Vikan

Tölublað

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 28

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 28
JAPAN Q Japanir hafa sannarlega ekki orðið neinir eftirbátar að apa eftir vestrænum þjóðum ýmis atriði úr skemmtanalífi ekki síður en iðnaðinum og partýin þar eru sögð æðisgengin. Þar fremja menn kviðristu, ef þeim þykir sæmd sinni mis- boðið í partýum en aðal keppikeflið er að ná í svefn- pillu og koma sér síðan í jasskjallara, þar sem maður sér og heyrir hálfsofandi allt sem fram fer. Stundum er beinlínis efnt til svefn- pillupartýa, sem oftast enda með því að allir lognast útaf. <$ Japanskir unglingar. Þeir höfðu verið í partýi alla nóttina og sumir voru í pill- unum, en þeir sem uppi stóðu, fóru á nærklæðum út á strönd og héldu dans- inum áfram. Það vill til að veðráttan er hlý. Svona partý heita á japönsku „suiminyaku asobi“, þ. c. svefnpilluleikur. SVÍÞJÖÐ „Syng om studentens lyckliga dag“ syngja Sví?.r og stúdentarnir láta ekki sitt eftir liggja. En þeir sjálTir sem lifa þessa herlcgu daga, gera meira en a.ð syngja. Svíar eru álíka barbarar í brennivíns- málunum og íslendingar og drekka sig fulla þegar þeir geta því við komið. En kvenþjóðin í partýinu á myndinni gerir sitt til að auka stemininguna, því sumar eru í þjóð- búningum frá öldinni scm leið, sumar í regngalla og sumar á bik- ini. Partýið var haldið á sænskum stúdentagarði. NEW YORK 0 Einkar vinsæll þáttur í skemmt- analífi ungs fólks í Nýjork eru bjór og pylsupartý. Það eru frek- ar fáguð partý, að minnsta kosti til að byrja með og þá þykir af- bragð að kneifa bjórinn úr þessum þýzku könnum, sem sjást á mynd- inni. Á eftir er plötuspilarinn sett- ur í gang og fólkið fær sér — ckki snúning — heldur þessa nýju tízkudansa þar fyrir westan eins og t.d. Jcrk, Surf og svo auðvit- að tvist.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.