Vikan

Útgáva

Vikan - 21.04.1965, Síða 4

Vikan - 21.04.1965, Síða 4
FRAMHALDSSAGA Það sem áður er komið: Skipið TJALDANE, eign SBM skipafélagsins, kemur í höfn í Sebang. Um borð eru þau Myn- heer van Halden, forstjóri skipa- íélasgins og aðaleigandi hlutafé- lagsins sem rekur gúmmíplant- ekruna á eynni, dóttir hans Josephine, einn eftirlitsmann- anna á plantekrunni, Andy, leigudansmærin íat, sem Andy fann á dansstað í Port Said, og skipslæknirinn dr. Maverick. Pat er ástfangin af Andy, en Andy og Josephine (Jeff) hneigja hugi saman en Andy vill ekki leggja það á Jeff að hún, setjist að á út- úrboru á borð við þessa litlu eyju, en plantekran á Andy all- an — svo þau verða að skilja, þegar skipið fer aftur frá eynni þá sömu nótt. Á skipinu er einn- ig huglesarinn Vandengraf, og deilir klefa með van Halden. Þeir eru að rifja hvor upp fyrir öðr- um lielztu æviatriði hins, og má ekki á milli sjá, hvor veit meira, huglesarinn eða forstjórinn. — Nú skaltu taka inn töflurnar þínar, pabbi minn. ^ — Ó jú. Þú hefur áhyggjur af heilsufari þinu, og ert hræddur við að deyja, sagði Vandengraf án þess að iíta á Halden. En Hald- en vissi, að hann fylgdist með honum í speglinum yfir vaskin- um og var vel á verði. — Áður en þú lagðir af stað í þessa ferð, sögðu læknarnir þér að hætta áð mestu að starfa og snúa þér að því að láta þér líða vel og njóta lífsins, hélt Vandengraf áfram. —- Þar sem þú ert enginn asni, veiztu nákvæmlega hvað þetta þýðir. Þess vegna tókst þú sam- an föggur þínar og dóttur þinn- ar og lagðir af stað í þessa hjart- næmu, síðustu ferð. Þig langar til þess að lifa hátt þessa síðustu daga, en þú nýtur ekki ferðar- innar af ótta við dauðann. Á nótt- unni liggur þú vakandi og hlust- ar á þinn eigin hjartslátt og hugs- ar: Hve lengi endist þetta? — Hvernig lízt þér á þetta sýnis- horn af huglestri, Halden? — Sniðugt. Andskoti sniðugt, svaraði Halden og hló við. — Hve miklar tekjur hefur þú á ári af þessu sorglega svindli? — Ég vona, að þú heimsækir mig einhvern tíma til Bandoeng, svo þú getir sjálfur séð, að ég lifi góðu lífi af tekjum mínum. — Ó! Þakka þér fyrir. Ég er jafnvel til með að leyfa þér að halda áfram að látast lesa huga minn, en ég vara þig við, þú færð ekki túskilding fyrir það. Gott. En ég þarf að snerta eitthvað, sem þú átt, til þess að fá rétt samband, sjáðu til. Halden stakk hendinni ofan í vasann á hítum jakkanum, sem hann hafði fleygt til fóta í koj- unni, og tók þaðan vegabréfið sitt. — Þetta ætti aldeilis að koma þér í samband, lagsi, sagði hann kíminn. — Að minnsta kosti þarftu þá ekki að geta þér til um aldur minn, hæð og þjóð- erni. Vandengraf hvarf inn í kojuna sína. Hann leit ekki á vegarbréf- ið, en lokaði augunum, meðan hann fór um það skjálfandi, taugaóstyrkum fingrum. — Þú ert ekki sá, sem þú sýn- ist, sagði hann. — Og hver sýnist ég svo sem vera? spurði Halden úr efri koj- unni. — Þú virðist vera óframfærn- asti, kurteisasti og hógværasti farþeginn á þessu skipi. Þú virð- ist jafn fyrirferðalítill og mús og jafn samvizkusamur og sunnu- dagaskólakennari. En fyrir aftan þig sé ég — bíddu við — stórar byggingar — hrúgur af pening- um — gæti það verið banki? Nú sé ég — skip — gufuskip — mörg skip. Og nú sé ég tré — skóg — eða plantekru ... — Stop, stop, hrópaði Halden. — Nú má ég næst. Ég er ekki svo vitlaus huglesari heldur, og ég þarf ekki einu sinni að snerta eitthvað, sem þú átt, til Þess að geta sagt þér, hver þú ert. Ég sé, til dæmis, að nafn þitt er ekki Vandengraf heldur Alex- ander Blotzky. Þú fæddist við landamæri Póllands og Rússlands og straukst að heiman frá þér, þegar þú varst fimmtán ára. f nokkur ár sé ég ekkert, en svo sé ég fangelsi. Það er þýzkt fang- elsi, og þú varst dæmdur í fjög- ur ár, fyrir fjársvik og myntföls- un. í heimsstyrjöldinni vannstu fyrir leyniþjónustu Þjóðverja en sveikst þá og seldir Bandamönn- um upplýsingar um þá. Þú spar- aðir peninga og safnaðir þér ná- inni og haldgóðri þekkingu á ^ VIKAN 16. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.