Vikan - 08.07.1965, Page 6
ULTRft+LflSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞA
MEIR SILKIMJÚK AUGNAHAR.
TJ1.TRA*LASH er íyrsti augnháraliturinn sem
Jengir og þéttir augnahárin án þess að gera
þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að
bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga
TAPER-BRUSH sem byggir upp um leið og
hann Utar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði
og ekkert ergelsi út af gljáalausum og klistr-
uðum augnhárum. ULTRA*LASH hleypur ekki
í kekki, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta
er fyrsta skaðlausa efnið sem lenglr og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér-
staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd-
um með Maybelline Mascara Remover. Kemur
i þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN og MIDNIGHT BLUE.
olltof jja8 hreinasta og bezta fyrir fegurð augnanna:
rTV GBILL
Nú geta allir „GRILLAГ, úti á svölum,
úti í garði eða úti í sveit.
Við höfum fyrirliggjandi 3 gerðjr af
„tJTI GRILLUM“:
Við höfum einnig
BAR ■ B VqiBRlQCETS;
(BRÚNKOL) " * "^*21
sem eru sérstaklega fyrir „ÚTI GRILL“.
MEIRA KJÖT
Heiðraði póstur!
í póstinum 19. tbl. 1965, var
birt bréf frá Hreiðari Þ. Sæ-
mundssyni um Larry Scott og
Harold Poole, en þeir stunda báð-
ir kjötframleiðslu í heldur óhugn-
anlegri mynd eins og svaramaður
bréfsins kemst að orði. Ástæðu-
laust er að fordæma eða rýra
álit líkamsræktarmanna í nokkru.
Að vera föngulegur og hafa til
að bera spengilegan líkamsvöxt
hefur frá alda öðli þótt fagurt,
og er auðvelt að ganga úr skugga
um það með því að fletta upp
í Islendingasögunum og kynna
sér fornar grískar og rómverskar
myndastyttur. Líkamsræktar-
menn rækta upp líkama sinn, en
svo er það fegurðarsmekkur
hvers og eins, sem segir til um
hversu langt er haldið. Vil ég
benda á það án allrar reiði, að
öllum að skaðlausu hefði verið
hægt að sleppa dylgjum um, að
kynvilla væri undirrót stefnu'
líkamsræktarmanna, þar sem
enginn fótur er fyrir því, um það
get ég og félagar mínir borið
vitni, þar eð við höfum stundað
jíkamsrækt í eitt ár og sumir
lengur og engar annarlegar hvat-
ir hafa stjórnað þeim gerðum
okkar. Erum við fúsir til að
ganga undir rannsókn á því, hve-
nær sem er. Það hefði verið hægt
að kynna sér málið eitthvað, áð-
ur en farið var að rýra álit þess-
ara tveggja manna og annarra,
sem líkamsrækt stunda.
Með allri virðingu fyrir yður
og blaði yðar.
f.h. Æfingaklúbbsins.
Egill Sveinbjömsson,
Meðalholti 14, Rvík.
Það var nú víst hvergi minnzt
á það í umræddu svari, að kyn-
villa kynni að vera undirrót að
kjötframleiðslu Atlasmanna. Við
töluðum um annarlegar hvatir.
En fyrst þið bendið á grískar
styttur, þá væri ekki úr vegi að
benda ykkur á, að kynvilla hef-
ur líklega aldrei verið útbreidd-
ari en meðal þeirra fom-grísku
myndhöggvara, sem lögðu svo
mikla áherzlu á fagurskapaða
karlmenn í verkum sínum.
Enn hefur kvenþjóðin ekki lát-
ið til sín heyra um kjötfjöllin. Við
erum alltaf að bíða eftir áliti
hennar.
LAGIÐ HINUM MEGIN HEYRIST
í GEGN
Margfróði póstur.
Mig langar til að spyrja þig
að svolitlu. Hve oft er hægt að
spila sömu hljómplötuna? Eftir
hve margar spilanir heyrir mað-
ur, að platan er farin að slitna
og eftir hve margar verður að
henda henni?
Með fyrirfram þökk.
Gutta.
P.s. Hvernig er skriftin?
Þeir sögðu okkur í Fálkanum,
að það væri undir ýmsu komið,
bæði gerð plötunnar, hve margra
snúninga hún væri og hvernig
nál væri notuð.
Kannske þú gerir nú athugun
á þessu, spilir eina plötu svona
tvö til þrjúhundruð sinnum og
látir okkur svo vita um árang-
urinn.
Skriftin er dálítið kæruleysis-
leg og ekki nógu formföst.
ÉsaSSaAi*,:--..
BRJÓSTIN UNGU BIFAST
Kæra Vika.
Ég er 16 ára og er fullkomlega
þroskuð. En brjóstin lafa svo
voðalega mikið og stundum fæ
ég verki í þau. Getur það verið,
að ég hafi byrjað að nota brjósta-
haldara of seint. Brjóstin byrj-
uðu að vaxa, þegar ég var 11 ára
og voru orðin mjög stór, þegar ég
var 13 ára.
Á ég að fara til læknis eða á ég
bara að bíða, þangað til þetta
hættir?
Jónína.
Nei Jónína góð, þú átt ekki
neitt að biða heldur fara strax
til læknis. Hann getur sagt þér,
hvað amar að. Annars fást víða
í búðum ágætis nuddtæki, sem
ku vera notuð til þessa brúks.
Þau ættu ekki að skemma vöxt-
inn.
RUSL Á RUSL OFAN
Kæri póstur.
Ég er í Kennaraskólanum og
skrifa þér, vegna þess að ég fæ
ekki orða bundizt með sóðaskap-
inn þar í næsta nágrenni. f einu
húsi við Stakkahlíðina hefur sá
háttur verið hafður á með ösku-
tunnurnar, að hluti af lóðinni
hefur verið girtur af, sem
geymslustaður þeirra og snýr
g VIKAN 27. tbl.