Vikan - 11.06.1964, Qupperneq 51
— Þett?. er milljónerinn minn, segir
Mandy-Rice Davis og bendir sigri
hrósandi á Pierre Cervello barón, unn-
usta sinn. Hún kynntist honum á
fyrstu dögunum, þegar hún var söng-
kona á fínum næturklúbb í Miinchen,
og þau voru trúlofuð eftir örlitla
stund. Mandy skýrði frá því strax,
þegar Profumomálið stóð yfir, að tak.
mark hennar í lífinu væri að hitta
viðfeldinn og ríkan mann, og verða
hans undirgefna eiginkona. Pierre Cer-
vello, barón, uppfyllir víst bæði þessi
skilyrði, a.m.k. það síðara, því hann
á sykurplantekru á Jamaica, sem
stendur alltaf fyrir svo sem 10—11
milljónum dollara. Mandy er ánægð
með mannsefnið og otar honum alls
staðar fram, þar sem því verður mögu-
lega við komið, og hefur skýrt frá
því opinberlega, að þau muni gifta sig
og setjast að í Frakklandi, strax og
Pierre hafi kippt í lag þessum smá-
munum, sem eftir er að ganga frá —
losa sig við konuna, sem hann er
giftur.
Árlega halda listamenn í Briissel upp-
stillingarkeppni, og veita verðlaun fyr-
ir beztu hugmynd og útfærslu hennar.
I ár hlaut útstillingin hér á myndinni
fyrstu verðlaun. Hún átti að sýna
Jónas í hvalnum og þykir góð sem
slík. En við vissum ekki, að Jónas
hefði verið svona vaxinn, en úr því
það er upplýst, dettur víst mörgum
í hug, hvort hvalurinn hafi bara ver-
ið svona soltinn . . .
Hér er brjóstamál á ferðinni. Glæsi-
kvendið í pelsinum er hvorki meira
né minna en ungfrú Frakkland 1963,
og hún hefur stefnt fyrir rctt þeim
ágætu herrum, sem völdu hana úr
hópi keppinautanna til þessa eftir-
sóknarverða titils. Stefnuorsök er sú,
að hún hefur ekki fengið verðlauna-
féð greitt. Hafið þið heyrt annað
eins?
Stefndu vilja þó bera hönd fyrir höfuð
sér, og segja að hún hafi falsað brjóst-
mál sitt, þ.e. ummál líkamans á þeim
stað, sem venjulega er mældur, rétt
undir handarkrikunum, en án þess
hefði hún ekki staðizt inntökuskilyrði
í keppnina, sem var að fylla út í
a.m.k. 89 cm. málband á þessum stað.
Hún kveður þá hafa rangt fyrir sér um
þetta mál, og hér er hún á leið inn
í réttarsalinn, þar sem réttlátir dóm-
arar bíða með iðandi fingur eftir því
að bregða máli á stúlkuna . . .
Það tilheyrir uppeldi hvers spánsks
aðalsmanns, að læra að afhýða appels-
ínu á þennan hátt. í keppni í þessari
íþrótt í London fyrir skömmu var
Don Pepe frá Granada sigurvegari,
fló appelsínuna sína á 6 sekúndum.
Lyftið huganum frá daglegu
amstri.
Lærið að fljúga.
Kynnizt landinu.
Flugskólinn ÞYTUR er elzti starf-
andi flugskóli landsins ug ÞYTUR
hefur útskrifað langflesta starf-
andi flugmenn íslenzka.
Notið reynslu færustu
kennara í jiessari grein.
Leitið upplýsinga:
Flugslcölinn
Sími 10880
póstliólff 4