Vikan - 21.04.1965, Blaðsíða 41
Tólf hæðum neðar ló hótelgarð-
urinn, skreyttur með pálmatrjám og
litríkum blómabeðum milli malar-
borinna gangstíga,- ríkmannlegur
og leiðinlegur. Garðyrkjumenn voru
að vinnu; rökuðu gangstigana og
söfnuðu saman föllnum laufum með
letilegum, hægum hreyfingum
hinna lituðu verkamanna. Tveir
sláttuvélamenn voru að starfi, og
þar sem þeir höfðu þegar verið,
voru litlar vökvunarþyrlur að verki
og sendu léttan ýring allt [ kring-
um sig.
Beint fyrir neðan Bond lá Cabana
Club niður að ströndinni, tveggja
hæða hús með búningsherbergjum
undir flötu þaki með stólum og
borðum og rauðum og hvítum, rönd-
óttum sólhlífum. Þarna var einnig
glampandi græn sundlaug, krýnd
með sóltjöldum, þar sem viðskipta-
vinirnir myndu bráðlega leggjast
og sólbrenna fyrir fimmtíu dollara
á dag. Þar voru nú menn í hvítum
jökkum að verki. Röðuðu stólunum
upp [ beina röð og sneru við dýn-
unum og sópuðu upp sígarettu-
stubbunum frá því í gær. Lengra
burtu var óendanleg gullin strönd-
in og hafið og fleiri menn sem rök-
uðu fjöruborðið, settu upp sólhlífar,
lögðu út línur. Það var ekki að
undra þótt á Iitla spjaldinu inni í
klæðaskáp Bonds stæði, að verðið
á Alohasvítunni væri tvöhundruð
dollarar á dag. Bond reiknaði í
snarheitum. Ef hann ætti að borga
reikninginn, myndi það taka hann
nákvæmlega þrjár vikur og eyða
árstekjunum. Hann fór aftur inn í
svefnherbergið, tók símann og pant-
aði sér Ijúffengan, ríkmannlegan
morgunverð, eina lengju af king-
size Chesterfield sígarettum og
morgunblöðin. Þegar hann hafði
rakað sig og farið í ískalt steypi-
bað og klætt sig var klukkan orðin
átta. Hann gekk inn í hina glæsi-
legu setustofu og fann þar þjón í
rauðum og gullbrydduðum einkenn-
isklæðum sem var að leggja á
morgunverðarborðið við hliðina á
glugganum. Bond leit á Miami Her-
ald.
Svo settist hann við borðið og
raðaði hægt í sig kræsingunum með-
an hann hugsaði um Du Pont og
Goldfinger.
Hugsanir hans voru óvissar. Du
Pont var annaðhvort miklu verri
spilamaður en hann hélt, sem Bond
fannst ólíklegt, eftir að hafa virt
fyrir sér þennan ákveðna og
slungna mann, eða þá að Goldfing-
er hafði rangt við. Ef Goldfinger
hafði rangt við í spilum, þótt hann
þyrfti ekki á peningum að halda,
var augljóst mál, að hann hafði
einnig aflað sér auðæfa með því
að hafa rangt við, eða með vafa-
sömum viðskiptum í miklum mæli.
Bond hafði áhuga fyrir stórsvindl-
urum. Hann hlakkaði til að sjá
Goldfinger fyrsta sinni. Hann hlakk-
aði einnig til þess að afhjúpa ár-
angursríka og að því er virtist mjög
dularfulla aðferð Goldfingers við
að flá Du Pont. Þetta yrði skemmti-
legur dagur. Bond beið þess að
hann hæfist.
Það var áætlað, að hann hitti
Du Pont niðri í garðinum klukkan
tíu. Sagan átti að vera sú, að Bond
hefði komið fljúgandi frá New York
til að reyna að selja Du Pont hluta-
bréf [ Canadian Natural Gas. Það
var augljóst einkamál og Goldfing-
er myndi aldrei detta f hug að
spyrja út í það. Hlutabréf, Natural
Gas, Canada. Þetta var allt, sem
Bond þurfti að muna. Þeir myndu
fara saman upp á þakið á Cabana
Club, þar sem þeir voru vanir að
spila, og Bond myndi lesa blaðið
sitt og horfa á. Eftir hádegismatinn,
meðan Bond og Du Pont ræddu
„viðskiptin", myndi leiknum verða
haldið áfram á sama hátt. Du Pont
hafði spurt, hvort hann þyrfti að
útvega nokkuð eða þessháttar.
Bond hafði beðið um númerið á
íbúð Goldfingers og allsherjarlykil.
Hann sagði, að ef Goldfinger væri
einhverskonar atvinnu spilasvikari
eða bara slunginn áhugamaður,
myndi hann ferðast með hin venju-
legu tæki þeirra stétta — merkt og
rökuð spil og þessháttar. Du Pont
sagðist myndi láta Bond hafa lykil-
inn, þegar þeir hittust niðri í garð-
inum. Hann ætti ekki í neinum erfið-
leikum með að láta framkvæmda-
stjórann útvega slíkan lykil.
Eftir morgunverðinn slappaði
Bond af og starði út á sjóinn í
fjarska. Hann var ekki bundinn af
þessu starfi; hafði aðeins áhuga á
því og hlakkaði til. Það var einmitt
svona starf, sem þurfti til að skola
niður óbragðinu af því sem gerzt
hafði í Mexíkó.
Hálftíu gekk Bond út úr herberg-
inu sínu og villtist viljandi á leið til
lyftunnar, til þess að kynna sér
niðurröðun herbergja á hótelinu.
Þegar hann hafði síðan mætt sömu
þjónustustúlkunni tvisvar, spurði
hann hana til vegar og fór niður í
lyftunni. Hann gekk um á neðstu
hæðinni og leit á eitt og annað og
gekk svo út í garðinn. Du Pont var
klæddur „fyrir ströndina", frá
Abercrombie & Fitch og lét hann
hafa allsherjarlykilinn. Þeir gengu
yfir að Cabana Club og upp stigana
tvo, sem láu upp á þaksvalirnar.
Bond hnykkti við, þegar hann sá
Goldfinger í fyrsta sinn. Fjarst á
þakinu, alveg uppi við hótelið, lá
maður á bakinu, með fæturna uppi
á sólstól. Hann var ekki klæddur
í annað en gular bikinibuxur úr
satíni með dökk gleraugu og breiða
tinvængi undir hökunni. Vængirnir
lágu utan um háls hans, út á axl-
irnar og aftur fyrir þær og beygð-
ust síðan upp með ávölum hornum.
VIKAN 16. tbl.