Vikan - 08.07.1965, Page 10
GervitungliO
Early Bird
Fyrir nokkru gerðist merkur
atburður í gervitungla og geim-
rannsóknamálum Bandaríkjanna
og reyndar alheimsins. Á loft var
skotið gervitungli, sem hlaut
nafnið Early Bird. Aðdragandi
hafði verið nokkur að þessu skoti
og átti vísindamaðurinn Arthur
C. Clarke mestan veg og vanda
þar af. Early Bird var skotið með
kröftugri eldflaug út í himin-
geiminn og var ákvörðunarstað-
úrinn 22.300 mUur fyrir ofan
miðbaug. Þar endaði ferðin og
starfið hófst. Það starf er í því
fólgið að aðstoða við sjónvarps
og símasendingar um víða ver-
öld. Tilraunin þótti takast með
afbrigðum vel, og urðu fjölmarg-
ir þjóðhöfðngjar til þess að óska
Bandaríkjamönnnum til ham-
ingju. Og nú snýst Early Bird
uppi yfir miðbaug og fylgir snún-
ingshraða jarðar, þannig að hann
er ávallt á sama stað yfir jörðu.
Auðvitað voru talsverðir tækni-
legir örðugleikar á að koma hon-
um alla þessa leið. Hefði eld-
flauginni, sem flutti hann, ver-
ið skotið beint upp og stanzað síð-
an. En nú er Kennedy-höfði ekki
staðsettur á miðbaug og frá öðr-
um stað var vart hægt að skjóta.
Úr þessum vanda réðu þó færir
menn, svo vel að ekki skeikaði
metra í staðarákvörðun. Þegar
upp var svo komið, hélt Early
Bird sér á braut með gaskrafti.
En Early Bird var ekki fyrsta
tilraunin. Áður höfðu verið send-
ir upp þrír bræður hans, þeir
Syncom I., H. og HI. En Early
Bird var meistaraverkið. Á eftir
honum hafa svo verið sendir
fleiri fuglar eða munu verða
sendir.
En hvert er þá hlutverkið, sem
fuglinn á að inna af hendi? Það
er all margþætt og flókið. Fyrst
og fremst á hann að taka við
sjónvarpssendingum og endur-
senda þær til fjarlægra staða.
Þannig getum við fslendingar set-
ið við okkar sjónvörp og fylgzt
með íþróttakeppni á Nýja Sjá-
landi o.s.frv. I öðru lagi er hon-
um ætlað að taka við símaþjón-
ustu milli landa, þannig að við
getum jafn auðveldlega hringt
frá Reykjavík til New York og
við hringjum frá Reykjavík til
Akureyrar og í framtíðinni verð-
ur kostnaðurinn sennilega svip-
aður. f þessu eru aðalstörf fugls-
ins falin. Vitanlega getur hann
ekki einn annað öllum heimin-
um, til þess nær geisli hans ekki
nógu langt, en með tilkomu
fleiri af hans tegund verður
sennilega hægt að koma því í
framkvæmd.
Geislinn nær yfir einn þriðja
hluta af yfirborði jarðar, þannig
að þrír fuglar ættu að geta ann-
azt starfið til að byrja með. Hin-
ir allra bjartsýnustu í hópi vís-
indamanna hugsa sér margbrotið
kerfi gervitungla, sem næði Iangt
inn i einkalíf manna. T.d. ætti
hver íbúi jarðarinnar að hafa
sitt eigið símanúmer og eiga lit-
inn transistorsíma, svo að hver
sem vildi gæti náð í hann, þegar
á lægi. Einn hugvitsmaður telur,
að með þessu dragi úr áhrifum
stórborgarinnar. Hann segir, að
borgirnar séu aðeins til þess að
auka kunningsskap milli manna
og afnema einmanakennd. Á
slíku verði engin þörf, þegar
fuglamir koma á loft. Þá geta
menn opnað fyrir sjónvarpið sitt
og spjallað við kunningjana þótt
þeir séu staddir uppi í óbyggðum.
Enn aðrir halda því fram, að
hver maður geti fengið sjón-
varps- og útvarpséfni við sitt
hæfi. T.d. verði hægt að hafa dag-
skrár, sem byggjast eingöngu
upp á skák eða jafnvel grískum
leikritum.
En það eru ekki allir eins
ánægðir með framtíðina. Verður
þetta ekki aðeins til þess að
auka ysinn og hávaðann í kring-
um okkur? Verður þetta ekki
notað í áróðursskyni af stórveld-
unum eins og útvarp og sjónvarp
í dag? Verða ekki settar upp sjó-
ræningjastöðvar, eins og þær sem
frægar em orðnar af útvarps
stöðvum? Yfirgnæfa ekki allar
stöðvamar hver aðra, svo að ekk-
ert heyrist eða sjáist? Úr þessu
á framtíðin eftir að skera. Eftir
nokkur ár eða áratugi fáum við
að sjá árangurinn af tilraunun-
um, hvort sem þær verða þá til
góðs eða ilte.
Þvfllk meðferð
Claudia Cardinale stendur í
ströngu í nýju myndinni sem hún
leikur í, „Blindfold“, sem þýðir
Bundið fyrir augun, eða eitthvað
þvílíkt. Rock Hudson er mótleik-
ari ungfrúarinnar og í einu atrið-
inu reynir hann að kæla ítalska
skaphitann með því að sprauta
yfir hana kvoðu úr slökkvitæki.
Við stórefum, að honum takist
það.
BÍTLAMENNING
Segi svo hver sem vill, að bítlar
séu ekki listrænir! Þessir ungu,
hárprúðu menn eru sænskir að
uppruna og nafnið, sem þeir hafa
gefið gaddavírshljómsveitinni
sinni, er ekkert slorlegt: „Hamlet
and the Shakespeares". Auðvitað
er Hamlet söngvari með „band-
inu“. Hann er annar í röðinni frá
hægri.