Vikan - 08.07.1965, Blaðsíða 40
Bílapröfun Vikunnar
RAMBLER MARLIN
Me8 Montini kubbum er hægt að byggja hvað sem er. — Hús, bíla,
flugvélar o.m.fl. — Með Montini kubbum er hægt að kaupa yfir 50
aukahluti, svo sem: glugga, hurðir, hjól, húsþök, sjónvarpsloftnet,
tré o.fl.
Aukahlutir fró Montini passa inn í aðrar gerðir af kubbum sem hér
eru á markaðnum. — Montini kubbar eru úr linu plasti. — Montini
eru einu framleiðendurnir sem framleiða bæði kubba og plastpípur,
eða horn (plastik kanta) þannig, að hægt er að nota hvort tveggja í
sama hlutinn.
Montini fæst ( öllum leikfangabúðum.
Tryggvagötu 8. — Símar 19655 og 18510.
:: ■ 1 \
.
'■
mmáí \ iiééé
Eiginlega er Martin aðeins fjögra sæta
bíll, en engum ofætlun að vera þriðji
maður í aftursæti.
EG FLETTI upp í orðabók
til þess að gá hvað orðið
Marlin þýddi og komst að þeirri
niðurstöðu að það þýddi spjót-
fiskur. Enda var óvíst, hvort
bíllinn fengi að hafa Marlin-
merkið, sem er krómhringur,
á að gizka 6—7 sentimetrar í
þvermál og um liálfur sentimet-
er á þykkt, og stendur upp á
rönd upp úr liúddinu framan-
verðu. Vissir ráðamenn voru
þvi ákaflega fylgjandi að skrúfa
Marlinliringinn af svo öruggt
væri að enginn meiddi sig, þótt
hann yrði fyrir Marlin, og sömu
menn hafa komið þvi til leiðar,
að hökin hafa verið söguð af
teinahjólkoppunum, svo að þau
kræki ekki í buxur góðborgar-
anna um leið og Marlin rennir
fram lijá þeim á 100 kílómetra
hraða.
Rambler Marlin er einn af
þessum „fastback“ bílum, sem
eru mjög í tízku i Usa núna. Þeir
eru að verulegu leyti varnar-
vopn bílaverksmiðjanna gegn
Mustang, sem Ford hafði undir-
búið snilldarlega með margvís-
legri auglýsingastarfsemi, svo
aðrir framleiðendur stóðu
krumpnir við að finna sér eitt-
hvað, sem gæti hamlað móti
vinsældum þeim, sem Mustang
hlaut að fá, þegar hann yrði
afhjúpaður. Marlin er fyrsta
vörnin gegn Mustang, sem undir
ritaður hefur prófað, en eftir er
Barracuda (Chrysler) og Corv-
ette (GM).
Útlitið er smekksatriði. Sjálf-
um finnst mér Marlin miklu
fallegri en myndir segja til um.
Raunar bara mjög fallegur bíll.
Og tvímælalaust er hann iburð-
armeiri og virðulegri en Must-
ang, sem leggur upp úr þvi að
vera einfaldur og smart án i-
burðar. Marlin er ekki eins
VIKAN 27. tbl