. Ringó bítill hafði eiginlega snúið baki við mér. Ég reyndi að ná athygli hans á nýjan leik og spurði: Heldurðu ekki, að Beatles- æðið fari að minnka? Iívers vegna það (why should it)? — Ganga ekki allir svona faraldrar yfir? — Hver veit fyrirfram, hvað lifir og hvað deyr? Þar með stóð Ringó „vinur minn“upp til að fara. Látbragðið gaf greinilega til kvnna, að við- talinu væri lokið. Ég flýtti mér að koma með lokaspurninguna: — Ætlið þið ekki að koma til íslands? Hann leit niður á mig, þar sem gg — VIKAN 23. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.