Vikan - 07.10.1965, Síða 6
ULTRfí+LfiSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞÁ
MEIR SILKIMJOK AUGNAHÁR.
ULTRA*LASH er fyrsti augnháraliturinn sem
Jengir og þéttir augnahárin án þess að gera
þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að
bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga
TAPER-BRUSH sem byggir upp um leið og
hann litar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði
og ekkert ergelsi út af gljáalausum og klístr-
uðum augnhárum. ULTRA*LASH hleypur ekki
í kekki, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta
er fyrsta skaðlausa efnið sem lengir og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er iyktarlaust. Sér-
staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd-
um með Maybelline Mascara Remover. Kemur
í þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN og MIDNIGHT BLUE.
32 <
t/> t£
SS
* Zr
mi
alltaf þa3 hreínasta og bezta fyrir fegurð augnanna:
ÞESSAR
UMBÚÐIR OG
GOÐAR
PERUR HEYRA
SAMAN
OSRAM
VENJULEGUR MAÐUR.
Kæri Póstur!
Um daginn birtist hér í þess-
um þætti bréf frá einhverri
„Glassóklíku11 og hún spyr um
álit Shadowsaðdáenda á mynd
nokkurri, sem líktist sólógítar-
leikara hljómsveitarinnar all
mikið. Þar sem ég er mjög hrif-
inn af þessum listamönnum,
langar mig til að leggja orð í
belg. Já, það er rétt, myndin er
furðulega lík Hank, en það hef-
ur vakið eftirtekt mína hve
margir ungir menn eru sérstak-
lega svipaðir honum, t.d. hér í
Reykjavík, það er varla þverfót-
að fyrir piltum, sem eru svo til
nákvæm eftirmynd hans. Svo
það er ekki vert að fá slag útaf
mynd, án sannana.
Kær kveðja til Glassóklíkunn-
ar og Vikunnar frá
Shadowsunnanda.
P.S. Hvernig er stafsetningin,
Póstur góður? Þarf maður að
vera Menntaskólastúdent til að
gerast blaðamaður?
Svar við P.S.: Stafsetningin er
óaðfinnanleg, eftir þvl sem bezt
verður ráðið af þessum torskildu
rúnum. Stúdentspróf er enn sem
komið er ekki skilyrði til að
verða blaðamaður.
EÐLILEGT VANDAMÁL.
Kæri Póstur!
Ég les alltaf Vikuna, sérstak-
lega finnst mér gaman að lesa
póstinn, og framhaldssagan
Angelique er stórkostleg. Ég á
að byrja í skólanum 25. septem-
ber, og á að vera í sundi ein-
hvern hluta vetrarins. Þetta er
fyrsti veturinn sem ég er hérna
í Reykjavík, því ég átti heima
í sveit. En hvernig er það, þegar
ég er með tíðir þá get ég ekki
mætt í sund, og ég þori ekki að
skýra það fyrir kennaranum,
gefðu mér nú góð ráð.
Hvernig get ég minnkað á mér
nefið?
Ein 13 ára.
P.S. Hvernig er skriftin?
Enga útúrsnúninga, skiljið.
Ég held þú þurfir ekki að skíra
neitt. Þú segir kennaranum ein-
faldlega, að þú sért ekki vel frísk
í dag og getir ekki farið í sund,
og hann skilur áreiðanlega hvað
þú ert að fara án nánari útlist-
unar. Annars geturðu áreiðan-
lega fengið upplýsingar um það
hjá skólasystrum þínum, hvern-
ig þær fara að, því þú ert varla
sú eina, sem hefur við þennan
eðlilega vanda að glíma. Ég er
anzi hræddur um, að þú verðir
að hafa það nef, sem þér var í
upphafi gefið, en ég get huggað
þig með því, að þegar allar þær
breytingar, sem nú eru að byrja
í líkama þínum eru afstaðnar,
eru allar líkur til að nefið þitt
stóra verði ekki eins áberandi og
þér l'innst það nú vera. —■ Skrift-
in er líka 13 ára.
FLÆKJA f ÁSTAMÁLUNUM.
Kæri Póstur!
Oft er þörf en nú er nauðsyn.
Og þess vegna tek ég mér penna
í hönd þó að ég ætti frekar að
fara til sálfræðings. Svo er mál
með vexta að ég er ný gift og
á eina dóttur og bý í kauptúni
úti á landi. Maðurinn minn er
verulega elskulegur en hann á
góðan vin sem er jafnframt enn
elskulegri. Og þessi vinur hans
er gamall sjens hjá mér, sem ég
hélt í dentíð að ég væri búin að
gleyma og hef ef til vill. En einn
góðan veðurdag kvaddi hann
Reykjavíkurborg og fór að vinna
hér í þorpinu og er auðvitað í
fæði og húsnæði hér hjá mér.
Hann er mikið heima á kvöldin
en maðurinn minn aftur á móti
ekki. Og því miður erum við
ekki saklaus af lauslæti. Við not-
um sem sagt hvert tækifæri. En
maðurinn minn fer nú orðið all
skuggalega í taugarnar á mér og
fer ekki hjá því að hann taki
eftir því. Og til að bæta gráu
ofan á svart er ég ófrísk eftir
heimilisvininn.
Hvað á ég að gera?
í flækju.
P.S. Mennirnr tveir eru afar ó-
líkir í útliti.
Ætli þú verðir ekki að eiga barn-
ið?
STIRFINN EIGINMAÐUR.
Þú gefur oft svo góð ráð, kæri
Póstur, að ég ætla nú að leita
til þín í vandræðum mínum.
Ég er 36 ára gömul, hef verið
gift í 15 ár og við eigum þrjú
böm, það elzta 9 ára gamalt.
Ég hef reynt að gera mitt
bezta til að heimilislífið verði
rólegt og öruggt, og sjálf kem
ég frá heimili, þar sem aldrei
g VIKAN 40. tbl.