Vikan - 11.06.1964, Qupperneq 9
HUSBONDINN
A HEIMILI
DRÖTTNINGARINNAR
hún upp: „Siáðu hvað hann er fimur! Hvað
hann getur stokkið hátt!" Þaðan af er álitið
að hún hafi verið hrifin af honum, en hann
lét sér nægia að stríða Margrétu systur henn-
ar.
En Elízabeth vissi hvað hún vildi, og á
því er enginn vafi að hún hafði hugsað sér
að fá hann fyrir eiginmann löngu áður en
honum hafði dottið nokkuð slikt í hug. Hún
skrifaðist á við hann eftir þetta og á stríðs-
árunum var mynd af honum ávallt á vísum
stað á arinhyllunni hjá henni.
Philip var í sex ár í sjóhernum, og eftir
giftinguna 1947 fór hann aftur á sjóinn, sem
yfirmaður á tundurspilli. Þá flaug Elízabeth
til Malta þegar hann var þar í landgöngu-
leyfi.
Síðan fékk hann eigið herskip til umráða,
freigátuna Magpie, þar sem hann var álitinn
strangur húsbóndi. Yfirmennirnir dáðust að
honum og flestum líkaði vel við hann, að
sögn. Svo var ekki um undirmennina. Einn
sagði: „Hann spígsporaði um eins og villt
tígrisdýr í bardagahug". Annar sagði: ,,Lif-
andi fær mig enginn til að vera á því árans
skipi aftur!"
Líkur benda til þess, að Philip vilji vera
— og sé — húsbóndi á sínu heimili í Bucking-
ham Palace, svipað og á freigátunni forð-
um. Hann er einasti maðurinn í heiminum,
sem getur sagt Elízabethu drottningu að gera
eitthvað, og bæta við ef honum sýnist svo:
,, . . . og vertu fljót!"
Ekki svo að skilja, að það sé venja hans,
því líkur eru fyrir því að þau hjónin hafi
átt hamingjusamt samlíf. Hann er að vísu
hættur að elta hana skríkjandi á harða-
hlaupum um ganga hallarinnar eins og forð-
um, — en hvaða hjón gera slíka hluti eftir
16 ára hjónaband?
Framhald á bls. 41.
Hann er ekkert hrifinn af blaðamönnum, hatar blaSaljósmyndara,
og móSgar gestgjafa sína. Hann er einasti maðurinn í heiminum,
sem getur sagt við Englandsdrottningu: „Gerðu eins og ég segi þér
... og vertu fljót!“
Við eigum auðvitað við eiginmann drottningarinnar, Filippus her-
toga af Edinborg, sem kemur í heimsókn til forseta íslands núna
síðar s mánuðinum.