Vikan

Issue

Vikan - 01.07.1965, Page 11

Vikan - 01.07.1965, Page 11
Arið 1909 hafði Ungmennafélag Reykjavíkur komið upp sundskála við Skerja- fjörð og þar sýndi aldamótakynslóðin hreysti sína með því að taka sér köld höð. Stúlkurnar eru sumar í þverröndóttum sundbolum af nýjustu tízku og standa eins og piltarnir í glímustöðu með hendur fyrir aftan bak. í ágústmánuði 1941 horfði mjög þunglega fyrir Bandamönnum í styrjöldinni. Þá gerðist það að Winston Churchill, sem nú hefur verið kallaður „maður ald- arinnar“, kom til Reykjavíkur og tók Hermann Jónasson, forsætisráðherra á móti honum. Ilér fylgir hann Churchill til skips. Reykjavík nútímans: Nýtt sambýlishúsahverfi. Framan af öldinni var Reykjavík hálfdanskur bárujárnshúsabær, sem náði upp í Þingholtin og Skuggahverfið. Hin myndin er tekin skömmu eftir aldamótin skammt austan við Rauðar- árstíg. Skólavarðan trónar á Skólavörðuholtinu og lengra nær byggðin ekki. Óbyggt er meðfram Laugavegi frá bæn- um og inn að Rauðará. Steinsteypuöldin liófst í Reykjavík Ilannes Hafstein ráðherra, og sr. Árni Jónsson á Skútustööum, ganga úr kirkju eftir þingsetningu á fyrstu ár- um heimastjórnarinnar. Pólitíin gera „honör“ og eins ráðherrann. Arið 1918 liefur orðið minnisstætt. Þá urðu frosthörkur meiri en fyrr og síð- ar á öldinni, allt uppí 36 stig. Sama ár gaus Katla og neyðarástand varð af völdum spönsku veikinnar. VIKAN 26. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.