Vikan

Tölublað

Vikan - 07.01.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 07.01.1965, Blaðsíða 32
 5 stærðir af kæliskápum. Sjálfvirk affryst- ing. 5 ára ábyrgð á fyrstikerfi. Algjörlega sjálf- virk þvottavél með suðu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. Forþvottur. 4 þvotta stilling- ar. 5 skol. Þeytivinda. Ódýrasta sjálf- virka þvottavél- in. Snorrabraut 44 — Sími 16242. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (31. marz — 30. apríl): Þú verður mjög störfum hlaðinn og mörg óleyst verkefni verðurðu að salta. Gömul ósk þín rætist að nokkru á óvæntu augnabliki. Þú verður fyrir gagnrýni vegna starfsaðferða þinna og er það mjög óréttlátt. Varastu græna litinn. Nautsmerkið (21. april — 21. maí): Lífíð verður þægilegt en viðburðasnautt fram að helginni. Það hefur nokkuð borið á því að þú gagnrýndir fólk, sem þú, að líkindum, öfundar. Þú ætti að gera bætt ráð þitt og gagnrýnt eigin athafnir. Heillatalan er 6. ■ Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður fyrir einhverju happi, sem hefur mjög 6 S S jákvæð áhrif á skapgerð þína. Þú hefur tekið nokkrum framförum í starfi þínu og ættir að fara að ympra á verðugra verkefni. Mánudagurinn er happasæil fyrir ástfangna. Krabbamerkið (22. júni — 23. júli): Það fer margt öðruvísi en ráð hafði verið fyrir gert í vikunni. Þú hefur verið of ráðríkur og heimtufrekut heima hjá þér og ættir að reyna að bjóða þjónustu þína í stað þess að heimta af öðrum. Varastu kaup og sölu. eLjónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): • Vikan verður nokkurskonar heillavika. Þótt ekk- ert stórvægilegt gerist heppnast þér samt ýmis- legt smávegls, sem þú hefur yndi af. Horfur eru á því, að þér heppnist tilraun, sem misfórst fyr- ir nokkrum dögum. Meyjarmerkið (24. ág. — 23. sept.): Einhver verulegur skriður kemst á mál, sem lengi hefur verið í deiglunni. Þú færð skemmtilega gesti, sem líklegast eiga eftir að dveljast góða stund í nágrenni við þig. Þú verður að eyða nokkru af frístundum þínum til endurbóta. Vogarmerkið (24. sept. — 23. okt.): Þú ert eitthvað daufur og viljalaus ,og kemur litlu í verk. Þú þarfnast tilbreytingar og ættir að fá kunningjana til að hressa upp á þig. Helg- in verður mannmörg, líklega ferðu í stutta heim- sókn eða skemmtiferð. Drekamerkið (24. okt. — 22. növ.): Þú hefur orðið fyrir einhverju mótlæti en nú rof- ar til fyrir þér. Það verður einhver góður vinur til þess að benda þér á leið út úr vandræðunum og ef þú bregður skjótt við, standa málin mjög vel. Leitaðu ráða hjá eldri kynslóöinni. Bogmannsmerkið (23. nóv. — 21. dcs.): Það eru góð tækifæri fyrir þig til að skemmta þér og þú ættir, svona einu sinni, að lina dálítið takið um budduna. Þú gætir gert mjög góða verzl- un innan skamms ef þú bíður hins rétta tíma. Heillatala er 3. Cleitarmerkið (22. des. — 20. jan.): ás£^r\ Þú ert nokkuð svartsýnn og fúllyndur og fremur V* tj leiöinlegur. En sem betur fer ertu ekki svona alltaf, en þú ættir að einsetja þér að vera það aldrei. Það verður fremur mikið um kunningja- heimsóknir. þriðjudagur verður heilladagur. Vatnsberamerkið (21. jan. — 19. febr.): Þú stofnar tii vináttu við persónu, sem þú met- ur mikils og er gott til þess að vita. Eitt skaltu þó hafa hugfast og það er að einhver vafaatriði eru í sambandi við skapgerð hennar. Þú skalt þiggja visst tilboð sem þér berst. Fiskamerkið (2. febr. — 20. marz): Vegna misskilnings hagarðu þér dálítið kjánalega. En hafðu ekki áhyggjur, því að í kringum þig er bezta fólk, sem skilur aðstæðurnar. Þú getur haft drjúgar aukatekjur af áhugamáli þínu ef þú sinnir því meira. m 82 YUÍAW 1. tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.