Vikan - 05.11.1964, Side 32
áimwrmk
Maytag
InnbyggSur bakarofn með
tímarofa, grilli, Ijósi og gleri
í hurð.
HOÍVIJVISÍÍM
Maytag
Eldhúsvifta með viðarkola-
síu meS Ijósi og tveim
hraSastillingum.
Maytag
2 venjulegar og 2 sjólfvirkar plötur
meS 12 hitastillingum og tímarofa
á einni plötu upp í 10 klst.
Mjog
góðir greiðsluskilmálar
Snorrabraut 44 — Sími 16242.
*
II
4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©HrútsmerkiS (21. marz — 20. apríl):
Það hefur borið talsvert á þeim eiginleika þínum,
að vilja aldrei viðurkenna, að þú hafir rangt fyr-
ir þér, og í þessarri viku mun þessi þrjóska þín
draga einhvern dilk á eftir sér. Þú munt fara í
skemmtilegt samkvæmi, líklegast um helgina.
ONautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þetta verður einkar þægileg og skemmtileg vika.
Að vísu gerast engir stórviðburðir, en þú munt
kunna að njóta lífsins í ríkum mæli. Þú eignast
nýjan kunningja, líklega í sambandi við eitthvert
áhugamál þitt.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þessarri viku mun mjög svipa til viku frá fyrra
J J mánuði og rnáttu vel við una. Fólk undir tvítugu
verður rækilega fyrir skeytum Amors, en ekki
munu þau hafa mikilvæga þýðingu að þessu sinni.
Þú skalt varast að sýna náunganum lítilsvirðingu.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Vikan verður mjög óvenjuleg að flestu leyti. Þú
munt í aðra röndina verða mjög heppinn — en
eitthvað sérstakt verður þó til að skyggja á gleð-
ina. Láttu það samt ekki verða til að draga úr
þér kjarkinn, því fátt fæst fyrirhafnarlaust.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú hefur erfitt verkefni að glíma við þessa dag-
ana og ekki virðist blása byrlega sem stendur.
Gríptu samt fyrir alla muni ekki til örþrifaráða,
þó þér fljúgi ýmislegt í hug. Þú getur leyst verk-
efni þín með seiglu og iðjusemi.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú munt kunna bezt við þig heima við í vikunni og
er það vel, því að þú hefur lítið að sækja utan
heimilisins. Þú virðist dálítið uppstökkur og móðg-
unargjarn þessa dagana, og þótt segja megi, að þú
hafir nokkrar málsbætur, þá verðurðu að hafa hemil á þér.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú munt eiga afar annríkt í þessarri viku, lík-
lega eitthvað í sambandi við heimilið. Þótt ástæða
sé til að ljúka þessu verki sem fyrst, máttu samt
ekki leggja of hart að þér. Þú verður að gera þér
grein fyrir því, að hóglífi hentar þér bezt.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember);
Þú virðist gera þér lífið alltof erfitt þessa dagana.
Það er eins og þú búir sjálfum þér til alls kyns
mótlæti, sem í rauninni er alls ekki til. Þú verð-
ur að reyna að njóta lífsins, því þú færð mörg
tækifæri til þess.
©Bogamannsmerkiö (23. nóvember — 21. dcsember):
Þú virðist verja alltof miklum tíma í eintóma
draumóra og það er engu líkara en þú þorir
ekki að horfast í augu við staðreyndirnar. Taktu
nú á þig rögg, útlitið er ekki svo dökkleitt. Heilla-
dagur vikunnar verður föstudagur.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú færð góða gjöf í vikunni og í sambandi við
(J það gerist margt skemmtilegt. Þú hefur ekki sinnt
áhugamálum þínum sem skyldi undanfarið og er
það miður. Þú virðist óvenjulega stefnulaus þessa
dagana. Þú verður að koma einhverju formi á líferni þitt.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Það er engu líkara en dómgreind þinni hafi farið
eitthvað aftur undanfarið, því að þú leggur mikið
upp úr fáfengilegustu hlutum. Sennilega stafar
þetta af fljótfærni. Þú verður að gefa þér meiri
tíma til að íhuga hlutina nánar.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert orðinn alltof þrasgjarn og verður að venja þig
-S sem -skjótast af þessum hvimleiða ávana, sem fer
í taugarnar á kunningjum þínum. Á sunnudag-
inn ferðu í heimsókn eða færð heimsókn sem margt
gott á eftir að leiða af sér.
32 — VIKAN 45. tbL