Vikan - 11.06.1964, Síða 4
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN
I VEXSÁPAN
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN
Vex handsápurnar hafa
þrennskonar ilm.
Veljid ilmefni viðydar hæfi.
m
EFNAVERKS M I Ð J A N I Cljöfn)
^ — VIKAN 24. tbl.
„Notaður" konfekt-
kassi
Kæri Póstur!
Þú ert svo öruggur í öllum
kurteisisvenjum, Póstur mínn, að
mig langar til að spyrja þig um
eitt atriði, sem hefur farið dá-
lítið í taugarnar á mér.
Því er þannig varið, að ég er
mjög gefin fyrir bækur, og þetta
vita flestir mínir kunningjar.
Þess vegna er það, að mér eru
oft gefnar bækur á afmælinu
mínu og á jólum.
Ein vinkona mín — sem oft
gefur mér bækur — hefur þann
sið, að hún les bækurnar ávallt
áður en hún gefur þær. Þetta
viðurkennir hún fúslega og finnst
ekkert við það að athuga. En mér
sárnar þetta og líkar illa, að fá
„notaða“ bók að gjöf. Einhvern-
veginn finnst mér hún vera að
kaupa bókina eins mikið sín
vegna og mín, og að val hennar
á bók kunni að litast af hennar
eigin smekk. Viltu nú segja mér,
Póstur minn, hvort þetta eru ein-
hverjar kerlingabækur úr mér,
eða hvort ég hef rétt fyrir mér.
Bókelsk.
— — ■j— Nei, þetta eru engar
„kerlingahækur“ hjá þér. Þetta
mundi ég álíta dónaskap og lítils-
virðingu við þig og gjöfina. Það
fara ekki allir jafn vel með bæk-
ur, þegar þeir lesa þær. Sumir
kunna alls ekki að lesa bók. Mér
finnst að gjöf ætti að gefa aðeins
og einungis vegna þiggjandans
en ekki að neinu leyti vegna
gefandans. Ef hana langar til að
lesa bókina, getur hún fengið
hana að láni hjá þér á eftir. Kom-
ið gæti líka fyrir að þú vildir
skipta bókinni af einhverjum
ástæðum. Það getur þú ekki, ef
búið er að lesa hana.
Þetta ættu allir að taka til
athugunar og láta það vera að
nota gjöf áður en hún er gefin.
Það væri huggulegt eða hitt þá
heldur, ef þú tækir upp á því
að gefa henni „notaðan“ konfekt-
kassa!
Forsetinn
Kæra Vika!
Ég er ekki einn af þeim sem
kaus Ásgeir Ásgeirsson á sínum
tíma, en ég hef séð það síðan, að
við eigum vart völ á hæfari
manni í þessa stöðu. Þess vegna
fagnaði ég bl.aðaukanum ykkar
og geymi myndirnar. Torfi.
. ... og þar sem dekur við höfð-
ingja og þar með þjóðhöfðingja
er hlutur sem tilheyrir liðinni
tíð, þá hefði Vikan átt að láta
þetta ógert. Krúsjeff kvað niður
persónudýrkun í eitt skipti fyrir
öll á 20. flokksþinginu og jafn-
vel í auðvaldslöndunum er per-
sónudýrkun orðin fátíð ....
Einn úr öreigastétt.
------7— Það var og. Ef við eig-
um að láta Krússa ráða þessu,
viltu þá vera svo góður að fá frá
honum fyrirmæli um það, hversu
margar myndir má birta í einu
af sama manni svo það verði ekki
talin persónudýrkun?
Vikan, Reykjavík.
Kæra þökk fyrir myndirnar af
forsetanum okkar. Ég hef verið
stuðningsmaður hans frá upphafi
og met hann mjög mikils.
Karl Jónsson.
Fjölskylduvandamál
Kæra Vika!
Mikið vildi ég geta fengið góð
ráð í fullri einlægni en ekki að
það sé hæðzt að mér. Þannig hag-
ar til hjá mér, að ég gifti mig
ungri og fallegri stúlku fyrir
tveim árum. Hún er einbirni og
foreldrar hennar eru um sextugt
og við ágæta heilsu og afkomu.
Konan mín hefur reynzt ágæt
húsmóðir og móðir (við eigum
eitt barn). En gallinn frá mínum
bæjardyrum séð er sá, að hún
lifir enn og hrærist á heimili
foreldra sinna en mér finnst hún
alltaf vera eins og gestur á okk-
ar heimili. Hún er með foreldr-
um sínum öllum stundum, annað
hvort ein eða með barnið, en ég
sit þá einn heima. Hún kaupir
alla mögulega og ómögulega hluti
til að gefa þeim, kaffærir mömmu
sína í kökum og tertum, kjólefn-
um og jafnvel skartgripum. Við
höfum ekki getað fengið okkur
neitt innanstokks því öll okkar
fjárráð umfram brýnustu þarfir
hafa farið til þess að kaupa gjaf-
ir handa foreldrum hennar. Þau
eru hins vegar nægjusöm og hafa
jafnvel færzt undan því að taka
við sumu.
Álfur úr Króki.
— — — Þetta er sannarlega
vandamál, Álfur. Þú getur tæp-
lega álasað henni fyrir þetta, þar
sem allt virðist þetta gert af ein-
skærri ást til foreldranna og um-