Vikan - 21.04.1965, Blaðsíða 17
HjjJJinnig hér er ameriskt fjögurra svefn-
herbergja einbýlishús á tveim hæðum
og byggt utan í halla svo hægt er að
ganga beint af jafnsléttu inn í efri hæð-
ina bakatil. Það er ástæða til að vekja
athygli á þakinu, sem er í algerlega klass-
iskum stíl og um leið með því lagi, sem
fólk verður einna sízt leitt á þegar til
lengdar lætur. Takið eftir, að það er látið
skaga talvert út fyrir veggina og það gef-
ur húsinu svip ásamt svölunum, se,n
hyggðar eru í U kringum húsið.
Að framanverðu er aftur á móti gengið
beint inn í kjallarann og þar eru öll svefn-
herbergin. Inn af hjónaherberginu er
stórt fataherbergi og bað en sameiginlegt
baðherbergi fyrir hin herbergin. Niðri er
líka hiti og geymsla. Eldhúsið myndar
eyju á miðri efri hæðinni með borðstof-
una öðrum megin og stofuna hinum meg-
in. Skrifstofa húsbóndans er á góðum stað
innaf borðstofunni en þvottahúsið stein-
snar frá eldhúsinu og innangengt í bíl-
skúrinn.
. .
.
......- - ■■■■■
íða í Evrópu eru há ris mjög vinsæl,
” enda er þar mikið af fyrri alda bygg-
ingum með þessu lagi. Varla er hægt að
segja, að hér hafi verið byggð hús með
þessu lagi svo neinu nemi. Þau gætu
farið prýðilega í íslenzku landslagi, en
mörgum þykir súðin galli og súð verður
gjarna í svona húsum, nema þá að farið
sé mjög ósparlega með rýmið og vegg-
irnir inndregnir til þesss að losna við
súðina. í þessu húsi nær súðin niður á
miðja veggi á neðri hæðinni og aðeins
neðar á efri hæðinni, þar sem svefnher-
bergin eru. Báðar eru hæðirnar að flatar-
máli 123 ferm. Margir byggja sumarbú-
staði með þessu lagi, eða þá að þakið
nær alla leið niður að jörð. Nokkrir þess-
konar sumarbústaðir hafa verið byggðir
hér.
Blaðað i hús^teiScniingum
anskættað einbýlishús, 150 fermetrar að flatarmáli. Inngangurinn er bakatil við hliðina á eldhúsinu, mitt á
““'milli íveruhluta hússins og svefnherbergjanna. Auk þess er hægt að ganga úr stofunni út í garðinn ef með
þarf. Borðstofa og stofa mynda vinkil utanum eldhúsið og innangengt í bílskúrinn gegnum þvottahúsið. Það mun
ekki vera leyfilegt hér á landi að gera innangengt í bílskúr, en það er ekki að sjá, að Dönum þyki neitt athuga-
vert við það. Svefnherbergin eru þrjú, öll móti suðri. Vesturveggur stofunnar er framlengdur til þess að fá skjól.
Hann er aiveg heill og fæst þar af leiðandi gott veggpláss í stofunni. Húsið er allt á einni hæð.
si’eumyiasiiii
I ' ..:
.
'
'immm
Émm
Wiwwlm
.
§i|||||g|
VIKAN 16. tbl.