Vikan


Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 44

Vikan - 04.06.1964, Blaðsíða 44
kvenskórnir þægilegu og vinsælu komnir aftur. Margir litir og gerSir L (B C 0 (/) w ‘0) L TJ C « BELMONT § f barnaskórnir ? ’ fallegu. J 5 Margir litir g | ogstærðir nýkomnar. U) 1 Hrein frísk heilbrigö húö HeilbrigS hú8 [ 4 »Hli8i! Finnsf yðor það ekki vera aJhyglisverf, að Nivea skoll vera |afn vinsœlt og nýtízkulegf og fyrir 50 órum. bó uppgctvuðu vísindamenn Ezurit, sem gerði það mögu* legf, oð nera húðina með fifu og raka. Fegrunarsérfreðingar segia f dag: Nivea getur olls ekki verið betrd, hvort sem um er að ræða Nivea- ereme eða hina nýju Nivea-milk. Og reynsla hlnna mörgu millióna sem nota Nivea sýnir það dagiega: Só, sem snyrtir húð sfna reglulega með Nivea, heldur henni hreinnl, ferskri cg heilbrigðrl. þess að það hafi öðrum fremur til- efni til þess — oft einmitt þvert ó móti, en það ó meiri lífskraft og það gerir muninn". „Þú svaraðir mér því um daginn, að þú hefðir ekki kennt neins ótta eða kvíða, þegar þú varst að und- irbúa sýninguna. Hafðirðu þá ekki heldur neinar áhyggjur af væntan- legum viðtökum eða dómum?" „Nei, blessaður vertu. Ég var fyrir löngu búinn að gera það upp við mig, að ég ætti ekki neitt á hættu. Ég átti bátinn minn og byss- una fyrir vestan. Færi svo, að þið í Reykjavík hefðuð mig að háði og spotti fyrir þetta tiltæki mitt, þá gat það hvorki haft nein áhrif á fiskinn né tófuna. Last eða skamm- ir gátu ekki heldur á mér hrinið, því að ekki gerði ég neinum miska með þessu. Það eina, sem mér stóð kannski ekki á sama um, var að ég kynni að taka þennan orku- sóunarfaraldur, sem ég tel öllum kvillum hættulegri, var hægur nærri að bæta mér það tap, þegar ég kæmi vestur aftur. Ég þekki fiöllin þar og þau þekkja mig og þykir vænt um mig, og þar veit ég staði, sem búa yfir óvenjumikilli orku til handa þeim, sem geta veitt henni viðtöku". „Áttu þar við þá kenningu vissra dulspekinga, að einskonar hug- mögnunarstöðvar fyrirfinnist f grennd við Snæfellsjökul?" „Ég er ekki að kenna þér neina innflutta dulspeki — ég er að kenna þér galdramannasálfræði undan Jökli, sem er allt annar handlegg- ur og ekki lakari, að minnsta kosti ekki ómáttkari. Ég hef sjálfur verið á fiöllum meira en fólk almennt, og ég hef fundið þessa orku, þó að ég viti ekki í hverju hún er fólgin. Sé einhver þrotinn að lífs- krafti, er áreiðanlega ekkert ör- uggara en að fara með hann á fjöll. En það er ekki sama hver fjöllin eru, eða hvar er á fiöllunum, það hef ég líka fundið. Hvergi hef ég orðið var janfmikillar orku og aust- anvert við Snæfellsjökul; kannski líka í Breiðuvíkurfiöllum. Ég er ekki einn um þetta. Ég hef heyrt marg- an greindan og athugulan mann fullyrða, að hann finndi þennan kraft leggja á móti sér, þegar kæmi í Axlarhóla. Þú getur séð það af sögunni, að hvergi var alþýðan ofstopafullum valdsmönnum erfið- ari, eða brúkaði eins kjaft við hrokafulla höfðingja og einmitt und- ir Jökli. Ekki fyrir það, að þetta fólk byggi við meiri velmegun eða ætti meira undir sér en alþýða manna annarstaðar. Það sótti þenn- an kraft beint í landið sjálft. I fiöllin . . ." „Ég get nefnt þér önnur dæmi. Ég tel, eins og ég sagði áðan, að lífshamingjan sé fyrst og fremst fólgin f lífskrafti. Þar vestra hefur löngum legið það orð á okkur, refa- skyttunum, að við værum öðrum lífsglaðari, enda erum við mikið á fjöllum. Kristján refaskytta f Glaumbæ, sem nú er látinn, var til dæmis kunnur fyrir það, að hann kom öllum í gott skap, hvar sem hann bar að garði; það bókstaflega gneistaði af honum lífsgleðin og lífsorkan og magnaði alla í návist hans. Tjón og óhöpp festi ekki á honum, frekar en skvett væri vatni á gæs, og var hann þó maður fátækur, eins og allir þá. Eitt vor- ið missti hann tólf gemlinga í sjó- inn. Nokkru seinna, þegar hann var að koma af greni, leit hann inn hjá okkur heima. Ég var stráklingur þá, en enn get ég séð karlinn fyrir mér, þar sem hann gekk um gólf í bað- stofunni og tottaði pípuna. „Það er ekki annað en eitt af lögmálum lífsins", sagði hann, „að þeir verða að missa, sem eiga. Og hefði ég ekki átt þessa helvftis gemlinga, þá hefði ég ekki heldur misst þá". Þessa lífsgleði sína og lífskraft sótti hann á fiöllin, það er ég ekki f neinum vafa um". „Og álíturðu þá, að það hafi kannski verið fyrir þessa orkumögn- un umhverfisins og kraft úr fjöllun- um, að hugsanakynngi fólks var svo sterk vestur þar f vissum ættum; eðlisávísun manna f sambandi við veiðar og veður næm og óskeikul og skyggni almenn?" „Ég tel vafalaust að þessi kraft- ur í umhverfinu hafi átt sinn þátt í því. En svo var líka margt annað, sem til greina kom, fátæktin, ein- angrunin og miskunnarlaus lífsbar- áttan; þetta hefur áreiðanlega allt hjálpast að. Víst er um það, að þetta fólk var sterkt og tók dauða og sorg án þess að láta bugast. Þegar faðir minn vissi sig eiga skammt eftir, bað hann mig gefa líkmönnunum í staupinu, þegar þeir færu að taka sér gröfina; það væri leiðindaverk og veitti ekki af svo- lítilli brjóstbirtu við það. Ég gerði sem hann bað — fór til líkmann- anna ofan f gröfina og gaf þeim brennivínstár. Kona nokkur á Stapa, nú löngu dáin, missti manninn í sjóinn frá mörgum börnum. Á ver- tíðinni fór hún hvað eftir annað fót- gangandi, þrjátfu og fimm kíló- metra leið, inn á Sand, sótti þangað fisk, lifur og hrogn og bar heim handa börnunum, oft í verstu færð. Og ekki var þetta fólk heldur að gera sér rellu út af smámunum, eða safna að sér áhyggjum frekar en hjá var komizt. Ég get sagt þér smásögu um það. Hún er líka af konu, þó að aðstæður allar væru ólíkar. Nágrannakonur hennar komu í heimsókn, var mikið niðri fyrir, og þóttust hafa hörmuleg tíð- indi að segja. Hún bað þær segja þau sem skjótast, því fyrr tæki af. Jú, þau hörmulegu tíðindi voru í því fólgin, að bóndi hennar væri farinn að halda framhiá henni, og lýstu þær því allýtarlega, sem þeirra var von og vísa. Þá hló kon- an. „Ósköp og skelfing er ég feg- in", sagði hún, „það er þó sú ferð- in, sem fer framhjá mér . . ." „Þú segist vera að kenna mér það, sem þú kallar galdramanna- sálfræði undan Jökli. Hefurðu þá sjálfur lagt stund á þau fræði, Þórður?" 44 — VIKAN 23. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.