Vikan


Vikan - 05.11.1964, Blaðsíða 5

Vikan - 05.11.1964, Blaðsíða 5
Þetta var ekki maðurinn, sem hún hafði þekkt. Maðurinn, sem bar sig svo vel og var svo glæsilegur á velli, og naut allra lífsins gæða. Þetta var mannlegt flak, eins og öll önnur mannleg flök, sem komið höfðu hingað á undan honum, berfætt, á skyrtunni einni með snöru um hálsinn. Á því andartaki lyfti Joffrey de Peyrac höfðinu. í teknu, litlausu og afskræmdu andlitinu, skinu dökk augun með annarlegri glóð. Kona nokkur rak upp skerandi óp. -— Hann er að horfa á mig! Hann ætlar að heilla mig. En de Peyrac greifi var ekki að horfa á fólkið. Hann horfði beint áfram, á gömlu steindýrðlingana, á grárri framhlið Notre Dame. Hvaða bæn var hann að biðja til þeirra? Hvaða svar fékk hann? Sá hann þá yfirleitt ? Dómsritari hafði gengið upp að hlið hans og lesið dóminn nefmælt- ur. Likhringingin hljóðnaði. Það var varla hægt að heyra orðin. Þessu næst las Bécher hina opinberu aflausn: -í- Ég viðurkenni glæpina, sem ég er ákærður fyrir. Ég bið um fyrir- gefningu guðs. Ég tek á móti refsingunni fyrir gerðir mínar. Fólkið beið eftir þvi að rödd sakborningsins heyrðist og það gætti sífellt meiri óþolinmæði meðaf mannfjöldans. — Talaðu, þú handbendi djöfulsins. — • Heldurðu að það verði ekki gaman að loga I helvíti með meistara þínum? Angelique hafði það á tilfinningunni, að eiginmaður hennar væri að safna saman síðustu kröftum. Örlítið líf færðist í tekið andlit hans. Hann reisti sig upp við axlir böðulsins og prestsins. Það var eins og hann stækkaði, þangað til höfuð hans gnæfði yfir Maitre Aubin. Sekúndu áður en hann opnaði munninn, hafði Angelique getið sér þess til með innsæi ástarinnar, hvað hann ætlaði að gera, og skyndilega hljómaði djúp titrandi og sérstæð röddin í frostbitru loftinu. Gullna röddin lét til sín heyra í síðasta sinn. Hún söng á málinu, sem talað var í Languedoc, ljóðið, sem Ange- lique þekkti. „Les genols flexes am lo cap encli A vos reclam la regina plazent Flor de las flors, nou Jhésus prés nayssenga Vulhatz guarda la) cientat de Tholoza....“ Angelique skildi meininguna: .... Með hné mín beygð og drjúpandi höfði í hendur þinar ég sel mig, drottning ljúf Blómanna blóm, þar sem Jesús fæddist Bæn mína heyr og Toulouse geym.... Blómanna blóm, skjól mitt og hlif.. .. Blómanna blóm, verndari grózku.... Varðveit Toulouse.. .. Angelique fann sársaukann, eins og fleini hefði verið stungið í gegn- um hana og rak upp óp. Ópið reis eitt sér, skyndilega, hræðilega. Því rödd söngvarans hafði þagnað. Bécher hafði lyft fílabeinskrossinum sinum og slegið honum á munn hins dæmda manns, svo höfuð hans féll fram yfir sig, meðan blóðið streyhdi úr vörum hans til jarðar. En næstum samstundis lyfti Joffrey höfði á ný. — Conan Bécher, hrópaði hann, með sömu tæru,; söngröddinni. — Við munum hittast fyrir dómstóli guðs, fyrr en þig grunar. Það var eins og óttinn breiddist út meðal mannfjöldans og það heyrð- ust reiðileg hróp, sem yfirgnæfðu rödd de Peyracs greifa. Áhorfendur voru viti sinu fjær af bræði, gripnir æðislegri hneykslun. Það var ekki fyrst og fremst vegna hneykslanlegrar framkomu Béchers, heldur fullt eins miltið vegna hroka hins dæmda. Aldrei höfðu eins reiðilæti heyrzt á torginu fyrir framan Notre Dame! Að syngja!.... Hann hafði vogað sér að syngja! Ef hann hefði bara sungið sálm! En dæmdi mað- urinn hafði sungið á framandi tungumáli, á einhverri djöfullegri tungu.... Elns og fjölarma skrímsli lyfti mannfjöldinn Angelique upp. Hún var barin, slegin, fékk olnbogaskot, það var troðið á henni, en að lokum var hún ein uppi við kirkjuna. Það voru dyr rétt hjá henni og hún ýtti þeim opnum. Rökkur tómrar Dómkirkjunnar tók á móti henni. Hún reyndi að ná valdi yfir sjálfri sér. Valdi yfir þjáningunni, sem heltók hana. Barnið hafði hreyft sig ofsalega meðan Joffrey söng. Daufur ómur af hrópum úti fyrir náði henni. Nokkrar mínútur var eins og hávaðinn næði hámarki, svo dofnaði hann smám saman. — Ég verð að fara. Ég verð að komast til Place de Gréve, sagði Angelique við sjálfa sig. Hún hvarf úr skjóli kirkjunnar. Á torginu fyrir framan var hópur af mönnum og konum að slást á staðnum, þar sem Bécher hafði slegið de Peyrac greifa. — Eg fann tönn úr galdramanninum, hrópaði einn þeirra. Svo hljóp hann í burtu, en hinir fylgdu á eftir. Kona nokkur veifaði hvitri pjötlu. — Ég náði í snifsi úr skyrtunni hans. Hver vill það? Það táknar gæfu. Angelique hljóp. Hinum megin við brúna hjá Notre Dame náði hún mannfjöldanum sem fylgdi vagninum. En í rue de la Vannerie og í rue de la Coutellierie var nú næstum ógjörningur að komast leiðar sinnar. Hún grátbað fólk um að leyfa sér að komast fram hjá. Enginn hlustaði. Allir virtust vera í einhverju undarlegu æði. Undir heitum geislum sólarinnar rann snjórinn í flyksum af húsunum og féll niður á axlir fólksins. Enginn skeytti því hið minnsta. Að lokum náði Angelique horni torgsins. 1 sama bili sá hún háan loga teygja sig upp frá bálkestinum. Hún sveiflaði höndunum og heyrði sjálfa sig hrópa eins og hún hefði misst vitið: — Hann brennur! Hann brennur! Hún ruddi sér I æði leið áleiðis að bálinu. Næst komst hún svo nærri, að hún fann hitann af því. Það var talscert kul, sem æsti logana. Hvaða mannvéra var þetta, sem hreyfðist þarna við fætur bálsins? Hver var maðurinn, rauðklæddi maðurinn, sem var á hreyfingu um- hverfis bálköstinn með logandi kyndil? Hver var maðurinn í svarta kuflinum, sem hélt i stigaþrepin. Mað- urinn, sem með uppglentum augnabrúnum hélt krossmarki í útréttum handlegg og hrópaði: — Trú! Trú! Hver var maðurinn, sem var innan í þessum lifandi kesti? Nei, hann var ekki lifandi, því böðullinn hafði kyrkt hann. — Heyrið þið hvernig hann æpir, hrópaði fólkið. — Nei, nei, hann æpir ekki, hann er dáihn, endurtók Angelique hvað eftir annað. Hún greip báðum höndum fyrir eyrun, því hún vildi ekki heyra, ef einhver óp bærust frá þessum voðalega kesti. ■—■ Heyrið þið hvernig hann öskrar! Heyrið þið hvað hann öskrar! hélt mannfjöldinn áfram. Og aðrir kvörtuðu: -—- Hversvegna settu þeir poka yfir höfuðið á honum? Við viljum sjá á honum svipinn! Vindurinn þreif bylgju af brennandi ösku úr bálinu og dreifði henni yfir höfuð fólksins. — Þarna eru galdraskræðurnar, þær brenna með honum.... Vindurinn sló eldinum niður undir jörð. Rétt í svip sá Angelique staflann af bókum úr bókasafninu úr Höll hinna glöðu vísinda, og þar fyrir aftan staurinn efst á kestinum. Við hann var bundið eitthvað svart og sköpulagslaust og efst á því var svartur poki. Hún féll í yfirlið. 50. KAFLI Hún kom til sjálfrar sín í slátrarabúðinni við Place de Gréve. Ó, hvað ég finn til, hugsaði hún um leið og hún settist upp. — Var hún orðin blind? Hversvegna var orðið svona dimmt. Kona með kerti beygði sig yfir hana. —• Nú eruð þér betri vina mín. Ég var hrædd um að þér væruð kann- ske dauð. Það kom hérna læknir og tók yður blóð. En ég held, ef þér viljið vita það, að þetta séu fæðingarhriðir. — Ó, nei! hrópaði Angelique og greip um kvið sér. — Ég á ekki von á mér fyrr en eftir þrjár vikur. Hversvegna er svona dimmt? — Það er orðið framorðið. Þeir eru búnir að hringja til Angelus. — Og bálið? — Því er öllu lokið, sagði kona slátrarans og lækkaði röddina. — En það stóð lengi. En sá dagur, drottinn minn. Líkaminn var ekki brunninn fyrr en tveim klukkustundum eftir hádegið. Og Þegar öskunni var dreift ætlaði allt um koll að keyra. Allir vildu ná i ösku. Þeir rifu böð- ulinn næstum í sig! E’ftir stundarkorn bætti hún við: — Þektuð þér galdramanninn? —• Nei sagði Angelique, eftir stundarhik. — Ég veit ekki hvað kom yfir mig. Þetta er í fyrsta skipti, sem ég sé nokkuð þessu líkt. —- Já, það tekur á mann. Við, sem eigum heima hérna við Place de Gréve, höfum séð svo mikið af þessu, að það tekur ekki lengur á mann. Okkur myndi finnast hálftómlegt, ef það væri ekki maður hengdur við og við. Angelique hafði langað til að þakka þessu góða fólki, en hún hafði sama og enga peninga á sér. Hún sagðist myndi koma aftur, og borga fyrir heimsókn læknisins. Það hafði kulað með kvöldinu. Við hinn enda torgsins lék vindurinn að rauðri öskunni, sem voru síðustu menjarnar um bálköstinn. Þegar Angelique gekk yfir torgið, kom mannvera út úr skugganum við gálgann. Það var presturinn. Hann kom nær. Hún hörfaði i skelf- ingu, því með honum barst óbærileg lykt af brenndum viði og steiktu kjöti. — Ég vissi, að þér mynduð koma, systir min, sagði hann. — Ég beið eftir yður. Mig langaði að segja yður, að eiginmaður yðar dó eins og kristnum manni sæmir. Hann var reiðubúinn og bljúgur. Hann. harm- aði að þurfa að deyja. En hann óttaðist ekki dauðann. Hann sagði mér hvað eftir annað, að hann hlakkaði til að standa áugliti til auglitis við skapara allra hluta. Ég held að honum hafi verið Tróun að þeirri vitn- eskju, að hann myndi að lokum vita.... Það var hik í rödd prestsins og nokkur undrun. — .... að hann fengi að lokum að vita, hvort"jörðin snýst eða ekki. ■—- Ó! hrópaði Angelique, gripin skyndilegri reiði. — Þetta var alveg eftir honum. Alli karlmenn eru eins. Það skipti hann engu máli, þótt hann skildi mig eftir á þessari jörð, hvort sem- hún snýst eða ekki, fá- tæka og örvæntingarfulla. — Jú, systir mín! Hann endurtók hvað eftir annað: „Segið henni að ég elski hana. Hún ein hefur fært mér hamingju. Því miður gátum við aðeins notizt stutta stund. En ég treysti henni til að sjá um sig sjálf.“ Hann sagðist einnig óska þess að barnið yrði kallað Cantor, ef það yrði drengur, en Clémence, ef Það verður stúlka. Cantor de Marmont, trúbadúrinn frá Languedoc. Clémence Isaure, dis blómanna í Toulouse.... Hve fjarlægt þetta var allt saman! Hve óraunverulegt það var gagn- vart þeim tímum, sem Angelique nú lifði. Það eina, sem hún gat nú, var að komast til musterisins, en hún átti erfitt um gang. Nokkur andar- tök var hún ennþá reið við Joffrey. Reiðin jók henni afl. Auðvitað hafði Joffrey engu varðað, þótt hún ætti í vök að verjast og Þjáningin nagaði hana. Hvers virði eru hugsanir kvenmanns? Móti því, að hann hinum megin við lífið, fyndi að lokum svar við þeirri spurningu, sem hafði valdið vísindasinnuðum huga hans svo miklum. vangaveltum. En allt í einu streymdu tárin óhindrað niður kinnar Angelique og hún varð að halla sér upp að næsta vegg til þess að verjast falli. — Ó, Joffrey, ástin mín, muldraði hún. — Lokslns veiztu, hvort jörðin snýst eða ekki! Vertu hamingusamur í eilifðinni! Þjáningin í líkama hennar varð æ meiri qg óbærilegri. Henni fannst eins og hún væri að splundrast. Þá loksins skildi hún að fæðingarhríð- ir hennar voru byrjaðar. Hún var langt frá musterinu. Hún hafði ekki gætt þess, hvar hún gekk, og var orðin vilt. Hún litaðist um og sá, að hún var skammt frá brúnni hjá Notre Dame. Það var vagn á leið yfir brúna. Angelique hrópaði á ökumanninn — Getur þú ekið mér til Hotel-Dieu? — Ég er á leið þangað, svaraði maðurinn. — Ég er að sækja hlass til að fara með í kirkjugarðinn. Ég er sá, sem ek hinum dauðu. Hopp- ið upp í, fagra frú. Framhald á bls. 47. VIKAN 45. tbl. — g

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.