Vikan - 01.07.1965, Blaðsíða 26
BORGÁ MÝRUM
BUCKINGHAM PALACE
Drukkum einn á við átta, ok á við
ellefu tvisvar — Egill Skallagrímsson
í partýi. Teikning eftir danskan lista-
mann.
Garðpartý hjá Elísabetu Bretadrottningu, rétt hjá Buckingham Palace. Garðpartý
drottningarinnar munu vera jxau allra fínustu og eftirsóttustu, sem nokkursstaðar
eru haldin. Gestirnir standa í tveim röðum og híða eftir |xvi að Cobbolt lávarður
(á hægri hönd drottningarinnar) kynni þá fyrir hennar hátign.
KAUPMANNAHÖFN
1750
Jörundur Hundadagakonungur
hélt frægt partý í Reykjavík á sínum
mektardögum og varð það gestunum
minnisstæðast, að ein hárprúð frú,
sem Jörundur gerði þann heiður að
dansa við, festi hárið í Ijósakrónunni
og sat hárprýðin þar eftir, en daman
stóð eftir nauðasköllótt — og Jörundur
hló. Á þeim árum þótti vel við eigandi
að hafa sultutau um hönd í partýum
eins og fram kemur í íslandsklukk-
unni („Má bjóða yðar hávelborinheit-
um sultutau“). En alltaf hafa nú vín-
föngin verið mergurinn málsins í
partýum og kvenfólk líklega númer
tvö. Á þessari teikningu sjást virðu-
leg kanselíráð og hVur veit hvers kon-
ar ráð I kóngsins Kaupmannahöfn og
partýið virðist ætla að lukkast vel,
því einn er þegar oltinn og lleiri
orðnir óstöðugir á fótunum.
■
... i jýt.ij1' i". y * v
PARiS
Stúdentapartý í París. í þeirri borg
eru menn vanir ýmsum tilbreytingum
f skemmtanalífinu og það verður
reglulega að hafa hugmyndaflugið með
í spilinu, ef partýið á að heppnast vcl.
Þetta stúdcntapartý á vinstri bakkan-
um í París byrjaði sem einskonar
grfmuball; þátttakendur mættu f alls-
konar búningum, munkakuflum, bali-
etklæðnaði eða kafarabúning. Svo er
gefið merki og þá eiga partýgestir að
láta fötin fjúka (yfirleitt þykja föt
leiðinleg í partýum). Dömurnar standa
eftir í Bikini og hafa útblásnar blöðr-
ur í bak og fyrlr. Ef maður óskar að
komast nær þeim í dansinum en blöðr-
urnar leyfa, þá þykir heppilegt að
reka „óvart“ sígarettuna í blöðrurnar.
:;m/v
26 VIKAN 26. tbl.