Vikan


Vikan - 17.09.1964, Side 39

Vikan - 17.09.1964, Side 39
sjálfboðaliðarnir höfðu verið að vinna við undanfarnar vikur. Verk- inu var að mestu lokið, þakið hætt að leka, nýjar dyr komnar á skrúð- húsið og kirkjan öll nýmáluð að utan sem innan. Kári vissi að eng- inn var að vinna þar á þessum tlma dags, og varð því dálítið undr- andi þegar hann sá Ijós þar inni. Hann lét það afskiptalaust og ætl- aði að halda rakleiðis áfram, þeg- ar hann sá mann standa fyrir utan kirkjudyrnar og veifa til sín. Þegar hann kom nær, sá hann að það var sálfræðingurinn Ordn- eszky. „Góða kvöldið, herra Kári", sagði hann á bjagaðri ensku. „Mig lang- ar til að ræða við þig smástund, ef þú mátt vera að". „Ég skil ekki að við höfum neitt um að ræða, Ordneszky", svaraði Kári á sinni sjómanna-ensku. „Hef- ur Fanney ekki talað við þig?" „Jú, við vorum að ræða málið nú fyrir skemmstu. En ég er hrædd- ur um að það gæti einhvers mis- skilnings í sambandi við þetta allt saman, sem ég vildi gjarnan fá tækifæri til að leiðrétta". „í hverju liggur sá misskilning- ur?" „Væri þér ekki sama, þótt við gengjum hérna aðeins innfyrir í kirkjuna. Ég vil helzt ekki ræða þetta viðkvæma mál hérna úti. Það fer betur á því að við stöndum inni í þessu helga húsi á meðan". „Það er algjör óþarfi. Þetta mál þolir alveg að um það sé rætt und- ir berum himni". „Nei, gerið mér þann greiða, herra Kári, að koma aðeins inn- fyrir. Það sem sagt er fyrir framan altari heilagrar kirkju hlýtur að vera sagt í góðum tilgangi og jafn- framt heilagur sannleikur, — og mér er umhugað um að þú trúir mér. Láttu þetta nú eftir mér". „Jæja, sama er mér", sagði Kári hálf fyrirlitlega, blés út úr sér reykj- arstrók, henti sígarettunni á jörð- ina, stakk höndum [ vasa og gekk á undan honum inn í kirkjuna. Það var rökkur í anddyrinu, því þar var ekki kveikt á Ijósum, og Kári ætlaði því að ganga rakleiðis inn í salinn, þegar hann heyrði að Ordneszky skellti aftur dyrunum og læsti þeim vandlega. Hann sneri sér við til að vita hverju þetta sætti, en heyrði þá um leið eitthvert ógreinilegt hljóð og þrusk fyrir aft- an sig, og áður en hann vissi meira, lá hann meðvitundarlaus á gólfinu. Það fyrsta, sem hann skynjaði þegar hann var að rakna við úr rot- inu, var óbærilegur höfuðverkur. Hann vissi varla [ þennan heim né annan, og var nokkra stund að átta sig á því hvar hann væri staddur, en smám saman skýrðist sjónin og hann lá innarlega á kirkjugólfinu. Þá mundi hann allt í einu síðustu augnablikin áður en hann rotaðist og ályktaði að eitthvað hefði dottið ofan á sig af kirkjuloftinu með þess- um afleiðingum. Ordneszky hefði svo dregið hann innar í kirkjuna og vafalaust farið til að sækja hjálp. Hvaöa tegund OMEGA hentar yður? OMEGA-vörurnar bjóða yður ótrúlegt úrval úra, bæði hvað útlit og gæði snertir. Nú getið þér fengið ná- kvæmlega það úr, sem þér hafið alltaf óskað yður, — úrið, sem hentar yður fullkomlega, — úrið sem er óskagjöfin fyrir hvern og einn. Yðar er að velja. — Munið bara eftir einu. — Þér munuð nota OMEGA-úrið yðar í fjöldamörg ár, því að OMEGA-úrið er gert til að endast. Sérstök nákvæmni er höfði við framleiðslu þess og siðustu fágun. Það er mótað í sígildum stíl, sem aldrei verður úreltur. Eins og hver OMEGA eig- andi getur vottað, er það mjög nákvæmt og öruggt úr. Yður getur ekki skjátlast ef þér kaupið OMEGA. Hver úrsmiður, sem selur OMEGA mun virða fullkom- lega árs ábyrgð og bak við hana mun ávallt standa hin einstaka OMEGA heimsþjónusta. Hér fyrir neðan eru nokkur sýnishorn af gerðunum. Constellation. Eitt af beztu úrum, dem nokkurn tíma hafa komið frá Sviss. — Hvert CONSTELLATI- ON úr er staðfestur kronometer með þraut- reyndum nákvæmnis- gráðum frá opinberum svissneskum prófunar- stöðvum. Að útliti er það búið öllum beztu eiginleikum nýtízku úra; það er vatns- þétt og sjálftrekkjandi, ekki aðeins til þæg- indaauka fyrir yður, heidur einnig til að varðveita hinn hárná- kvæma gang og auka einstakt öryggi. Nr. 168.005 Constell- ation m/dagatali. Sjálftrekkjandi, vatns- þétt, segulvarið og höggþétt. Fáanlegt í 18 karata gulli, gull- húðað eða ryðfríu stáli. Seamaster de Ville. SEAMASTER flokk- urinn er sérstak- iega framleiddur fyrir iþróttamenn. Undir- staða í þessum úrum er styrkleiki. Þau þola harða viðkomu og högg og sýna samt sem áður furðu nákvæm- an og öruggan tíma. SEAMASTER úr hef- ir farið í 'gegnum sér- staka prófun til að tryggja að það sé vatnsþétt, — örugg- lega vatnsþétt niður á 100 feta dýpi. SEA- MASTER DE VILLE sameinar þessa hæfi- leika um leíð og það er sérstaklega fyrir- ferðalitið og glæsilegt í útliti. Nr. 166.020 Seamaster de Ville m/dagatali. Sjálftrekkjandi, vatns- þétt, segulvarið og höggþétt. Leðurólar eftir eigin vaU. Fáan- legt í 18 karata gulli, gullhúðað og ryðfríu stáli. Classic for Men. Þessi tegund af úri er fyrir þann mann_ sem óskar eftir úri, er sýnir sérstaklega ná- kvæman tíma um leið og það er mjög glæsi- legt í útliti. Mörg Classic úrin eru fyrir- myndir fyrir heims- tízku á úramarkaðin- um. Þau eru hið fuU- komna val athafna- mannsins, sem vill úr er hann getur treyst — og treyst á alla ævi. Nr. 111.024 Ferhyrnt, handtrekkt, segulvarið og högg- þétt. Fáanlegt £ 18 karata gulli, gullhúð- að eða ryðfríu stáU. Sapphette. fcÉfeSWÍSSaStij' SAPPHETTE úrið er framúrskarandi fallegt og nákvæmt um leið. Glerið er handgerður safír, ljómandi og með leifturglampa. Þetta er Bérstaklega hagnýtur eiginleiki, — það risp- ast ekki. Gimsteina- festing í kassanum úti- lokar raka frá ilm- vatni, púðri og ryk. Nr. 711.079 Sapphette. 18 karata gullkassi. Handgerður safír krist- all með gimsteinafest- ingu. Scgulvarið og höggþétt. Classic for Ladies. Þér getið verið viss um að OMEGA CLASSIC ber nafn með rentu. Það er formað til að Vera ávaUt I tizku. Þér munið njóta þess í tugi ára að eiga það, eins vel og dag- inn sem þér fenguð það. OMEGA CLASSIC flokkurinn er stærsta safn nákvæmra dömu- úra £ heimi. Þér getið valið yður óskaúrið — við kvöldklæðnað, — til Innkaupaferða £ borgina — i raun og veru getið þér ávallt treyst því. Nr. 511.008 Ferhyrnt úr £ 18 karata gullkassa. Handtrekkt, segulvarið og högg- þétt. n OMEGA fást hjá flestum úrsmiðmn VIKAN 38. tW. 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.