Vikan - 01.07.1965, Page 32
'■■■■ -
HUSMÆDUR!
1001 r eldhúsrúilan er fram-
leidd sérstaklega fyrir notkun
í eldhúsum ykkar og hjálpar
ykkur viö dagleg störf.
ELDHÚS
RÚLLAN
ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI
*
4
’nuipnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú ert leiður yfir hversdagsleikanum og hefðir gott
af að rífa þig upp úr honum með góðri tilbreytingu,
ferðalagi eða öðru þvílíku. Þú færð óvænta og kær-
komna hjálp frá persónu sem er í fjölskyldutengsl-
um við þig.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Líkur eru á að karlmenn fæddir 10. — 18. maí eigi
skemmtilega daga í vændum. Vinur þinn veldur þór
vonbrigðum vegna staðfestuleysis síns. Þú verður
þátttakandi í fjölmennum hátíðahöldum í viku-
lokin.
getur.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Vikan verður viðburðarík en ekki að sama skapi
skemmtileg. Þú verður mikið heima á kvöldin og
vinnur að vissum verkefnum. Þú færð gott tilboð
sem ætti að geta fært þér betri afkomumöguleika.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Deyfð og drungi liggur yfir þér eins og stendur, en
innan skamms verður nokkuð til að rífa þig upp úr
sinnuleysinu. Þú munt eiga annríkt í vikulokin,
réttast væri að leita sér aðstoðar.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Eitthvað sem gekk úrskeiðis í síðustu viku fyrir
þér, gengur nú aftur og verðurðu að taka afleið-
ingunum. Kvöldin verða óvenjulega viðburðarrík
og nokkuð mikið um gestakomur og heimsóknir.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú skemmtir þér nokkuð minna en ráð var fyrir
gert vegna óvæntra atburða. Farðu varlega með
fjármuni þína einkum 1 kringum helgina. Gamall
vinur þinn kemur þér á óvart með tiltektum sínum.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú skalt varast að hafa nokkur strákapör í frammi
þótt það freisti þín. Ákveðin persóna bíður eftir
tækifæri til að geta klekkt á þér og skaltu haga
oröum þínum og gerðum eins skynsamlega og þú
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Líkur eru til þess að þú fáir tilboð sem getur breytt
framtíðaróformum þínum verulega. Þú átt von á
sendingu sem vinur þinn útvegar þér með ærinni
fyrirhöfn. Þú ferð í stutt ferðalag.
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Dagarnir verða þægilegir en ekki lausir við nokkrar
áhyggjur af hinu daglega lífi, einkum þjáir þig
vandamál sem stendur í nánu sambandi við hús-
næði. Útivera og íþróttir myndu henta þér mjög
vel.
gMfifítt, Steingeitarmerkiö (22. desember —- 20. Janúar):
Þú ert fremur ístöðulítill og áhrifagjarn vegna
ij óánægju þinnar á vissu sviði. Þér er ráðlegast að
breyta til um atvinnu, ef þú hefur ekki baráttu-
vilja. Kannske væri þér einnig nóg að breyta um
starfsaðferðir.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Fjárhagslega gæti vikan orðið afar hagstæð. Gættu
þess að vera vel vakandi og láta ekkert tækifæri
úr greipum ganga. Þér er óhætt að telfa á tvær
hættur og jafnvel að sýna nokkra ósvífni.
Fiskamerkið (20. fcbrúar — 20. marz):
Persóna sem þér er lítið um sýnir á sér mjög æski-
lega hlið. Laugardagur er heilladagur fyrir konur
fæddar 22. feb. til 1. marz. Þú stendur í skuld við
einhvern sem þú ættir að greiða hið fyrsta.
22 VIKAN 26. tbl.