Vikan

Tölublað

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 32
'■■■■ - HUSMÆDUR! 1001 r eldhúsrúilan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. ELDHÚS RÚLLAN ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI * 4 ’nuipnar Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert leiður yfir hversdagsleikanum og hefðir gott af að rífa þig upp úr honum með góðri tilbreytingu, ferðalagi eða öðru þvílíku. Þú færð óvænta og kær- komna hjálp frá persónu sem er í fjölskyldutengsl- um við þig. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Líkur eru á að karlmenn fæddir 10. — 18. maí eigi skemmtilega daga í vændum. Vinur þinn veldur þór vonbrigðum vegna staðfestuleysis síns. Þú verður þátttakandi í fjölmennum hátíðahöldum í viku- lokin. getur. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vikan verður viðburðarík en ekki að sama skapi skemmtileg. Þú verður mikið heima á kvöldin og vinnur að vissum verkefnum. Þú færð gott tilboð sem ætti að geta fært þér betri afkomumöguleika. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Deyfð og drungi liggur yfir þér eins og stendur, en innan skamms verður nokkuð til að rífa þig upp úr sinnuleysinu. Þú munt eiga annríkt í vikulokin, réttast væri að leita sér aðstoðar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Eitthvað sem gekk úrskeiðis í síðustu viku fyrir þér, gengur nú aftur og verðurðu að taka afleið- ingunum. Kvöldin verða óvenjulega viðburðarrík og nokkuð mikið um gestakomur og heimsóknir. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú skemmtir þér nokkuð minna en ráð var fyrir gert vegna óvæntra atburða. Farðu varlega með fjármuni þína einkum 1 kringum helgina. Gamall vinur þinn kemur þér á óvart með tiltektum sínum. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú skalt varast að hafa nokkur strákapör í frammi þótt það freisti þín. Ákveðin persóna bíður eftir tækifæri til að geta klekkt á þér og skaltu haga oröum þínum og gerðum eins skynsamlega og þú Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Líkur eru til þess að þú fáir tilboð sem getur breytt framtíðaróformum þínum verulega. Þú átt von á sendingu sem vinur þinn útvegar þér með ærinni fyrirhöfn. Þú ferð í stutt ferðalag. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Dagarnir verða þægilegir en ekki lausir við nokkrar áhyggjur af hinu daglega lífi, einkum þjáir þig vandamál sem stendur í nánu sambandi við hús- næði. Útivera og íþróttir myndu henta þér mjög vel. gMfifítt, Steingeitarmerkiö (22. desember —- 20. Janúar): Þú ert fremur ístöðulítill og áhrifagjarn vegna ij óánægju þinnar á vissu sviði. Þér er ráðlegast að breyta til um atvinnu, ef þú hefur ekki baráttu- vilja. Kannske væri þér einnig nóg að breyta um starfsaðferðir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Fjárhagslega gæti vikan orðið afar hagstæð. Gættu þess að vera vel vakandi og láta ekkert tækifæri úr greipum ganga. Þér er óhætt að telfa á tvær hættur og jafnvel að sýna nokkra ósvífni. Fiskamerkið (20. fcbrúar — 20. marz): Persóna sem þér er lítið um sýnir á sér mjög æski- lega hlið. Laugardagur er heilladagur fyrir konur fæddar 22. feb. til 1. marz. Þú stendur í skuld við einhvern sem þú ættir að greiða hið fyrsta. 22 VIKAN 26. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.