Vikan

Tölublað

Vikan - 30.09.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 30.09.1965, Blaðsíða 32
Eigum mikiS úrval af vetrarkápum úr ullarefnum með og án loðkraga. Einnig fallega kjóla heila og tvískipta úr ull, terrylene, flaueli, jersey og silki. Gjörið svo vel og lítið inn. Bílastæði við búðina. TÍZKUVERZLUNIN GUÐRÚN Rauðarárstíg 1. Sími 1 50 77 Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmcrkið (21. marz — 20. apríl): Þú nýtur þess nú að þú hefur farið vel með frítíma þinn og notað ýmis tækifæri mjög vel. Þér mun verða mikið úr verki. og skila fljótt með verk, sem þú hefur lengi kviðið fyrir að byrja á. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Húsfélagi þinn eða persóna sem stendur í nánum fjölskyldutengslum við þig kemur fram við þig á ómetanlegan hátt þegar mikið liggur við. Þú hefur heppni með þér í viðskiptum. Vertu varkár á föstu- dagskvöldið. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Ákveðin persóna lætur sér mjög annt um þig og sýnir þér á margan hátt vináttu sína. Þú neyðist til að taka á þínar herðar skyldustörf fyrir félags- skap sem þú starfar í. Þú lendir í smá erfiðleikum á ferðalagi. Krabbamerkið (22. júní — 23. Júlí): Utanaðkomandi aðstæður valda því að þú getur ekki komið vissum áhugamálum þínum í framkvæmd og er þar ekki um að kenna slæmri skipulagningu. Sjúkdómstilfelli vissrar persónu verður til þess að þú átt mjög annríkt. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Það reynir mjög á háttprýði þína og smekkvísi, og líkur eru á að útkoma prófraunarinnar verði mjög hagstæð fyrir þig. Þú tekur að þér að kenna hluti sem þú ert mjög vel heima í. Farðu í ákveðna kunningjaheimsókn. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Láttu ekki hugsun um eigin hagsmuni ráða um of gerðum þínum og ákvörðunum. Dveldu meira heima en þú hefur gert og njóttu ánægjunnar við að dytta að ýmsum hlutum sem tilheyra þér og fjölskyldu þinni. m Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vegna þess hve þú ert mikið utan við þig verðurðu fyrir nokkru tjóni, sem félagi þinn aftur á móti hagnast á að sama skapi. Taktu ekki neinar fjár- hagslegar ákvarðanir eins og stendur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember). Vikan býður upp á marga skemmtilega viðburði ef þú heldur þig á réttum vígstöðvum og dregur þig ekki út úr glaumnum. Smávægileg mistök af þinni hálfu geta haft slæmar afleiðingar fyrir fjöl- skyldu þína. © Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): Brátt færðu tækifæri til að sinna langþráðum vérk- efnum. Heyndu að halda stefnunni og vera ekki með neina útúrdúra. Persóna í fjölskyldutengslum við þig gerir þér gramt í geði með athugasemdum sín- I Steingeitarmerkið (22. desember — 20. lanúar): Þú færð góðar fréttjr og ef til vill smá gjöf, sem kemur mjög langt að. Þú gerir góða verzlun, þó í smáuni stíl sé. Gættu þess að særa ekki neinn með hryssingslegri framkomu og ógætnum orðum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ákveðin persóna veldur þér miklum heilabrotum, en þú skalt ekki á neinn hátt gefa henni í skyn að þú skiljir ekki þankagang hennar, því innan tíðar færðu lykilinn í hendurnar, og þá er e.t.v. betra að hafa ekki sýnt áhuga. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ert allt of eyðslusamur og hugsunarlaus um eig- ur þínar. Veldu þér hollari félagsskap og reyndu að tolla heima að minnsta kosti annað hvert kvöld. Þú verður mjög spenntur í ákveðnu verkefni. VIKAN 39. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.